Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Page 70

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Page 70
6 Skreytum heimilið Helgarblað 24. nóvember 2017KYNNINGARBLAÐ Skátabúðin Selur hágæða gervijólatré Skátarnir byrjuðu að selja Sígræna jólatréð – gervijólatré – fyrir 23 árum. Þessi tré endast gríðarlega vel, svo vel að þau eru að erfast á milli ættliða. Þetta er innflutt vara, há- gæða tré sem hafa reynst mjög vel. allur ágóði af jóla- tréssölunni fer beint í æsku- lýðsstarf skátanna.“ Þetta segir kristinn ólafs- son, framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar, en gervi- jólatré frá skátunum eru klárlega mjög góður kostur þegar lifandi jólatré henta ekki. kristinn telur að notk- un gervitrjáa fari vaxandi. „Margir verða sífellt þreyttari á öllu barrinu, þrifunum og veseninu sem fylgir lifandi trjám. Og sumir hafa of- næmi fyrir gróðrinum,“ segir kristinn en telur þó að lifandi jólatré hafi sannarlega mikla kosti og mikinn þokka til að bera. Sígræna jólatréð sé hins vegar góður valkostur til hliðar við þau: „Það er gott að eiga tréð alltaf niðri í geymslu og þurfa ekki að huga að jólatréskaupum fyrir hver jól. Svo er líka gott að geta byrjað að skreyta fyrr fyrir jólin, margir eru farnir að skreyta um miðjan desember og jafnvel fyrr.“ Sígræna jólatréð frá skátunum endist gríðarlega vel og er selt með tíu ára ábyrgð. hægt er að skipta um einstaka greinar í því, eða eins og kristinn segir sposkur: „já, það er hægt að fá varahluti.“ Þó að Sígræna jólatréð sé innflutt er það framleitt í samræmi við fyrirmæli frá Skátabúðinni og hannað með þeim hætti að það líkist sem mest normannsþini, sem Íslendingar þekkja vel. efnið sem notað er í tréð er þykkara en í flestum öðrum trjám og það er jafnframt ekki eins eldfimt og önnur gervitré. Í trénu er þykkara plast en gengur og gerist með gervitré, sem veldur því að greinarnar leggjast síður niður, við geymslu milli jóla, og tréð virkar eðlilegra þegar komið er við það. Sígræna jólatréð kostar frá 5.900 krónum en mik- ill fjöldi stærða er í boði og er verðið breytilegt eftir stærðum. verðið hefur verið óbreytt í þrjú ár. Minnstu trén eru 60 sentimetrar á hæð og þau stærstu heilir fimm metrar. Stærstu trén prýða anddyri í húsnæði ýmissa stórfyrir- tækja. Skátabúðin býður einnig upp á sígræn jólatré með áföstum leD-ljósum. Mikill áhugi er á þessum trjám en þau eru í þremur stærðum 155 sentimetra, 185 senti- metra og 215 sentimetra. Sígræna jólatréð er til sölu í Skátabúðinni, Hraunbæ 123. Frá og með miðjum nóv- ember verður hægt að skoða trén uppsett í búðinni. Jafn- framt er hægt að kaupa trén í vefversluninni gervijolatre.is. Trén eru þá heimsend hvert á land sem er. Sígræn jólatré með tíu ára ábyrgð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.