Víkurfréttir - 22.12.2016, Page 32
32 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Fisktækniskóli Íslands í Grindavík útskrifaði 29 nemendur
frá Fisktækniskóla Íslands nú í desember. Í hópnum voru
tíu fisktæknar, ellefu gæðastjórar og átta sem voru útskrif-
aðir sem Marel-vinnslutæknar. Þetta var í þriðja skipti sem
skólinn útskrifar nemendur frá því að námskrá skólans var
formlega samþykkt árið 2012 og hafa nú alls um 90 nem-
endur útskrifast frá skólanum. Auk kennslu til grunnnáms
á framhaldsskólastigi og sérnáms hefur námskeiðahald
verið stór þáttur í starfsemi skólans á árinu og hafa um 800
starfandi einstaklingar úr sjávarútvegi, fiskeldi og vinnslum
af öllu landinu, sótt námskeið á vegum skólans.
Frá stofnun skólans fyrir nær átta árum hefur verið lögð
mikil áhersla á að auk kennslu í Grindavík yrði nám í fisk-
tækni í boði sem víðast á landinu. Að sögn Ólafs Jón Arn-
björnssonar, skólameistara Fisktækniskóla Íslands hafur
það markmið náðst enda stunduðu um 60 nemendur nám
á þremur stöðum á landinu í góðu samstarfi við framhalds-
skóla, símenntunarmiðstöðvar og hagsmunaaðila í sjávar-
útvegi á hverjum stað nú á haustönn.
Nú stendur yfir innritun á vorönn og auk tveggja ára
grunnáms í Fisktækni og sérnáms í Marel-vinnslutækni og
Gæðastjórnun verður í fyrsta skipti boðið upp á nýtt eins
árs sérnám í Fiskeldi. Námið er sniðið fyrir þessa vaxandi
iðngrein á Íslandi og er unnið í samstarfi við Háskólann á
Hólum.
29 nemendur útskrifast
frá Fisktækniskóla Íslands
■ Ferðaþjónusta Reykjaness mun áfram sinna akstri fólks með fötlun í
Reykjanesbæ. Skrifað var undir samning þess efnis á dögunum. Samn-
ingurinn var gerður í kjölfar útboðs þar sem tvö fyrirtæki sendu inn tilboð.
Samningurinn er til fimm ára og tekur gildi í apríl á næsta ári.
Ferðaþjónusta Reykjaness hefur sinnt þjónustunni undanfarin ár og mun halda
sama fyrirkomulagi á þjónustunni og verið hefur. Markmið ferðaþjónustu fyrir
fatlað fólk í Reykjanesbæ er að gera fólki kleift að stunda vinnu, nám eða sækja
sér þjónustu á sérhæfðar þjónustustofnanir.
Ferðaþjónusta Reykjaness áfram
með akstur fólks með fötlun
Margrét Arna Eggertsdóttir og Kjartan Már Kjartansson við undirritun samnings
um akstursþjónustu fyrir fólk með fötlun. Mynd af vef Reykjanesbæjar.
■ Kiwanisklúbburinn Keilir er með
sína árlegu jólatréssölu í Húsasmiðj-
unni. Auk trjáa eru í boði leiðis-
krossar og skreyttar greinar. Þetta
er stærsta fjáröflun Keilis og rennur
allur ágóði til líknarmála. Það er
hluti af jólahefð hjá fjölmörgum fjöl-
skyldum á Suðurnesjum að kaupa
jólatré af Kiwanisklúbbnum og færir
hann þeim sínar bestu þakkir fyrir,
segir í tilkynningu frá klúbbnum.
Í upphafi sölunnar voru afhentir
styrkir til Velferðarsjóðs og Fjöl-
skylduhjálpar líkt og undanfarin ár,
Skúli Magnússon forseti Keilis og
Arnar Ingólfsson formaður styrktar-
nefndar sáu um afhendingu styrkj-
anna. Þórunn Þórisdóttir tók við
styrknum fyrir hönd Velferðarsjóðs
og Anna Valdís Jónsdóttir fyrir hönd
Fjölskylduhjálpar. Anna Valdis notaði
þetta tækifæri og afhendi Kiwanis-
klúbbnum viðurkenningu Fjölskyldu-
hjálpar, Hjálparengil 2016.
Arnar og Björn með Þórunni frá Velferðarsjóði Suðurnesja.Arnar og Björn afhentu Önnu Valdísi
styrk frá Kiwanisklúbbnum.
Óska Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári
Kærar þakkir fyrir stuðninginn á liðnum árum.
Lifið heil, Páll Valur Björnsson
Verðlaunuð verða íþróttakona og íþróttakarl hjá hverri deild
og síðan þau sem hljóta heiðurinn að vera íþróttafólk UMFN 2016.
Hófið verður haldið í Íþróttahúsinu í Njarðvík, fundarsal UMFN,
þriðjudaginn 27. desember nk. og hefst kl. 17:30.
Við hvetjum alla til að mæta og samfagna okkar frábæra íþróttafólki.
Aðalstjórn UMFN
Val á íþróttafólki ársins 2016
Ungmennafélag Njarðvíkur
Verzlun
Fjölskylduhjálpar
Íslands
Baldursgötu 14, Reykjanesbæ
Iðufelli 14, Reykjavík
Opið alla virka daga milli 13-18
Ekta
leðurhanskar
fyrir dömur
3.900 kr
Falleg grein
á leiðið
1.990 kr
Kiwanismenn afhentu styrki