Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Blaðsíða 44
44 Helgarblað 8. desember 2017lífsstíll - ferðir
Rostov-on-Don
Íbúafjöldi: 1,1 milljón
Leikur gegn: Króatíu 26. júní
Rostov-on-Don rétt skríður
inn á topp 10 listann yfir
fjölmennustu borgir
Rússlands. Í þessari fallegu
borg, sem stendur skammt
frá Azov-hafi, býr tæplega
1,1 milljón íbúa. Rostov-on-
Don er um 960 kílómetra
suður af Moskvu og 390 kílómetra vestur af Volgograd. Ferðalagið
er því ekki ýkja langt á rússneskan mælikvarða.
Fróðleiksmolar
Hvað er hægt að gera? Fjölmörg flott söfn eru í Rostov-on-Don og
einnig eru flottir almenningsgarðar í borginni.
Hvað er ókeypis? Aðgangur í almenningsgarðana er ókeypis og þá kostar
ekki krónu að spóka sig á Pushkin-stræti sem er vinsælt meðal íbúa og
ferðamanna. Þar er allt í blómum, styttum, kaffihúsum og veitingastöðum.
Hvað þarf að varast? Eins og í öðrum fjölmennum borgum leynast
hætturnar stundum víða þegar kvölda tekur. Fólk er hvatt til að vera
ekki eitt á ferð á kvöldin. Glæpatíðni; þjófnaðir og rán þar á meðal,
er nokkuð há í Rostov-on-Don, samkvæmt vefnum Numbeo.
Hvað kostar bjórinn? Bjórinn er á svipuðu verði og í Volgograd. Algengt
verð á rússneskum bjór á veitingastöðum er frá 100 krónum og upp í 200
krónur en innfluttur bjór kostar frá 180 krónum og upp í 500 krónur.
Hvað kostar að taka leigubíl? Verðið er svipað verðinu í
Volgograd. Startgjaldið er alla jafna rúmar 100 krónur og svo er
kílómetragjaldið frá 15 og upp í 25 krónur.
En strætó? Stakt fargjald kostar um 35 krónur.
Hvað kostar dæmigerð máltíð á veitingastað? Dæmigerðar mál-
tíðir fyrir tvo á meðalgóðum veitingahúsum kosta frá 1.800 krónum
og upp í 3.600 krónur. Máltíð á McDonald's kostar um 500 krónur.
Hvað kostar hótelnóttin? Miðað við sömu forsendur og hér til
hliðar sést að hótelin eru álíka dýr og í Volgograd. Þriggja stjörnu
hótel kosta yfirleitt á bilinu 30 til 60 þúsund krónur. Hægt er að
finna dýrari og ódýrari hótel eða gistiheimili.
volgogRaD
Íbúafjöldi: 1 milljón
Leikur gegn: Nígeríu 22. júní
Volgograd, áður Stalíngrad, er 970
kílómetra suður af Moskvu. Þetta er
iðnaðarborg sem stendur við vestur-
bakka árinnar Volga sem hún dregur
nafn sitt af. Volgograd er falleg
borg en tiltölulega lítil á rússneskan
mælikvarða. Hún er fimmtánda
fjölmennasta borg landsins.
Fróðleiksmolar
Hvað er hægt að gera? Í borginni er að finna
marga fallega staði. Einn sá vinsælasti er
Mamayev Kurgan, hæð fyrir ofan borgina,
þar sem finna má hæstu styttu af konu í
heiminum. Á þessari hæð fóru fram blóðugir
bardagar í síðari heimsstyrjöldinni. Þá eru
flott söfn í borginni, til dæmis Panorama
Museum of the Battle of Stalingrad.
Hvað er ókeypis? Það kostar ekkert að fara
upp að Mamayev Kurgan og þá kostar ekkert
að drekka í sig menningarlíf borgarinnar.
Hvað þarf að varast? Volgograd er tiltölu-
lega örugg borg, samkvæmt Lonely Planet,
en á það er þó bent að mannskæð hryðju-
verkaárás átti sér stað í borginni árið 2013.
Sautján létust þegar sprengja sprakk í neðan-
jarðarlestakerfi borgarinnar. Vasaþjófar eru
stundum á fjölförnum ferðamannastöðum
og þá er fólk hvatt til að vera ekki eitt á ferli
þegar kvölda tekur.
Hvað kostar bjórinn? Eins og í Moskvu skipt-
ir máli hvort um er að ræða rússneskan bjór
eða innfluttan. Hálfur lítri af rússneskum bjór
á veitingastað kostar um 120 krónur en dós af
innfluttum bjór er um tvöfalt dýrari að jafnaði.
Hvað kostar að taka leigubíl? Startgjaldið
er 90–160 krónur og hver kílómetri eftir það
kostar tæpar 20 krónur. Leigubílar eru því
ódýrari í Volgograd en Moskvu, samkvæmt
Numbeo.
En strætó? Eitt stakt far kostar 35 krónur.
Hvað kostar dæmigerð máltíð á veitinga-
stað? Máltíð fyrir tvo á meðalgóðum
veitingastað kostar um 1.600 rúblur, eða
2.800 krónur. Hægt er að fá ódýrari mat en
einnig mikið dýrari.
Hvað kostar hótelnóttin? Notast var við
sömu aðferð og sömu forsendur og þegar hót-
elverð í Moskvu var skoðað. Verð á hótelum í
Volgograd er mun lægra en í Moskvu. Blaða-
maður fann til dæmis fimm stjörnu hótel í
miðborginni sem kostaði 27 þúsund krónur
fyrir tvær nætur. Það var að vísu einsdæmi og
mun algengara var að finna 3–4 stjörnu hótel
á 50–70 þúsund krónur.
Þetta getur þú gert á
milli leikja í Rússlandi
Þ
að styttist í að HM í
knattspyrnu hefjist í Rúss-
landi og eru margir Ís-
lendingar eflaust farnir að
skipuleggja ferðir á leiki íslenska
liðsins. Ísland mun að minnsta
kosti spila þrjá leiki í þremur
borgum og hefur DV tekið saman
ýmsar gagnlegar upplýsingar um
þær borgir sem íslenska liðið mun
spila í. Meðal þeirra upplýsinga
sem DV hefur tekið saman er verð
á ýmsum vörum og þjónustu; mat,
bjór, hótelum og leigubílum til
dæmis og þá er þeim sem hugsa
sér gott til glóðarinnar bent á það
sem þarf að varast í viðkomandi
borgum. n
Allt sem þú þarft að vita um borgirnar í Rússlandi sem Ísland spilar í á heimsmeistaramótinu næsta sumar
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Moskva
Íbúafjöldi: 13,2 milljónir
Leikur gegn: Argentínu 16. júní
Fyrsti leikur Íslands á HM fer fram í höfuðborginni
Moskvu. Moskva er ein fjölmennasta borg heims og mun
fjölmennari en til dæmis New York og London. Þá er hún
einnig mjög stór að flatarmáli. Borgin þykir nokkuð dýr og
getur gisting á góðum hótelum miðsvæðis kostað fúlgur
fjár en þó er einnig hægt að finna mjög ódýra gististaði.
Ísland spilar á Spartak Stadium í Moskvu sem er ekki
ýkja langt frá miðborginni og því þarf ekki að leggja á sig
langt ferðalag til að komast þangað, að því gefnu að fólk
haldi sig miðsvæðis í borginni.
Fróðleiksmolar
Hvað er hægt að gera? Það er hægt að sjá marga fallega og
sögufræga staði í Moskvu. Rauða torgið, St. Basil-dómkirkj-
an og Kreml eru meðal þekktustu kennileita borgarinnar. Þá
þykir neðanjarðarlestarkerfið eitt það glæsilegasta í heimi
og þangað er farið í skipulagðar ferðir með ferðamenn.
Hvað er ókeypis? Fyrirtækið Moscow Free Tour býður
upp á ókeypis skoðunarferðir um borgina og þá kostar
ekkert að fara á Rauða torgið eða að grafhvelfingu Leníns.
Aðgangur að Gorky House-Museum er einnig ókeypis en
það er frægt safn sem á rætur sínar að rekja til ársins 1906.
Hafa ber í huga að þetta er ekki tæmandi listi.
Hvað þarf að varast? Vasaþjófar eru í öllum stórborg-
um og er Moskva engin undantekning. Þá er mælt með
því að gangandi vegfarendur hafi varann á sér í kringum
fjölfarnar umferðargötur þar sem ökumenn gæta ekki
alltaf fyllstu varúðar. Loks eru ferðamenn hvattir til að
vera ekki einir á ferð eftir að rökkva tekur.
Hvað kostar bjórinn? Það fer eftir því hvar hann er keyptur
og hvort um er að ræða rússneskan eða innfluttan bjór.
Samkvæmt vefnum Numbeo getur bjórkrúsin af rússneskum
bjór kostað frá 160 krónum og upp í 340 krónur á meðan inn-
fluttur bjór getur kostað frá 210 krónum og upp í 530 krónur.
Hvað kostar að taka leigubíl? Startgjaldið er að jafnaði
um 260 krónur og síðan kostar hver kílómetri rúmar 20
krónur. Sumir rukka meira, eða allt að 350 krónum fyrir
startgjald og síðan 30 krónur fyrir kílómetrann. Athugið að
hér er átt við dagtaxta en ekki næturtaxta sem er hærri.
Þá er rétt að benda á að Uber er í Moskvu en þegar þetta
er skrifað er DV ekki kunnugt um starfsemi fyrirtækisins
annars staðar en í Moskvu og Sankti Pétursborg.
En strætó? Ein stök ferð kostar tæpar 90 krónur, sam-
kvæmt Numbeo.
Hvað kostar dæmigerð máltíð á veitingastað? Dæmi-
gerð máltíð á sæmilegum veitingastað fyrir einn, að
kvöldi til, getur kostað frá 800 krónum og upp úr. Máltíð
á McDonald's, samkvæmt vefnum Numbeo, kostar um
300 rúblur, eða 530 krónur.
Hvað kostar hótelnóttin? Blaðamaður notaði vefinn
booking.com til að finna verð á hótelgistingu. Miðað var
við innritun föstudaginn 15. júní og brottför sunnudaginn
17. júní og tvær manneskjur í herbergi. Hægt er að finna
hostel sem kosta frá 800 krónum tvær nætur og hótel
sem kosta upp í 400 þúsund krónur tvær nætur. Dæmi-
gert verð á þriggja stjörnu hóteli í miðri borginni er 110 til
170 þúsund krónur tvær nætur. Mörg þessara hótela eru
þó orðin uppbókuð.