Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 40
40 menning Helgarblað 24. nóvember 2017 Í slenskt listalíf hefur á undan­ farinni öld í síauknum mæli verið drifið áfram af erlendum áhrifum og tengslum. Íslensk­ ir listamenn hafa ekki bara leitað út fyrir landsteinana að menntun og áhrifavöldum heldur hafa að­ fluttir listamenn ítrekað borið með sér nýja strauma og auðg­ að menningarlíf eylandsins. Á fyrri hluta tuttugustu aldarinnar fluttu hingað erlendir tónlistar­ menn til og höfðu afgerandi áhrif á uppbyggingu íslensks tón­ listarlífs – menn eins og Victor Urbancic, Franz Mixa og Heinz Edelstein. Í myndlistinni eru áhrif Svisslendingsins Dieters Roth óumdeild, og má að vissu leyti segja að hann hafi komið með samtímalistina til landsins þegar hann flutti hingað undir lok sjötta áratugarins. Eftir því sem hnattvæðingin hefur orðið ágengari hafa aðfluttir listamenn orðið æ meira áberandi í íslensku menningarlífi, um leið og margir innfæddir hafa haldið utan og gerst innflytjendur annars staðar. Þekking og mannauður ferðast nú svo auðveldlega til og frá eyjunni að það má efast um hvort skýringarrammi þjóðrík­ isins sé svo gagnlegur enn þann dag í dag. Hvað þýðir það eigin­ lega að vera „íslenskur“ listamað­ ur? Þetta er ein af þeim spurning­ um sem gestir geta velt fyrir sér á sýningunni Stór­Ísland sem nú stendur yfir í Listasafni Reykjavík­ ur. Þar eru sýnd verk sjö myndlist­ armanna sem eiga það sameigin­ legt að vera fæddir utan Íslands en hafa búið hér og starfað í lengri eða skemmri tíma. Fulltrúar Íslands Hugmyndasmiður og sýningar­ stjóri Stór­Íslands er Yean Fee Quay. Hún er sjálf aðfluttur Ís­ lendingur, fædd í Singapúr og menntuð í Bandaríkjunum, en fluttist til landsins með íslenskum eiginmanni sínum árið 2000. „Ætli hugmyndin að sýningunni hafi ekki fæðst upphaflega fyrir um tíu árum. Frá því að ég byrjaði að starfa í Listasafninu [árið 2006] hef ég verið í miklu sambandi við alls konar listamenn. Ég fór fljótlega að gera mér grein fyrir því hversu margir erlendir listamenn búa og starfa hérna. Mér fannst áhugavert að þeir létu ekki erfiðleika stoppa sig í að skapa list,“ útskýrir Yean Fee. Þeir listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Anna Hall­ in, Claudia Hausfeld, Jeannette Castioni, Joris Rademaker, Rebecca Erin Moran, Sari Cedergren og Theresa Himmer – nöfn sem að áhugamenn um íslenska myndlist ættu að vera löngu farnir að kannast við. „Í þessari sýningu vildi ég velja inn listamenn sem höfðu verið búsett­ ir hér í þó nokkur ár og höfðu verið viðurkenndir sem íslenskir lista­ menn af öðrum stofnunum, feng­ ið listamannalaun eða aðra styrki, og jafnvel haldið utan til að sýna verk sem fulltrúar Íslands,“ segir Yean Fee. Frekar en að listamennirnir sjö á sýningunni tali einni rödd eru þeir eins og margradda kór sem varpar ljósi á fjölbreytnina í íslenskri myndlist í dag. „Hug­ myndin var ekki að vera með neitt sérstakt þema eða ákveðin skilaboð. Sýningin er ekki um Ís­ land heldur um þessa listamenn og þeirra list. Ísland kemur fyrir í verkum sumra listamannanna en það er ekkert sérstaklega áber­ andi.“ Fjölbreytnin eykst Yean Fee segir að íslenska lista­ senan sé almennt mjög jákvæð og opin í garð aðfluttra listamanna en það séu vissulega alltaf einhverjir erfiðleikar sem fylgja því að aðhaf­ ast í samfélagi með annað móð­ urmál en manns eigið. „Fólk þarf yfirleitt að senda inn umsóknir á íslensku, en erlendir listamenn eru mjög duglegir við að láta þetta ekki stoppa sig. En það er líka æ oftar tekið við umsóknum á öðrum tungumálum, og þá eru stofnanirnar að meta listamenn­ ina sem listamenn en ekki út frá tungumálakunnáttu.“ En er einhver sérstakur þráður sem sameinar sögur þessa fólks? Eru til dæmis svipaðar ástæður fyrir því að það endar á því að setj- ast hér að – eða eru sögurnar eins fjölbreyttar og þær eru margar? „Al­ gengasta ástæðan fyrir því að fólk sest hér að er fjölskyld­ an – það er oft­ ast þannig með fólk, það ger­ ir hluti út af tengslum við aðrar manneskjur. En það eru líka listamenn sem hafa komið hing­ að af engri sérstakri ástæðu eða tengingu og ákveðið að búa hér.“ Hún segir þó að allur gangur sé á því hvort þess­ ir listamenn hugsi um sig sem „íslenska“ listamenn. „Þetta er bara eins og að spyrja íslensk­ an myndlistarmann sem býr og starfar erlendis. Það er orðið mjög erfitt að flokka þetta. Maður tek­ ur eftir því núna að það er sífellt talað minna um að listamaður sé „upphaflega frá“ einhverju landi. Samtímamyndlistin er orðin svo alþjóðleg og ekki bundin við lönd, landa­ mærin eiga ekki að skipta máli lengur.“ Heimurinn er að minnka, landamærin verða stöðugt gegndræpari, hvað er sér­ íslenskt verður óljósara, en á sama tíma eiga sífellt fleiri snertifleti við íslenska menningu og hún stækkar sem því nemur. Það mætti kannski segja að allir þeir sem tengist landinu, samfélaginu, málinu eða menn­ ingunni á einhvern hátt verði hluti af Stór­Íslandi. Þetta gæti verið einn skilningur á nafni sýningar­ innar – en Yean Fee segir það opið fyrir túlkunum. „Sýningarheitið er jafn opið og sýningin sjálf. Það getur vísað í margt, en ég hugsaði að það gæti tengst ákveðinni fjöl­ breytni sem er að þróast á Íslandi. Það væri alveg hægt að halda sýn­ ingu með sama nafni með íslensk­ um listamönnum sem búa erlend­ is. Þetta nafn vísar kannski líka í það hversu stoltir Íslendingar eru af sjálfum sér, en það er ekkert óvenjulegt – öll lönd setja sjálf sig sem miðpunkt.“ Yean Fee verður með leið- sögn um sýninguna Stór-Ísland í Hafnarhúsinu, laugardaginn 26. nóvember klukkan 14.00. n „ Í þessari sýn- ingu vildi ég velja inn listamenn sem höfðu verið búsettir hér í þónokkur ár og höfðu verið viðurkenndir sem íslenskir listamenn. Rek (2015) Eftir Önnu Hallin. Í kastljósinu Sýningarstjórinn Yean Fee Quay varpar ljósi nokkra erlenda listamenn sem búa og starfa á Íslandi í nýrri sýn- ingu í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi. Hér lýsir hún upp verk Joris Radema- ker, 60 tilbrigði (2016). MyndiR SigtRygguR ARi Sundmaðurinn (2015) Theresa Himmer vinn ur með íslenska sundlaugamenningu og bandaríska bókme nntahefð í mynd- bandsverkinu Sundmaðurinn. Ísland stækkar með aðfluttu listafólki n Sjö aðfluttir íslenskir listamenn eiga verk á sýningunni Stór-Ísland n Sýningarstjórinn Yean Fee Quay segir landamærin skipta litlu máli í dag Kristján guðjónsson kristjan@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.