Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2016, Side 26

Víkurfréttir - 22.12.2016, Side 26
26 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR SENDUM ÍBÚUM Í VOGUM BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Combo Kletthálsi 7, Reykjavík Fuglavík 18, Reykjanesbæ settLutool Combo Kit allt settið að eins 17.890 Stingsög Skrúfvél Fjölno tatæki Keflavíkurkirkja skartar sínu fegursta þessa aðventuna. Endurbótum á inn- réttingum kirkjuskipsins er lokið og kirkjan ljómar sem aldrei fyrr. Tón- listin skipar stóran sess í helgihaldinu og hafa allir kórar kirkjunnar látið raust sína hljóma þessa aðventuna. Leikskóla- og grunnskólabörn hafa komið og flutt helgileiki við góðar undirtektir og sungið jólalög. Reykja- nesbær var með sína árlegu jólaföstu þar sem öllu starfsfólki bæjarins var boðið til árlegrar „jólaföstu í Kefla- víkurkirkju” með tónlist og söng og endaði svo á að fá sér heitt súkkulaði og með því. Með þessari venju sem nær nú áratug aftur í tímann, leggur starfsmannafélag bæjarins til fé í Vel- ferðarsjóð á Suðurnesjum, sem ella hefði verið varið í veisluhöld á að- ventunni. Fyrsti sunnudagur í aðventu hófst með hefðbundnu helgihaldi við messu klukkan 11:00 og kom það svo í hlut kórs eldri borgara á Suðurnesjum, Eldeyjarkórsins, að syngja um kvöldið. Rúmlega 60 manns eru í þessari gleði- söngsveit. Annan sunnudag í aðventu var ljósa- messa í Keflavíkurkirkju. Fermingar- börn skiptu á milli sín helgitextum og tendruðu ljós eftir hvern lestur. Að kvöldi dags kom það svo í hlut Kórs Keflavíkurkirkju að syngja í endurbótamessu. Fagnað var form- lega endurbótum kirkjunnar, þar sem Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir, for- maður sóknarnefndar og Páll Bjarna- son, hönnuður framkvæmdanna, fluttu ávarp. Kirkjukórinn söng jóla- sálma og tveir kórfélagar sungu ein- söng í „Laudate Dominum“ eftir Moz- art og „Ó, helga nótt“ eftir Adams. Þriðji sunnudagur í aðventu hófst með helgistund í kirkjunni en svo tók við jólaball í safnaðarheimilinu þar sem yngri hópur úr „Skapandi starfi“ kom fram. Skapandi starf er verkefni sem hrundið var af stað í fyrra og hefur gefist mjög vel. Markmiðið er að hver og einn einstaklingur læri og þori að vera hann sjálfur í söng og leik. 75 börn á aldrinum 7 til 15 ára eru í þessum hópi. Um kvöldið voru það svo eldri börnin í skapandi starfi sem komu fram ásamt sönghópnum „Vox felix“, eða „Hamingjuröddunum“. Vox felix var stofnaður fyrir fjórum árum fyrir tilstuðlan Sigurðar Grét- ars Sigurðssonar, þáverandi Útskála- klerks. Hópurinn er samstarfsverk- efni allra sjö sókna á Suðurnesjum og hefur vaxið mjög á þessum fjórum árum. Núna skipa 28 manns hópinn, og hafa meðlimir þar að auki stofnað hljómsveit, með bassa, gítar og ca- jon trommu. Vox felix hefur haft nóg að gera þessa aðventuna og kemur flokkurinn fram, alls tólf sinnum. Framundan í kirkjunni eru svo há- tíðarmessur um jól og áramót. Þetta er sannarlega innihaldsríkur tími þar sem hver og einn ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þrjár messur eru í kirkjunni á aðfangadag: Barnastund klukkan 16:00, hátíðarmessa klukkan 18:00 og svo miðnæturmessa klukkan 23:30. Í miðnæturmessunni, sem ber heitið „Nóttin var sú ágæt ein“ er komin hefð fyrir því að sönghópurinn Kóngarnir syngi. Kóngarnir er söng- kvartett skipaður fjórum körlum úr Kór Keflavíkurkirkju. Stundin er lát- laus og allt sungið „a-capella“ það er án meðleiks hljóðfæra. Hátíðarmessa er á jóladag klukkan 14:00, gamlársdag klukkan 18:00 og á nýársdag klukkan 14:00. Óhætt er að segja að Keflavíkurkirkja ómi og ljómi þessa hátíð sem aðrar og horfum við björtum augum til kom- andi tíma um leið og við byggjum á góðum grunni þjónustu sem nær nú heila öld aftur í tímann og við þreyt- umst ekki á að rifja upp. Gleðileg jól! Arnór Vilbergsson organisti Keflavíkurkirkju Keflavíkurkirkja ómar öll! Kór Keflavíkurkirkju. Eldey, kór eldri borgara. Barnakór Keflavíkurkirkju. Vox Felix, ungmennakór kirknanna. Við óskum þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum kærlega vinskapin á árinu sem senn er að líða. Við munum vera með lokað frá og með: 23.des - 3.jan 2017. Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári, starfsfólk Hjá Höllu. Gleðilega hátíð ■ Í samráði við Almannavarnir og Reykjanesbæ hefur Valahnúk á Reykjanesi verið lokað fyrir umferð fólks. Stór sprunga við brún Valahnúks hefur stækkað undanfarið og óhjákvæmilega mun sá hluti hrynja úr hnúknum. Varhugavert getur verið að vera nálægt brúninni ef og þegar hrun á sér stað. „Í samráði við almannavarnir og Reykjanesbæ var því tekin sú ákvörðun fyrir síðustu helgi að loka fyrir uppgöngu á Valahnúk. Lokunin gildir þar til annað verður ákveðið. Ég vona að þið sýnið þessari ákvörðun skilning og upplýsið ykkar ferðamenn um hættuna sem fylgir uppgöngu ef þeir taka ekki mark á merkingum á svæðinu,“ segir Eggert Sólberg Jónsson hjá Reykjanes Geopark á vef ferðaþjóna á Reykjanesi á Facebook. Almannavarnir loka Valahnúk vegna risasprungu

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.