Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Page 53
Vikublað 24. nóvember 2017 5
áhrif úr hafnarfirði og Eyjum
Kanína, önd, litlir sætir
sKór og disKósveppur
„Systir mín keypti þessa skó handa
yngri syni mínum þegar hann var ný-
fæddur. Hún gaf honum líka þessa
sætu önd sem hann notaði til að
svæfa sig þegar hann var lítill. Hún
heitir Hrönn og honum Hrannari
þykir voðalega vænt um hana.
Kanínan kemur frá Lapplandi en
sveppurinn er gjöf frá bestu vinkonu
minni. Það er reyndar diskópera í
honum af því hér þarf að vera stuð.“
Hvað er KluKKan? „Kork klukkan er úr
Litlu hönnunarbúðinni við Strandgötu í Hafnar-
firði en músina fékk sonur minn að gjöf. Hún
situr á litlum Not Knot-púða sem var notaður
sem hringapúði við giftingu okkar hjóna.“
gult og ljósblátt Ynsti sonurinn getur sjálfur sótt sér bækur í hillurnar en Bergrún leggur mikið upp úr því að börnin geti
sjálf sótt leikföng og aðra afþreyingu. Á veggnum má sjá myndskreytingu úr Múmínálfunum eftir Tove Jansson.
döKKfjólugrár griðastaður Vegginn í hjónaherberginu málaði
Bergrún nýlega í dökkfjólugráum lit í tilefni þess að herbergið hefur nú þann
eina tilgang að vera griðastaður hjónanna, en ekki barnaherbergi og vinnustofa
á sama tíma. Fjaðurljósið í loftinu er úr Ilvu en tunglið hægra megin á myndinni
er úr Litlu hönnunarbúðinni eins og svo margt annað á þessu hafnfirska heimili.
elstur í beKKnum Elstur í bekknum, e
r fyrsta skáld-
saga Bergrúnar. Sagan fjallar um Rögnvald
, 96 ára, sem
neitar að læra að lesa og situr því fastur í s
ex ára bekk
með vinkonu sinni Eyju.
Heimli megasar
og píanóið
Hennar ömmu
„Húsbóndinn spilar
mjög oft á þetta
píanó og yngri
sonurinn tekur undir.
Þetta gerist yfirleitt
þegar ég fer í bað,
þá taka þeir konsert
fyrir mig. Kattarhúsið
hans Megasar
kemur úr Litlu
hönnunarbúðinni.“
bæKur í svefnHerberginu „Ég les hvar sem er, ekkert frekar uppi í rúmi
en annars staðar. Mér finnst ég bara ekki vera heima hjá mér nema ég hafi bæk-
ur nálægt og þess vegna finnst mér líka gott að hafa þær í svefnherberginu.“
bergrún og þrífætti
Kötturinn megas
Rithöfundurinn og teiknarinn
Bergrún Íris ásamt kettinum
Megasi í stofunni við Herjólfs-
götu í Hafnarfirði. Mynd Sigtryggur Ari