Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 58
Vikublað 24. nóvember 2017 10
tali nú sem formaður íslenskra tón-
skálda og textahöfunda,“ segir Bragi
og bætir við að það hlutverk gangi
aðallega út á að fara á fundi og gera
dauðaleit að einhverjum peningum
fyrir tónlistarfólk.
„Tónlistarveiturnar eru einn
risinn sem við erum að berjast við.
Á Spotify þóknast þeim til dæmis
ekki að geta höfunda laga eða texta.
Það er hvergi minnst á þá eins og
var gert á plötuumslögum hér áður.
Þetta er auðvitað mikil barátta fyrir
tónlistarmenn enda hefur þarna
heill bransi þurrkast út, það er að
segja plötuútgáfan. Á móti kemur
að tónleikum hefur fjölgað. Það eru
ótal tónleikar úti um allt, öll kvöld
vikunnar,“ segir Bragi sem ætlar
sjálfur að demba sér í heilmikla
tónleikavertíð með Baggalút á
næstu vikum en framundan eru
átján tónleikar í desember.
„Við höfum auðvitað heilan
horngrýtis helling upp úr þessu“
„Við erum að slá nýtt innanhússmet
með tónleikum í Háskólabíói. Eft-
irspurnin hefur aukist með hverju
árinu og við verðum alltaf jafn hissa,
glaðir og þakklátir. Setjum status á
Facebook í byrjun september og allt
selst upp. Nú er svo komið að við
flytjum inn í bíóið fyrsta desember
og fáum ekki að fara út fyrr en á
aðfangadag,“ segir hann og skellir
upp úr þegar blaðamaður spyr hvort
þeir fái ekki sjúklega mikinn pening
fyrir þetta. „Jú, við höfum auðvitað
heilan horngrýtis helling upp úr
þessu enda er þetta jólavertíðin,“
segir hann og bendir á að reyndar
sé innkomunni dreift á ansi marga.
Ekki bara félagana í Baggalút heldur
marga fleiri tónlistarmenn og
skemmtikrafta.
„Bara uppi á sviðinu erum við
sextán manns og svo eru um tíu til
fimmtán aðrir sem koma að sýn-
ingunni með fjölbreyttum hætti. Við
erum með litla verslun, rótara, flokk af
japönskum blöðrugerðarmeisturum
og fleira skemmtilegt.
Það verður að vera
smá flipp.“
Fagmenn í flippi
Orðið flipp á vel
við Baggalútana
sem hafa sérhæft
sig í tvenns kon-
ar flippi frá árinu
2001. Jólaflippi
og orðaflippi.
Orðaflippið birtist
fyrst á fréttavefnum
baggalutur.is sem fór
í loftið upp úr 2001
en fyrsta platan,
Pabbi þarf að vinna,
kom út árið 2005.
Ári síðar leit fyrsta
jólaplata þeirra, Jól
og blíða, dagsins
ljós og framhaldið
þekkja flestir.
„Okkur fannst
svo absúrd og fyndið að fólk væri
að taka einhver topplög og gera
jólatexta við þau svo við tókum fyr-
irtaks Iron Maiden-lag og gerðum
jólatexta við það. Nú hefur þetta
grín alveg snúist í höndunum á
okkur því jólatónlist, aðallega þekkt
lög með íslenskum textum, er okkar
stærsta útgerð í dag,“ segir hann
og skýtur inn að fljótlega sé von á
nýju lagi sem þeir félagar sömdu í
samstarfi við Friðrik Dór sem hann
hefur miklar mætur á. „Lagið heitir
Stúfur. Eðlilega. Eða eins og segir
í laginu: Frábær gaur, fáránlega
nettur.“
Er ekki jólabarn heldur jólakarl
Spurður að því hvort hann
sjálfur sé mikið
jólabarn segist
reyndar orðinn
svolítið gegnsósa af
jólastemningu þegar
aðfangadagur renn-
ur loksins upp en
þó hafi hann alla tíð
notið sín á jólunum.
„Það er þó varla
hægt að kalla mig
jólabarn lengur.
Ég er bara jólakarl.
Jólin fyrir vestan í
gamla daga voru fín,
það var alltaf hægt
að treysta á jólasnjó-
inn og svo vorum
við þarna í góðri
stemningu með
kettinum ef við fór-
um ekki suður. Hvað
varðar jólahald með
fjölskyldunni í dag
þá höldum við í
þessar helstu hefðir. Við drögum
inn tré sem við horfum síðan á,
visna upp og deyja, hægt og rólega í
stofunni. Svo setjum við upp fullt af
seríum, borðum piparkökur og alls
konar kvikindi, hreindýr, naut og
svín eða þessi helstu húsdýr svona.
Þetta er allt eftir bókinni, bara jól
101 – eða 103 kannski?“
Að lokum. Ertu hættur að trúa á
jólasveininn?
„Nei, þvert á móti. Í ár hef ég til
dæmis fulla trú á Stúfi. Get alls ekki
sagt að ég sé hættur að trúa á hann.
Ég hef bara fulla trú á þessum
öldruðu mönnum sem brjótast inn
á nóttunni til að fikta í skótauinu
okkar. Það er allt mjög eðlilegt við
það. Bara skóblæti.“
„Við
drögum
inn tré sem við
horfum síðan á,
visna upp og
deyja, hægt
og rólega í
stofunni. Svo
setjum við upp
fullt af seríum,
borðum pipar-
kökur og alls
konar kvikindi.