Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 68

Víkurfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 68
68 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR Keflavík er á toppi Domino’s deildar kvenna. Liðið er skipað ungum leikmönnum sem hafa komið upp úr yngri flokkum liðsins. Á meðal þeirra eru þær Thelma Dís Ágústsdóttir, Emelía Ósk Gunn- arsdóttir og Birna Valgerður Benonýsdóttir en þær hafa spilað stórt hlutverk í leik liðsins á tímabilinu. Allar hafa þær orðið lykilleikmenn umferðarinnar og vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á tímabilinu. Þær æfa allt að fimm sinnum í viku ásamt því að stunda lyftingar. Við fengum þessar efnilegu og ungu stelpur til þess að svara nokkrum spurningum. ●● Höfum●komið●mörgum●skemmtilega●á●óvart●● Frábær●liðsheild●sem●nær●vel●saman „TELJUM OKKUR ALVEG GETA AXLAÐ ÞESSA ÁBYRGГ Thelma Dís Ágústsdóttir er 18 ára og spilar með unglinga- og meistaraflokki Keflavíkur. Hún hefur spilað með U15, U16, U18 ára landsliðum Íslands og nú síðast tvo landsleiki með A-landsliðinu. Hún byrjaði að æfa 5 ára en móðir hennar var í körfu og fór með hana á fyrstu æfinguna. Upp yngri flokkana voru Haukar alltaf erfiðasti andstæðingur- inn en í meistaraflokki er það Snæfell. „Mér finnst bara gaman að fá svona stórt hlutverk á þessu tíma- bili. Þetta er fjórða tímabilið okkar Emelíu í meistaraflokki og við teljum okkur alveg geta axlað þessa ábyrgð. Tímabilið er búið að vera mjög skemmtilegt, enda er okkur búið að ganga mun betur en búist var við af okkur. Það er skemmtilegt á æfingum, við erum frábær liðsheild sem nær vel saman og ekki má gleyma þjálfurunum og kvennaráðinu sem eru að standa sig gríðarlega vel,“ segir Thelma. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Elf er uppáhalds jólamyndin mín og kemur mér yfirleitt í mikið jólaskap. Uppáhalds jólalag? Kósýheit par exelans með Baggalút er uppáhalds jólalagið. Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Rétt fyrir jól fer ég bíltúr og ber út jólakort fyrir fjölskylduna með frænkum mínum. Fjölskyldan fer líka alltaf í jólaboð til ömmu og afa. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Eftirminnilegasta jólagjöfin er ör- ugglega sjónvarp sem ég fékk frá mömmu og pabba fyrir tveimur árum og þurfti að leita að því út um allt hús. Hvað er í matinn á aðfangadag? Við borðum alltaf ham- borgarhrygg á aðfangadag. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Möm mu köku r nar hj á ömmu og skinkuhornin hennar mömmu koma með jólin. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndar- málinu um jólasveininn? Ég var svolítið svekkt en sagði mömmu og pabba ekkert frá því þegar ég komst að leyndarmálinu um jóla- sveininn þannig að ég hélt áfram að fá í skóinn í nokkur ár. Hvernig verð þú jóladegi? Náttföt, hangikjöt og NBA einkenna jóladag. Sjónvarpsþættir: Núna er ég að klára Person Of Interest sem eru mjög góðir. Ég held samt að það sé ekkert að fara að toppa Friends. Kvikmynd: Stella í Orlofi. Hljómsveit/tónlistarmaður: Beyoncé. Leikari: Will Smith. Skyndibiti: Langbest. Tónlist í laumi: Mér finnst ABBA lögin alltaf góð. Hver myndi vinna í 21? Úff, ég veit ekkert hver myndi vinna í 21. Ætli við þurfum ekki bara að taka leik? Emelía Ósk Gunnarsdóttir hefur spilað með U15, U16, U18 á yngra ári og eldra og A- landsliðinu. Hún er 18 ára og byrjaði að æfa körfu 7 ára, áhug- inn kviknaði af því að bróðir hennar æfði og hana langaði að prófa. Erfiðasti andstæðingurinn er Snæfell. „Mér finnst mjög gaman að spila í meistaraflokki og ennþá skemmtilegra að vera með svona stórt hlutverk í þessum flokki. Tímabilið hefur byrjað mjög vel og skemmtilega og við höfum komið mörgum skemmtilega á óvart.“ Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? How the Grinch Stole Christmas kemur mér í jólaskapið. Uppáhalds jólalag? Uppáhalds jólalagið er Snjókorn falla Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Það hefur alltaf verið hefð að krakk- arnir á heimilinu skreyti tréð. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Eftirminnilegasta jólagjöfin er uppblásna kórónan mín. Hvað er í matinn á aðfanga- dag? Á aðfangadag eru rjúpur í matinn en við systurnar borðum ekki rjúpu svo við fáum oftast hamborgara- hrygg. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Þegar ég er búin í prófum og það er byrjað að snjóa þá eru jólin komin. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Ég man ekki eftir því hvernig ég brást við leyndarmáli jólasveins- ins. Hvernig verð þú jóladegi? Á jóladegi er morgunganga með fjölskyldunni og seinna um dag- inn förum við í jólaboð. Sjónvarpsþættir: One Tree Hill. Kvikmynd: Love and Basketball. Hljómsveit/tónlistarmaður: Zara Larsson. Leikari: Jim Carrey. Skyndibiti: Saffran og Serrano. Tónlist í laumi: River Flows in You. Hver myndi vinna í 21? Thelma myndi pottþétt vinna í 21. Birna Valgerður Benonýsdóttir er 16 ára og spilar með unglingaflokki og meistaraflokki. Hún hefur verið þrisvar sinnum í landsliði, U15 árin 2014 og 2015 og U16 árið 2016 og var einnig valin í 15 manna æfingahóp A- landsliðsins fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni EuroBasket í haust. „Ég byrjaði að æfa í fyrsta bekk, vegna þess að mamma mín spilaði einhvern tíma og mér fannst þetta rosalega spenn- andi. Í yngri flokkunum var það alltaf Grindavík hjá mér, en núna eru öll liðin frekar jöfn bara. Mér finnst mjög gaman að fá tækifæri til þess að spila í efstu deild, frábær hópur og mjög skemmtilegt að spila með öllum þessum stelpum. Þetta er fyrsta tímabilið mitt í meistaraflokki og deildin hefur alveg staðist mínar væntingar.“ Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Harry Potter maraþon er klassískt um há- tíðarnar, kemur mér alltaf í hátíðarskap. Uppáhalds jólalag? Ég bara hef ekki hugmynd. Ertu vanaföst um jólin, er eitt- hvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Amma og afi koma alltaf til okkar á aðfangadag og við borðum ham- borgarahrygg saman, svo jólaboðin hjá fjölskyldunni. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég fékk gallabuxur frá mömmu og pabba ein- hvern tíma fyrir löngu. Þær eru eiginlega ógleyman- legar. Hvað er í matinn á aðfangadag? Hamborgarahryggur. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Þegar allir eru byrjaðir að borða á aðfangadag. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Hvaða leyndarmáli??? Hvernig verð þú jóladegi? Uppi í sófa í náttfötum að horfa á myndir með fjölskyldunni og borða nammi. Sjónvarpsþættir: Ætli það sé ekki SKAM. Kvikmynd: Það eru alltof margar. Hljómsveit/tónlistarmaður: Þeir eru einnig rosalega margir. Leikari: Johnny Depp hefur alltaf verið í uppáhaldi. Skyndibiti: Ætli það sé ekki Villi bara. Tónlist í laumi: Tónlist frá ’00 er lúmskt góð stundum. Hver myndi vinna í 21? Thelma Dís.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.