Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Page 63
KYNNING
Fyrir um þremuri opnaði Sigríður Elfa Elídóttir netverslunina Fotia.
is sem selur snyrtivör-
ur. Sigríður var þá í námi
í rekstrarverkfræði. Þessi
aukavinna með námi vatt
hins vegar hratt upp á sig
því verslunin sló í gegn og
við fyrirtækið starfa nú
níu manns auk Sigríðar
og unnusta hennar. Fotia.
is býður upp á fjölbreyttar
snyrtivörur þar sem saman
fara gæði og hagstætt verð.
Flestar vörurnar koma frá
Bandaríkjunum en einnig
eru einhverjar framleiddar í
Bretlandi.
„Við leggjum áherslu á
vandaðar snyrtivörur á
hagstæðu verði og að verð
sé svipað og erlendis. Þetta
eru töluvert miklar gæða-
vörur og margar vörurnar
eru umhverfisvænar og
vegan-vörur, í bland við ann-
að. Við kappkostum að halda
álagningu í hófi því ég vil
hafa álagningu lága,“ segir
Sigríður.
Vörumerkin eru um 15, úr-
valið spannar alhliða snyrti-
vörur en í augnablikinu eru
tvö bandarísk húðvörumerki
vinsælust: Mario Badescu
og First Aid Beauty. Þó að
konur séu í meirihluta meðal
viðskiptavina Fotia.is segir
Sigríður að karlar kaupi tölu-
vert af húðvörunum.
Auk netverslunarinnar
rekur fyrirtækið hefðbundna
verslun í Skeifunni 19, Reykja-
vík. Hún er opin virka daga
frá kl. 12 til 18 og laugardaga
frá 12 til 17. Mikið er að gera
í versluninni í Skeifunni og
segir Sigríður að viðskiptavin-
ir taki þeim möguleika fagn-
andi að geta mætt á staðinn,
prófað vörurnar og fengið
ráðgjöf.
Sem fyrr segir eru Sigríður
og unnusti hennar með sam-
tals níu manns í vinnu, þar af
eru þrír í fullu starfi en aðrir
í hlutastarfi. „Starfsfólkið
stendur vaktina í versluninni í
Skeifunni auk þess að af-
greiða allar pantanir í vef-
versluninni,“ segir Sigríður.
Fotia.is er sístækkandi
fyrirtæki og ljóst er að þessi
verslun höfðar mjög til fólks
sem hefur áhuga á snyrtivör-
um og húðvörum. Gott er að
kynna sér úrvalið á vefsvæð-
inu Fotia.is en Fotia.is er
einnig á Facebook og öðrum
samfélagsmiðlum.
Vandaðar snyrtivörur
á hagstæðu verði
FotiA.iS