Víkurfréttir - 22.12.2016, Síða 20
20 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Lífið eftir körfuboltann
Þegar halla fór á síðari hluta ferils
Brenton í körfuboltanum fór hann að
hugsa um hvað tæki við. Hann ákvað
að opna húsgagnaverslun við Hafnar-
götu í Reykjanesbæ árið 2006 og rak
hana í tvö ár. Brenton og Berglind
fóru að vera saman þegar Brenton var
að fara að spila í Frakklandi en þar
bjuggu þau saman. Þau eignuðust son
saman 2004 en fyrir átti hún einn son.
„Það var gaman í upphafi að reka búð-
ina. Svo tekur raunveruleikinn við.
Til þess að fyrirtækið virki þurftum
við að njóta ákveðinnar velgengni.
Svo kom kreppan og við þurftum að
ákveða hvort við ættum að segja skilið
við búðina,“ segir Brenton um hús-
gagnaævintýrið.
Það stóð aldrei til að verða eftir á Ís-
landi þegar körfuboltanum lauk.
„Berglind er ástæðan fyrir því að ég
varð eftir á Íslandi. Eftir Frakkland þá
varð Ísland heimahöfnin fyrir mér þar
sem hún var hér. Það var ekki erfið
ákvörðun að setjast að á Íslandi. Ef þú
elskar einhvern þá skiptir staðsetn-
ingin engu máli. Ég sakna auðvitað
fjölskyldu minnar í Bandaríkjunum
mjög mikið en er að reyna að lifa
mínu eigin lífi.“
Fyrir tilviljun fékk Brenton spurnir
af námi flugumferðastjóra. Það er
starf þar sem enska er fyrirferðamikil
og mikilvægt er að vera yfirvegaður
undir álagi. „Ég elska þessa vinnu og
hlakka til þess að mæta á hverja vakt,“
segir Brenton sem hafði alltaf áhuga
á flugi en var ekki áhugasamur um
að vera flugmaður. „Ég er ekki flug-
hræddur en kýs frekar að vera á jörðu
niðri.“ Brenton skráði sig í námið hjá
Keili árið 2009 og stóð sig mjög vel.
Hann var ráðinn til Isavia í kjölfarið
og kláraði réttindin ári síðar.
„Margir hafa ákveðnar hugmyndir
um starfið. Einn spurði mig til dæmis
um daginn hvort við værum byrjaðir
að starfa innandyra, hann hélt að við
værum gaurarnir með ljósin sem
leiðbeina flugvélunum við rampinn,“
segir hann og hlær. „Það eru mismun-
andi tegundir af flugumferðarstjórum.
Þeir sem eru í turninum, en ég fæst við
það núna. Svo eru það þeir sem stýra
flugumferð á flugvöllum á Íslandi og
í íslenska flugstjórnarsvæðinu sem er
5,4 milljónir ferkílómetrar að stærð
og eitt það stærsta í heiminum. Svo
eru aðrir sem stjórna aðflugi og rat-
sjánum. Það er svo ótalmargt í þessu
sem fólk gerir sér kannski ekki grein
fyrir. Við verðum að vera með það
á hreinu hvað fer fram á öllum flug-
brautum þar sem umferð bíla og flug-
véla er talsverð, svo er oft mikið um
framkvæmdir á flugbrautunum og við
fylgjumst vel með því.“
„Þessu starfi fylgir ákveðin streita og
þú þarft að vera mjög einbeittur. Við
erum auðvitað ekki eins og Heathrow
í London og umferðin er ekki mikil
miðað við þessa stóru flugvelli. Eins
undarlega og það hljómar þá er það
stundum þannig að okkar umferð er
erfiðari en á þessum stóru völlum. Hér
eru námsvélar og oft hervélar í bland
við almenna umferð.“
„Við verðum að vera tilbúin að kveikja
á okkur og takast á við verkefni á
örskotsstundu. Það er ekki hægt að
hita upp og teygja í þessum geira og
hlutirnir gerast hratt.“ Þannig getur
ýmislegt komið upp á og mistök geta
haft alvarlegar afleiðingar. „Það gerist
auðvitað ýmislegt þar sem mannlegi
þátturinn er stór í starfinu. Góður
flugumferðarstjóri getur séð eitthvað
gerast fyrir og brugðist fljótt við án
þess að frjósa eða fara á taugum.“
Brenton segir að liðsvinnan sé mikil
eins og í körfuboltanum. Allir hafi
sömu markmið og mikil áhersla er
á samskipti. Brenton sér fyrir sér að
starfa á þessum vettvangi lengi enda
mjög hamingjusamur í starfi.
Fjórir strákar og fjörugt heimili
Brenton er mikill fjölskyldumaður.
Þau Berglind eiga saman þrjá stráka
og Berglind átti soninn Rúnar fyrir
sem Brenton hefur verið uppeldis-
faðir. „Ég elska fjölskyldulífið og það
er fullkomið að ala upp börn á Ís-
landi.“ Strákarnir eru í körfubolta og
tekur Brenton þar mikinn þátt. Hann
er eiginlega „all in“ þar eins og maður
segir. Mætir á öll mót og ráðleggur
stákunum. „Ég segi þeim að þeir þurfi
ekki að spila körfubolta út af mér. En
ef þeir vilja spila körfubolta þá finnst
mér að þeir verði að leggja 120% á sig
og þá er ég til í að hjálpa.“
Stoltur Íslendingur sem
öskrar yfir fótbolta
Brenton er eins og áður segir vel liðinn
í samfélaginu en hann hefur þó fundið
fyrir því að vera öðruvísi á stundum.
„Að vera svartur maður á Íslandi, þá
líður manni stundum eins og utanað-
komandi. Vegna þeirra sem eru mér
nærri, fjölskyldu og vina sem mér
þykir vænt um, þá gerist það mjög
sjaldan.“
Brenton var eins og allir Íslendingar
með fótboltaæði í sumar þegar EM
stóð yfir. Brenton sjálfur lék á sínum
tíma 19 landsleiki fyrir Íslands hönd.
„Þegar við spiluðum við England,
hver var ekki hoppandi og öskrandi af
gleði? Ég bý yfir miklu íslensku stolti.
Ég hef verið hér í 18 ár, næstum hálfa
ævina, auðvitað er ég stoltur Íslend-
ingur. Nú til dags skilgreini ég mig
sem Íslending með bandarískt vega-
bréf,“ segir hinn geðþekki Brenton.
Góður í Grindavík: „Ég er mikill Njarðvíkingur en ber líka til-
finningar til Grindavíkur. Mér var nokkurn veginn ýtt þangað
á sínum tíma. Ég hefði líklega spilað allan minn feril hjá Njarð-
vík á Íslandi ef þetta hefði ekki farið svona. Þetta snýst líka um
viðskipti og tryggðin nær aðeins visst langt á báða bóga.“
Frægðarhöllin: Brenton átti frábæran feril í Manhattan skól-
anum. Brenton prófaði einu sinni að drekka í háskóla fyrir
forvitnissakir. „Það var bara tilraun. Ég vissi strax að það yrði
í eina skiptið.“
Fingur-rúll: Eitt af einkennismerkjum Brenton, er hið svo-
kallaða. „finger roll. Hann átti það nú líka til að troða bolt-
anum hressilega.
Spilaði 19 landsleiki: „Jón Arnór er erfiðasti andstæðingurinn. Hann er besti leik-
maður sem Ísland hefur átt. Hann er líka tíu árum yngri en ég og því var stundum
erfitt að líta á hann sem andstæðing á sama stigi.“
Sú eina rétta: „Berglind er ástæðan fyrir því að ég varð eftir á Íslandi. Eftir Frakk-
land þá varð Ísland heimahöfnin fyrir mér þar sem hún var hér.“