Víkurfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 22
22 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Háskólabrú í janúar Flugvirkjanám í janúar Tæknifræði í júní
Háskólabrú í ágúst Íþróttaakademía í janúar Atvinnuflugnám í júní
Atvinnuflugnám í janúar Háskólabrú í júní
Íþróttaakademía í júní Leiðsögunám í júní
Til hamingju
útskriftarnemendur!
Árið 2016 útskrifaði Keilir 296
nemendur úr öllum deildum skólans.
Við óskum þeim til hamingju með
þennan áfanga og þökkum þeim fyrir
árið sem er að líða.
Fjöldi íbúa Reykjanesbæjar mætti
á íbúafund í Stapa á miðvikudags-
kvöld í síðustu viku þar sem rædd var
ófyrirséð mengun frá kísilveri United
Silicon í Helguvík. Verksmiðjan hóf
framleiðslu í haust og upp úr miðjum
nóvember fóru íbúar að finna fyrir
lyktar- og reykmengun og hafa Um-
hverfisstofnun borist fjölmargar
ábendingar vegna þess. Að loknum
framsögum á fundinum frá fulltrúum
Reykjanesbæjar, United Silicon, Um-
hverfisstofnun og Orkurannsóknum
Keilis gafst fundargestum kostur á
að bera fram spurningar. Ýmis mál
tengd uppbyggingu stóriðju í Helgu-
vík brunnu á fundargestum og stóð
fundurinn í rúmlega þrjár klukku-
stundir en þá var mælendaskrá lokað.
Óttast að íbúar flytji vegna mengunar
Íbúi í næsta nágrenni við kísilverið
lýsti því hvernig gasskynjari hafi farið
gang þegar hann hafði útidyrahurð á
heimili sínu opna um tíma. Hann lýsti
yfir áhyggjum af því að önnur efni en
þau sem verið er að mæla streymi frá
verksmiðjunni. Íbúi við Heiðarholt
benti á að leikskólinn Heiðarsel væri
nálægt verksmiðjunni. Annar kvaðst
upplifa stöðuna sem svo að hann væri
staddur í skipulagslegu stórslysi þar
sem hver vísi á annan. Þá lýsti íbúi í
Reykjanesbæ yfir áhyggjum af því að
ungt fólk myndi í framtíðinni flytja
frá bæjarfélaginu vegna mengunar.
„Við erum að ala upp kynslóð hér sem
hefur staðið sig vel í Pisa-könnunum
og við viljum hafa hana hér áfram, er
það ekki?,“ sagði sá íbúi og uppskar
lófaklapp fundargesta.
Segjast vilja gott samstarf
við nágranna
Kristleifur Andrésson, stjórnandi ör-
yggis- og umhverfismála hjá United
Silicon, sagði í framsögu sinni að
fulltrúum fyrirtækisins þætti miður
að íbúar hafi orðið fyrir óþægindum
vegna byrjunarörðugleika sem þeir
hafi glímt við. Hann sagði þá leggja
áherslu á að eiga gott samstarf við ná-
granna sína, íbúa og bæjaryfirvöld.
11 frávik frá ákvæðum starfsleyfis
Í framsögu Sigríðar Kristjánsdóttur,
teymisstjóra eftirlitsteymis Umhverf-
isstofnunar, kom fram að skráð hafi
verið 11 frávik frá ákvæðum starfs-
leyfis kísilvers United Silicon í Helgu-
vík. Hún sagði skráningar United
Silicon ekki hafa verið fullnægjandi
og upplýsingar sem fulltrúar fyrir-
tækisins gáfu stofnuninni misvísandi.
Þá lýsti hún því að sérfræðingar Um-
hverfisstofnunar hafi haft áhyggjur af
samskiptum við fulltrúa fyrirtækisins.
Hún minna fundargesti á að eftirlits-
skýrslur um starfsemina væru að-
gengilegar á vef stofnunarinnar.
Umhverfisstofnun beitti þvingarúr-
ræði í þar síðustu viku eftir að hafa
skráð frávik en ekki fengið þau við-
brögð frá fyrirtækinu sem þau vonuð-
ust til. Þvingunarúrræðið fólst í því
að fyrirtækið skyldi ekki kveikja aftur
á ofni eftir að slökkt var á honum í
kjölfar vinnuslyss. Sigríður sagði að
þá hafi fulltrúar United Silicon brugð-
ist hratt við og sent gögn sem farið
var yfir. Því var fyrirmælum aflétt og
fyrirtækinu heimilt að kynda aftur
upp í ofninum.
Fjöldi á fundi um
mengun frá kísilveri
●● Fulltrúi●United●Silicon●baðst●afsökunar●á●mengun
●● Margir●íbúar●tóku●til●máls●á●fundinum
Fulltrúar United Silicon við háborðið, Helgi forstjóri þriðji frá hægri. Þeim til hliðar
eru Sigríður Kristjánsdóttir og Þorsteinn Jóhannsson frá Umhverfisstofnun.
VF-myndir/pket.
Fjölmenni var í Stapa á fundinum.