Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 28
28 sakamál Helgarblað 24. nóvember 2017
n Peter var auðugur svartagaldursbrallari n Margaret ásældist auð hans
M
iðvikudaginn 5. júlí, 2006,
var Margaret James, þá
58 ára, frá Porthoustock
í Cornwall á Bretlandi,
dæmd, í dómhúsinu í Truro í
Cornwall, til 20 ára fangelsisvistar.
Orme bjó í Valhöll
Þungamiðja málsins var Peter
nokkur Solheim heitinn. Í lif-
anda lífi hafði Peter verið auðug-
ur, sveitarstjórnarmaður í Budock
Water í Cornwall og fyrrverandi
prentari. Hann hafði haft mikið
dálæti á göldrum og þóttist vera
seiðskratti mikill, Orme (dreki), og
kallaði heimili sitt Valhöll.
Auður Peters var af öllu
jarðneskari toga, meðal annars
tilkominn vegna höndlunar með
antíkskotvopn og klám og hann
átti skuldlaust heimili sitt í Carn-
kie og heimili móður sinnar í
Budock Waters.
Svartigaldur og heiðni
Peter og Margaret höfðu deilt
rekkju um þónokkurt skeið ásamt
því að eiga sameiginleg áhugamál
önnur; peninga, kynlíf, galdra,
pillur og töfraseyði ýmiss konar,
heiðni og svartagaldursbrall og var
trúleysi Peters alkunna. Að sögn
fannst Margaret og Peter indælt
að sitja niðri á strönd og horfa á
sólsetrið, en lítið fór fyrir trausti í
sambandi þeirra.
Skilnaður í bígerð
En blikur voru á lofti í sambandi
Peters og Margaret og ýmisleg í bí-
gerð sem Margaret hugnaðist lítt.
Hún hafði nefnilega hlerað að Pet-
er hygðist kasta níu ára sambandi
þeirra fyrir róða og taka saman
við Jean Knowles sem hann hafði
þekkt í tvo áratugi og reyndar átt í
ástarsambandi við.
Til að bíta höfuðið af
skömminni þá myndi Margar-
et ekki fá einn eyri úr fjárhirslum
Peters.
Veiðiferð á meginlandinu
Við slíkt varð ekki unað og Margar-
et sá að aðgerða var þörf, engin
vettlingatök dygðu og óþarfi að
draga lappirnar. Þann 16. júní,
2004, sást Peter síðast á lífi en
smáskilaboð sem Jean Know-
les bárust gáfu til kynna að hann
hefði skroppið með vinum sínum
til meginlands Evrópu, Frakklands
eða Spánar nánar tiltekið, í veiði-
ferð.
Mannauð skekta
Skekta Peters fannst á reki skammt
frá Falmouth á suðurströnd
Cornwall þann 17. júní og daginn
eftir sáu sjómenn líkið af Peter þar
sem það maraði í hálfu kafi um
átta kílómetra út af Black Head-
höfða á Lizard-skaga í Cornwall.
Nokkuð ljóst mátti telja að Peter
var ekki við veiðar á meginlandi
Evrópu, en engu að síður bárust
Jean enn smáskilaboð frá Peter
sem gáfu slíkt til kynna.
Fjármunir á röngu heimili
Áhugi lögreglunnar var vakinn og
jókst enn frekar þegar í ljós kom
að Peter hafði verið byrluð ólyfjan,
hann sætt pyntingum og að lokum
drukknað.
Sjónir lögreglunnar beindust
að Margaret og þótti fljótlega ljóst
að hún hefði óhreint mjöl í poka-
horninu. Peter hafði geymt fúlg-
ur fjár á heimili sínu en við leit
þar fann lögreglan ekki nema 20
sterlingspund. Á heimili Margaret
hins vegar fundust tæplega 25.000
sterlingspund.
Pyntaður tímum saman
Sökum líkamsburða Margaret
var talið víst að hún hefði ekki
verið ein að verki. Hún hafði ráð-
ið til starfa tvo hrotta sem gengu
í skrokk á Peter í um 36 klukku-
stundir að Margaret viðstaddri.
Honum var gefið lyf og hann
síðan barinn víða um
skrokkinn. Liðamót voru
illa farin, önnur hnéskelin
kurlið eitt og önnur stóra
táin hékk á lyginni.
Einnig báru fingur
hans þess merki að hr-
ingar hefðu verið fjar-
lægðir með valdi. Peter
hafði síðan verið varpað
lifandi í hafið.
Síðbúin
smáskilaboð
Margaret hafði að
þessu loknu gripið til
þess ráðs að nota síma
Peters til að senda Jean
smáskilaboð, en far-
ið örlítið fram úr sér og
sent nokkur þeirra eftir að
lík Peters hafði fundist. „Það
sem þú skipulagðir var hræði-
legur og hægur dauð-
dagi,“ sagði dóm-
arinn þegar
hann
kvað
upp tuttugu ára dóm yfir Margaret
James. n
Peter Solheim og Margaret James (t.h.)
Svartigaldur og töfraseyði voru þeirra ær og kýr.
Pyntaður og myrtur Margaret sætti sig
ekki við áform Peters.„Það sem þú
skipulagðir var
hræðilegur og hægur
dauðdagi.
Helreið Heiðingjans