Víkurfréttir - 22.12.2016, Síða 36
36 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Flutningaskipið Wilson Muuga stímdi
beint til lands á fullri ferð án þess að
áhöfnina grunaði hvað framundan
væri. Þetta kom fram í sjóprófum sem
fram fóru í Héraðsdómi Reykjaness
vegna strandsins. Kom í ljós að bæði
sjálfsstýring skipsins og svokallaður
gírókompás biluðu. Gírókompásinn
sýndi stefnu í hásuður þótt skipið
hefði í raun hrakist af leið vegna
hliðarvinds. Í sjóprófunum kom fram
að gert hefði verið við gírókompásinn
í byrjun desember vegna bilunar.
Yfirstýrimaður skipsins, sem var við
stjórnvölinn þegar skipið strandaði,
vissi hins vegar ekki af viðgerðinni.
Beiðni um dráttarbát barst frá Wilson
Muuga seint um nótt. Í fyrstu var
ekki vitað hvar skipið væri strandað
en björgunarskip voru send út bæði
frá Sandgerði og Grindavík. Skip-
ið fannst svo langt uppi í fjöru við
Hvalsneskirkju. Viðbragðsaðilar settu
upp aðstöðu við Hvalsneskirkju en
þaðan sást vel yfir strandstaðinn.
Danska varðskipið Triton heyrði
hjálparbeiðnina frá Wilson Muuga
og bauð fram aðstoð sína. Var létta-
bátur sjósettur frá skipinu með átta
mönnum. Mjög þung alda var úti
fyrir Sandgerði, ölduhæðin margir
metrar og aðstæður mjög erfiðar.
Léttabátnum hvolfdi í brimgarðin-
um ekki langt frá strandstað. Við
þetta slys breyttist atburðarásin.
Bátsmennirnir voru hætt komnir
í brimsköflunum þegar bát þeirra
hvofldi. Mannskapurinn var mjög
vel þjálfaður og höfðu þeir náð að
krækja sig saman þegar áhöfn þyrlu
Landhelgisgæslunnar fann þá. Einn
þeirra drukknaði en gat hafði komið
á björgunarbúning hans en hinum
var bjargað með ævintýralegum hætti
úr öldum sem voru á hæð við þriggja
hæða hús og vann þyrlusveit Lands-
helgisgæslunnar þar mikið afrek.
Allar björgunarsveitir á Suðurnesj-
um höfðu á þessum tímapunkti
verið kallaðar út og þá var óskað
eftir aðstoð björgunarsveita af
höfuðborgarsvæðinu með mesta
forgangi. Hluti björgunarliðsins
vann að aðgerðum við strandstað
Wilson Muuga á meðan aðrir tóku
þátt í leit að danska sjóliðanum.
Samskiptin við skipstjóra Wilson
Muuga gengu erfiðlega framan af.
Hann vildi ekki láta bjarga áhöfninni
frá borði en björgunarsveitir höfðu
frá því í birtingu unnið að því að
koma línu um borð í skipið. Einnig
voru þyrlur Landhelgisgæslunnar
tiltækar til að hífa áhöfnina í land.
Skipstjórinn vildi hins vegar bara fá
dráttarbát til að draga skipið á flot og
halda ferðinni til Rússlands áfram.
Hann gerði sér enga grein fyrir að-
stæðum og hversu langt upp í fjöruna
skipið var komið. Skipbrotsmenn
voru þó fluttir í land þegar líða tók á
daginn og síðdegis þann 19. desem-
ber hafði öll áhöfnin verið flutt í land
með þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Þegar Wilson Muuga strandaði
aðfaranótt 19. desember 2006 voru
aðstæður mjög slæmar á strandstað,
vaxandi straumur, áhlaðandi og mik-
ill vindur. Spáð var áframhaldandi
roki næstu daga. Um borð í skipinu
voru 145 tonn af svartolíu og 33 tonn
af annarri olíu. Var í upphafi óttast
að olía úr skipinu gæti komist út í
umhverfið og valdið mengunarslysi
og var strax hafist handa við að gera
ráðstafanir til að fjarlægja olíuna
úr skipinu. Tókust þær aðgerðir
giftusamlega og lítil olía komst út í
umhverfið og olli hverfandi skaða.
Sólarhring eftir strandið töldu menn
litlar líkur á að hægt yrði að bjarga
Wilson Muuga af strandstað. Gunnar
Stefánsson hjá Landsbjörgu sagði í
samtali við Víkurfréttir sólarhring
eftir strandið að það stórsæi á botni
skipsins eftir að hafa lamist til í óveðr-
inu sólarhringinn á undan. Talsverð-
ur leki var kominn í skipið, í lestar og
víðar. Slæm veðurspá var yfirvofandi
og því ljóst að erfitt yrði að koma
fyrir búnaði til að dæla sjó úr skipinu,
sagði í frétt daginn eftir strandið.
Þá var búið að leggja veg að strand-
stað strax daginn eftir strand skipsins
til að auðvelda aðkomu að fjörunni
en um 400 metrar voru frá fjöru-
kambi að skipinu. Gunnar Stefánsson
sagði á vef Víkurfrétta líklegt að að
nýtt Víkartindsmál væri í uppsiglingu.
Skipið snérist mikið á strandstaðnum
fyrsta sólarhringinn. Þá voru allir
botntankar skipsins rifnir og hætta
var á að skipið liðaðist í sundur en
sprungur voru komnar í plötumót.
Björgunarsveitarfólk á Suðurnesj-
um var kallað út á aðfangadag
2006 til að leita að olíublautum
fugli nærri strandstað en vart hafði
orðið við olíuleka frá skipinu.
„Bæjarráð Sandgerðisbæjar telur
algjört forgangsatriði að olíu úr Wil-
son Muuga verði hið fyrsta komið
á land til að koma í veg fyrir um-
hverfisslys á fjörum og við strendur
bæjarfélagsins af völdum olíumeng-
unar. Bæjarráð vill hins vegar taka
fram að gæta þarf fyllsta öryggis
á strandstað og að starfsmönnum
verði ekki stefnt í voða í ljósi þess
að nú þegar hefur einn látist
Áratugur er liðinn síðan flutningaskipið Wilson Muuga strandaði í Hvalsnesfjöru við Sandgerði. Strandið átti sér stað seint um nótt þann 19. desember 2006.
Fjórtán manna áhöfn var á flutningaskipinu. Í aðdraganda björgunaraðgerða fórst bátsmaður af léttabáti frá danska varðskipinu Triton.
STÍMDI BEINT TIL
LANDS Á FULLRI FERÐ
ÁRATUGUR FRÁ STRANDI WILSON MUUGA Í HVALSNESFJÖRU VIÐ SANDGERÐI
(framhald í næstu opnu)
Léttabát af danska varðskipinu Triton rak
upp í fjöru á Hvalsnesi eftir að hafa hvolft
í brimrótinu þar sem einn bátsverji fórst.
Mikill viðbúnaður björgunarliðs á
fjörukambinum við Hvalsnes.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is