Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Síða 52
Vikublað 24. nóvember 2017 4
Inn
lit
Íbúar
Íris Sævarsdóttir, 32 ára, Andri
Ómarsson, 34 ára, Darri Freyr, 8
ára, Hrannar Þór, 2 ára, og þrífætti
kötturinn Megas.
stærð
100 fermetra íbúð í parhúsi
staður
Herjólfsgata í Hafnarfirði
byggingarár
1945
Bergrún Íris Sævarsdóttir býr í Hafnarfirði ásamt eigin-manni sínum og tveimur
sonum. Sjálf er Bergrún alin upp
í Kópavogi en maðurinn hennar,
Andri Ómarsson, lokkaði listakon-
una yfir bæjarmörkin fyrir mörg-
um árum þegar þau voru að draga
sig saman sem unglingar.
„Andri er bæði Vestmann-
eyingur og Hafnfirðingur, fæddur
í Eyjum en alinn upp í Hafnarfirði.
Það er vel hægt að tilheyra báðum
trúarhópunum á sama tíma en
maður getur samt ekki titlað sig
gaflara nema fæðast hérna,“ segir
Bergrún og hlær.
Fjölskyldan flutti í parhús við
Herjólfsgötu fyrir fjórum árum og
heimili þeirra er litríkt, einfalt og
líflegt í senn – kannski eins og við
er að búast þegar um er að ræða
blönduð áhrif úr Hafnarfirði og
Eyjum. Stíllinn svolítið norrænn
en þó laus við að vera steríll eða of
minimalískur.
„Ég held að ég sé mest fyrir
stílinn sem einkennir Mið-Aust-
urlönd, eða ég laðast að minnsta
kosti mjög að honum. Svo blandast
þetta saman við norræna stílinn og
úr verður heimili sem mér finnst
notalegt. Ég er til dæmis voðalega
hrifin af listmunum en þrátt fyrir
að ég sé menntuð í listnámi þá er
það systir mín sem hefur gefið mér
flesta listmuni heimilisins. Hún
vann lengi í galleríi og var um-
kringd fallegum munum á hverjum
degi. Ég naut svo góðs af þessu á
afmælum.“
96 ára karl sem neitar að læra að lesa
Á undanförnum fimm árum hefur
Bergrún getið sér gott orð sem
teiknari. Hún hefur myndskreytt
um þrjátíu bækur en nú fyrir jólin
sendir hún frá sér sína fyrstu skáld-
sögu sem ber titilinn (Lang) Elstur
í bekknum.
„Þetta er í raun fimmta bók-
in mín, hinar fjórar voru meira
myndabækur fyrir leikskólaaldur.
Þessi bók er hugsuð sem lestrar-
hvatning fyrir krakka sem eru að
byrja í skóla, eða um fimm til átta
ára. Sagan fjallar um stelpuna Eyju
sem er að byrja í grunnskóla en
með henni í bekk er Rögnvaldur,
96 ára gamall karl sem er fastur
í bekknum af því hann neitar að
læra að lesa. Með þeim tekst góður
vinskapur sem leiðir þau bæði í
rétta átt í lífinu,“ segir Bergrún sem
skrifaði bókina í Tékklandi þar sem
hún dvaldi í rithöfundagestadvöl.
„Ég hugsa að ég hefði aldrei
fengið vinnufrið til að skrifa þessa
bók ef ég hefði verið hér heima
enda mikið fjör á heimilinu með
tvo litla stráka.“
áhrif úr hafnarfirði og Eyjum
bergrún Íris, teiknari og rithöfundur, býr ásamt
þrífættum ketti, eiginmanni og sonum í hafnarfirðinum
barinn opnaður klukkan sex
„Barskiltið tók ég með heim frá Miami.
Það er tímastillir á því, kviknar klukkan
sex. Þá er barinn opnaður. Svo slekkur
það á sér sex tímum síðar, þegar maður
á að fara að sofa. Kleinuhringirnir eru
eftir myndlistarkonuna Tinnu Royal. Þeir
eru úr steypu, handmálaðir, alveg gull-
fallegir, svo fallegir að litli frændi minn
átti í mesta basli með að skilja að maður
mætti ekki borða þá þegar hann var hér
í heimsókn um daginn. Það getur ekki
alltaf verið veisla.“
elskar myndlist
Málverkið fyrir ofan
sófann er eftir Svölu
Þórarinsdóttur sem
Bergrún segist hafa
mikið dálæti á. Verk
Svölu fást í Gallerí
List þar sem systir
Bergrúnar vann í
nokkur ár en þar
er jafnframt hægt
að kaupa verk eftir
Bergrúnu. Sófinn er úr
Dorma en borðið var
keypt í Ilvu.