Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Qupperneq 25
fólk - viðtal 25Helgarblað 24. nóvember 2017 að vera á feti í nokkra klukkutíma með halarófuna á eftir sér.“ Byrjuðu á vitlausum enda Heiðar Örn Kristjánsson hefur verið samferðamaður Haralds í tónlist um langt skeið, í hljóm­ sveitunum Botnleðju og Pollapönki. „Heiðar er Hafn­ firðingur og við vissum alltaf af hvor öðrum. Við spiluðum stund­ um borðtennis og breikuðum á pappaspjaldi en við kynntumst almennilega í Flensborg í kring­ um 1990. Við töluðum mikið um tónlist í frímínútum og heima hjá mér var trommusett sem bróðir minn átti. Við fórum því heim í eyðum til að fikta í hljóðfærun­ um.“ Fram að þessum tíma hafði Haraldur varla snert á trommu­ kjuðum af neinu viti. Haraldur var í tveimur hljóm­ sveitum, Dive og Amma rúsína, áður en hann stofnaði Botnleðju undir lok árs 1994 með Heiðari og Ragnari Páli Steinssyni bassa­ leikara. Hljómsveitin spilaði ein­ falt en þétt rokk og vann Músík­ tilraunir Tónabæjar hálfu ári eftir að hún var stofnuð. Haraldur hlær þegar hann er spurður að því hvort þeir hafi verið rokkstjörnur. „Já, í einhverjum skilningi þess orðs. Fólk vildi fá eiginhandar­ áritanir og við upplifðum okkur sem semi­merkilega á tímabili. Jarðvegurinn var mjög góður fyrir eitthvað eins og þetta. Kannski var einhver ládeyða í gangi á þessum tíma og við voru sennilega réttir menn á réttum tíma.“ Fyrir sigurlaunin tók Botn­ leðja upp sína fyrstu breiðskífu, Drullumall, og gaf út sama ár. „Við tókum hana upp á einhverj­ um 24 stúdíótímum sem er ekki einu sinni lag í dag, við keyrðum þetta í gegn. Hún er hrá og barn síns tíma.“ Ári síðar tóku þeir upp sína aðra plötu en þá var rokk­ stjörnulífið tekið upp á næsta stig því þeir komust í kynni við með­ limi bresku hljómsveitarinnar Blur sem tóku upp breiðskífu hér á landi. „Við vorum að spila á Tunglinu eitt kvöldið og þeir komu á tón­ leikana. Þeir urðu svo hrifnir að þeir komu og töluðu við okkur baksviðs og við vorum mjög upp með okkur að hitta slíkar stór­ stjörnur.“ Haraldur segist hafa skotið því inn í umræðurnar að Botnleðja myndi hita upp fyr­ ir Blur einhvern daginn og það varð raunin skömmu síðar þegar hljómsveitirnar stigu á svið í Laugardalshöll. Þetta voru þó ekki lokin á þeirra samstarfi því ákveðið var að Botnleðja færi út til Bretlands til að hita upp á tón­ leikaferðalagi Blur. „Við byrjuðum í þessu á algjör­ lega vitlausum enda. Við höfðum aldrei spilað utan Íslands áður en þarna fórum við í túr með einu stærsta bandi Bretlands og það var uppselt á öll gigg. Þetta var absúrd.“ Haraldur segir að heima­ menn hafi tekið hljómsveitinni vel. „Fjöldi fólks kom þegar við vorum að spila en það kunni auð­ vitað engin deili á okkur. Að ráð­ leggingum Damons Albarn þá breyttum við um nafn og hétum Silt. Ég held að það hafi verið mis­ tök. Við hefðum átt að heita Botn­ leðja áfram.“ Einn þrálátasti orðrómur ís­ lenskrar tónlistarsögu er sá að Blur hafi stælt Song 2, einn stærsta smellinn, eftir Botnleðju. „Það vilja margir meina það. Þeir voru klárlega undir áhrifum en þetta er ekki stolið. Við vorum undir áhrifum frá þeim þannig að það var gaman að sjá að þeir voru undir áhrifum frá okkur líka. Við vorum stoltir af því.“ Á þessum tíma snerist allt um að landa stórum plötusamningi og „meika'ða“ erlendis. „Allt gerð­ ist mjög hratt hjá okkur, við unn­ um músíktilraunir og ferðuðumst með Blur. Okkur fannst eðlilegt að næsta skref yrði heimsfrægð. En auðvitað var það ekkert eðlilegt. Við héldum að við værum að fá plötusamning hjá Island Records og það samtal var komið nokkuð langt á veg. En starfsmaðurinn sem vildi fá okkur á samning var rekinn og því varð ekkert úr okk­ ar samningi.“ Síðar gerðu þeir samning við norskt plötufyrir­ tæki og fóru í hljómleikaferðalag um Noreg. „Við hefðum ábyggi­ lega getað farið með þetta miklu lengra ef við hefðum haft þolin­ mæðina og skipulagið í það. Við höfðum alltaf gaman af þessu og lögðum mikinn metnað í allt sem við gerðum. Að verða heimsfrægir hætti að vera eitthvert mál fyrir okkur.“ Náði til fjörugra stráka Botnleðja hefur aldrei hætt en starfsemin hefur verið mismikil í gegnum tíðina. Haraldur segir hljómsveitina hafa verið „í híði“ síðan 2013. Haraldur og Heiðar hafa hins vegar verið þekktir sem rauði polli og blái polli í hljóm­ sveitinni Pollapönk sem hófst sem útskriftarverkefni þeirra í Kennaraháskólanum. Báðir unnu þeir sem leiðbeinendur á leik­ skóla og fyrir tilviljun hófu þeir nám í leikskólakennarafræðum á sama tíma. „Það hentaði mér afar vel að vinna í leikskóla. Ég fékk að vera ég sjálfur og nálgaðist hlutina ekki alltaf eins og samkennarar mínir. Ég hafði ólíkan bakgrunn en flestir sem störfuðu með mér. Einhverra hluta vegna náði ég til ákveðins hóps barna, sérstaklega stráka sem létu hafa mikið fyrir sér. Ég átti mjög auðvelt með að eiga við þannig týpur.“ Hann seg­ ist þekkja það af eigin raun. „Ég var sjálfur fjörugur sem barn. Mér finnst svona börn skemmtileg þótt þau geti verið krefjandi. Þau eru orkumikil og þurfa ákveðið rými og ramma til að funkera.“ Haraldur hafði lítið spilað á gítar áður en hann byrjaði að vinna á leikskóla og kunni aðeins nokk­ ur grip. „Þarna færðu mikið frelsi og þú ert að skapa. Gítarinn var þarna og ég fór að búa til lög strax og börnin tengdu við það.“ Árið 2001 gaf hann út barnasólóplötu sem hét Hallilúja. „Sú plata er að miklu leyti sýn óþekka stráksins á tilveruna.“ Haraldur hafði ekki klárað stúdentsprófið í Flensborg en komst inn í Kennaraháskólann vegna aldurs og starfsreynslu. „Ég vissi ekkert hvort ég gæti þetta. Mér gekk vel í námi fram á ung­ lingsár en þá hætti ég að nenna þessu. Ég er þannig að ég get náð árangri í því sem ég hef áhuga á og þetta gekk mjög vel.“ Hann segir takmarkið með útskriftar­ verkefninu ekki hafa verið að stofna hljómsveit og dregur upp úr skúffu innbundna ritgerð með áföstum geisladisk. „Þetta er rit­ gerðin. Við skrifuðum um barna­ menningu og tengdum lögin við ýmislegt fræðilegt í okkar námi. Platan sjálf var í raun yfirvinna.“ Upp úr riðlinum Haraldur segir ekki reginmun á því að spila fyrir börn og full­ orðna, nema hvað varðar tíma­ setningarnar því hann er ekki mikill næturhani. „Við höfum reynt að nálgast Pollapönk út frá því að bæði börn og fullorðnir geti tengt við það á sinn hátt. Við setj­ um okkur ekki í neinar stellingar til að semja lög sérstaklega fyrir börn og textarnir eru oft tvíræðir.“ Pollapönk náði gífurlegum vinsældum og sennilega er ein­ hver plata þeirra til í hverjum ein­ asta skutbíl landsins. Hápunkt­ inum var náð þegar þeir unnu Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2014 og héldu til Kaupmanna­ hafnar á Eurovision. Þar náðu þeir 15. sæti og eru síðasta ís­ lenska atriðið til að komast upp úr undanriðlinum. „Þessi Eurovision­tími var klikkaður, þetta var geggjað stuð. Mig minnir að við höfum unnið. Þegar við komum heim var kom­ ið fram við okkur þannig af því að við komumst upp úr riðlinum. Við vissum að við værum ekki að vinna en takmarkið var að komast upp úr riðlinum því það er bara þrautin þyngri. Við lögðum „Ég fór í rannsóknir og það kom til tals að gefa mér eitthvert hormónatrukk Gaflari „Hluti af sjálfsmyndinni er að vera Hafnfirðingur.“ MyNd SiGtryGGUr Ari rauði polli „Mig minnir að við höfum unnið.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.