Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 36

Víkurfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 36
36 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR Flutningaskipið Wilson Muuga stímdi beint til lands á fullri ferð án þess að áhöfnina grunaði hvað framundan væri. Þetta kom fram í sjóprófum sem fram fóru í Héraðsdómi Reykjaness vegna strandsins. Kom í ljós að bæði sjálfsstýring skipsins og svokallaður gírókompás biluðu. Gírókompásinn sýndi stefnu í hásuður þótt skipið hefði í raun hrakist af leið vegna hliðarvinds. Í sjóprófunum kom fram að gert hefði verið við gírókompásinn í byrjun desember vegna bilunar. Yfirstýrimaður skipsins, sem var við stjórnvölinn þegar skipið strandaði, vissi hins vegar ekki af viðgerðinni. Beiðni um dráttarbát barst frá Wilson Muuga seint um nótt. Í fyrstu var ekki vitað hvar skipið væri strandað en björgunarskip voru send út bæði frá Sandgerði og Grindavík. Skip- ið fannst svo langt uppi í fjöru við Hvalsneskirkju. Viðbragðsaðilar settu upp aðstöðu við Hvalsneskirkju en þaðan sást vel yfir strandstaðinn. Danska varðskipið Triton heyrði hjálparbeiðnina frá Wilson Muuga og bauð fram aðstoð sína. Var létta- bátur sjósettur frá skipinu með átta mönnum. Mjög þung alda var úti fyrir Sandgerði, ölduhæðin margir metrar og aðstæður mjög erfiðar. Léttabátnum hvolfdi í brimgarðin- um ekki langt frá strandstað. Við þetta slys breyttist atburðarásin. Bátsmennirnir voru hætt komnir í brimsköflunum þegar bát þeirra hvofldi. Mannskapurinn var mjög vel þjálfaður og höfðu þeir náð að krækja sig saman þegar áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar fann þá. Einn þeirra drukknaði en gat hafði komið á björgunarbúning hans en hinum var bjargað með ævintýralegum hætti úr öldum sem voru á hæð við þriggja hæða hús og vann þyrlusveit Lands- helgisgæslunnar þar mikið afrek. Allar björgunarsveitir á Suðurnesj- um höfðu á þessum tímapunkti verið kallaðar út og þá var óskað eftir aðstoð björgunarsveita af höfuðborgarsvæðinu með mesta forgangi. Hluti björgunarliðsins vann að aðgerðum við strandstað Wilson Muuga á meðan aðrir tóku þátt í leit að danska sjóliðanum. Samskiptin við skipstjóra Wilson Muuga gengu erfiðlega framan af. Hann vildi ekki láta bjarga áhöfninni frá borði en björgunarsveitir höfðu frá því í birtingu unnið að því að koma línu um borð í skipið. Einnig voru þyrlur Landhelgisgæslunnar tiltækar til að hífa áhöfnina í land. Skipstjórinn vildi hins vegar bara fá dráttarbát til að draga skipið á flot og halda ferðinni til Rússlands áfram. Hann gerði sér enga grein fyrir að- stæðum og hversu langt upp í fjöruna skipið var komið. Skipbrotsmenn voru þó fluttir í land þegar líða tók á daginn og síðdegis þann 19. desem- ber hafði öll áhöfnin verið flutt í land með þyrlum Landhelgisgæslunnar. Þegar Wilson Muuga strandaði aðfaranótt 19. desember 2006 voru aðstæður mjög slæmar á strandstað, vaxandi straumur, áhlaðandi og mik- ill vindur. Spáð var áframhaldandi roki næstu daga. Um borð í skipinu voru 145 tonn af svartolíu og 33 tonn af annarri olíu. Var í upphafi óttast að olía úr skipinu gæti komist út í umhverfið og valdið mengunarslysi og var strax hafist handa við að gera ráðstafanir til að fjarlægja olíuna úr skipinu. Tókust þær aðgerðir giftusamlega og lítil olía komst út í umhverfið og olli hverfandi skaða. Sólarhring eftir strandið töldu menn litlar líkur á að hægt yrði að bjarga Wilson Muuga af strandstað. Gunnar Stefánsson hjá Landsbjörgu sagði í samtali við Víkurfréttir sólarhring eftir strandið að það stórsæi á botni skipsins eftir að hafa lamist til í óveðr- inu sólarhringinn á undan. Talsverð- ur leki var kominn í skipið, í lestar og víðar. Slæm veðurspá var yfirvofandi og því ljóst að erfitt yrði að koma fyrir búnaði til að dæla sjó úr skipinu, sagði í frétt daginn eftir strandið. Þá var búið að leggja veg að strand- stað strax daginn eftir strand skipsins til að auðvelda aðkomu að fjörunni en um 400 metrar voru frá fjöru- kambi að skipinu. Gunnar Stefánsson sagði á vef Víkurfrétta líklegt að að nýtt Víkartindsmál væri í uppsiglingu. Skipið snérist mikið á strandstaðnum fyrsta sólarhringinn. Þá voru allir botntankar skipsins rifnir og hætta var á að skipið liðaðist í sundur en sprungur voru komnar í plötumót. Björgunarsveitarfólk á Suðurnesj- um var kallað út á aðfangadag 2006 til að leita að olíublautum fugli nærri strandstað en vart hafði orðið við olíuleka frá skipinu. „Bæjarráð Sandgerðisbæjar telur algjört forgangsatriði að olíu úr Wil- son Muuga verði hið fyrsta komið á land til að koma í veg fyrir um- hverfisslys á fjörum og við strendur bæjarfélagsins af völdum olíumeng- unar. Bæjarráð vill hins vegar taka fram að gæta þarf fyllsta öryggis á strandstað og að starfsmönnum verði ekki stefnt í voða í ljósi þess að nú þegar hefur einn látist Áratugur er liðinn síðan flutningaskipið Wilson Muuga strandaði í Hvalsnesfjöru við Sandgerði. Strandið átti sér stað seint um nótt þann 19. desember 2006. Fjórtán manna áhöfn var á flutningaskipinu. Í aðdraganda björgunaraðgerða fórst bátsmaður af léttabáti frá danska varðskipinu Triton. STÍMDI BEINT TIL LANDS Á FULLRI FERÐ ÁRATUGUR FRÁ STRANDI WILSON MUUGA Í HVALSNESFJÖRU VIÐ SANDGERÐI (framhald í næstu opnu) Léttabát af danska varðskipinu Triton rak upp í fjöru á Hvalsnesi eftir að hafa hvolft í brimrótinu þar sem einn bátsverji fórst. Mikill viðbúnaður björgunarliðs á fjörukambinum við Hvalsnes. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.