Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 70
6 Skreytum heimilið Helgarblað 24. nóvember 2017KYNNINGARBLAÐ
Skátabúðin Selur hágæða gervijólatré
Skátarnir byrjuðu að selja Sígræna jólatréð – gervijólatré – fyrir
23 árum. Þessi tré endast
gríðarlega vel, svo vel að þau
eru að erfast á milli ættliða.
Þetta er innflutt vara, há-
gæða tré sem hafa reynst
mjög vel. allur ágóði af jóla-
tréssölunni fer beint í æsku-
lýðsstarf skátanna.“
Þetta segir kristinn ólafs-
son, framkvæmdastjóri
Skátabúðarinnar, en gervi-
jólatré frá skátunum eru
klárlega mjög góður kostur
þegar lifandi jólatré henta
ekki. kristinn telur að notk-
un gervitrjáa fari vaxandi.
„Margir verða sífellt þreyttari
á öllu barrinu, þrifunum og
veseninu sem fylgir lifandi
trjám. Og sumir hafa of-
næmi fyrir gróðrinum,“ segir
kristinn en telur þó að lifandi
jólatré hafi sannarlega mikla
kosti og mikinn þokka til að
bera. Sígræna jólatréð sé
hins vegar góður valkostur
til hliðar við þau: „Það er
gott að eiga tréð alltaf niðri
í geymslu og þurfa ekki að
huga að jólatréskaupum fyrir
hver jól. Svo er líka gott að
geta byrjað að skreyta fyrr
fyrir jólin, margir eru farnir að
skreyta um miðjan desember
og jafnvel fyrr.“
Sígræna jólatréð frá
skátunum endist gríðarlega
vel og er selt með tíu ára
ábyrgð. hægt er að skipta
um einstaka greinar í því,
eða eins og kristinn segir
sposkur: „já, það er hægt að
fá varahluti.“
Þó að Sígræna jólatréð
sé innflutt er það framleitt
í samræmi við fyrirmæli frá
Skátabúðinni og hannað
með þeim hætti að það líkist
sem mest normannsþini,
sem Íslendingar þekkja vel.
efnið sem notað er í tréð er
þykkara en í flestum öðrum
trjám og það er jafnframt
ekki eins eldfimt og önnur
gervitré. Í trénu er þykkara
plast en gengur og gerist
með gervitré, sem veldur því
að greinarnar leggjast síður
niður, við geymslu milli jóla,
og tréð virkar eðlilegra þegar
komið er við það.
Sígræna jólatréð kostar
frá 5.900 krónum en mik-
ill fjöldi stærða er í boði og
er verðið breytilegt eftir
stærðum. verðið hefur verið
óbreytt í þrjú ár.
Minnstu trén eru 60
sentimetrar á hæð og þau
stærstu heilir fimm metrar.
Stærstu trén prýða anddyri
í húsnæði ýmissa stórfyrir-
tækja.
Skátabúðin býður einnig
upp á sígræn jólatré með
áföstum leD-ljósum. Mikill
áhugi er á þessum trjám en
þau eru í þremur stærðum
155 sentimetra, 185 senti-
metra og 215 sentimetra.
Sígræna jólatréð er til sölu
í Skátabúðinni, Hraunbæ
123. Frá og með miðjum nóv-
ember verður hægt að skoða
trén uppsett í búðinni. Jafn-
framt er hægt að kaupa trén
í vefversluninni gervijolatre.is.
Trén eru þá heimsend hvert á
land sem er.
Sígræn jólatré
með tíu ára ábyrgð