Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Blaðsíða 58
Vikublað 8. desember 2017 14 PiParrótar jólasíld - God fornøjelse Með þessu er hægt að töfra fram síld fyrir sex manns á fimmtán til tuttugu mínútum. Það má nota þetta sem forrétt, millirétt eða hvernig sem fólk það vill hafa það og svo setti ég inn smá hugmyndir að meðlæti svo það sé hægt að bera þettta fallega fram fyrir gestina, helst á dönskum diskum með Álaborgarsnafsi,“ segir Jakob E. Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar í Lækjargötu. „Það eru ekki allir sem hafa þá hefð að bjóða upp á síld á jólunum en það er auðvelt að komast upp á lagið með njóta hennar. Þá legg ég til að fólk velji sér gott rúgbrauð og svo er frábært að hafa kaldan Álaborgarsnafs með. Svona upp á stemninguna. Síldin er rosalega vinsæl hjá okkur á Jómfrúnni fyrir jólin og það er allt upp bókað fram að Þorláksmessu. Við erum samt búin að ákveða að hafa opið milli jóla og nýárs og þá getur fólk komið í jólaseðilinn líka, til áramóta. Það er bullandi stemning hérna fyrir jól og heilmikið stuð. Fólk er að skála svolítið, en okkur finnst það skemmtilegast að nú eru fastagestirnir farnir að koma með börn og barnabörn, sem koma svo aftur með börnin sín seinna. Það eru að róterast hérna ættliðirnir af fastagestum enda Jómfrúin búin að vera til í 23 ár.“ Jólaleg á Jómfrúnni Kristín Hermundsdóttir, vaktstjóri á Jómfrúnni og Jakob E . Jakobsson núverandi eigandi og sonur stofnanda Jómfrúarinnar kunna að halda uppi góðu jólastuði. Mynd DV ehf / Sigtryggur Ari„Það eru að róterast hérna ættliðirnir af fastagestum enda jómfrúin búin að vera til í 23 ár „jómfrúrnar“ á Jómfrúnni í lækjargötu deila þessari girnilegu og gullfallegu síldarbrauðs uppskrift með lesendum Birtu. Útgangspunkturinn er að fólk geti vippað þessu fram með stuttum fyrirvara í jólastressinu. Jómfrúin Smurbrauðs- veitingahús Lækjargötu 4 101 Reykjavík Sími: 551 0100 www.jomfruin.is PiParrótarsíld að hætti hermanns Guðmundssonar forréttur fyrir 4–6 n 500 g marineruð síld n 4 msk. majónes n 1 msk. sýrður rjómi n 18% 1 msk. dijon-sinnep n 1 msk. worcestershire-sósa n 1 msk. hunang n 4 msk. fersk, fínt rifin piparrót n safi og raspaður börkur af ½ sítrónu n Salt og hvítur pipar aðferð Gott er að byrja á því að sigta allan síldarlöginn vel frá síldinni. Blanda saman í skál öllum hráefnunum nema síldinni og smakka dressinguna til með salti og pipar. Bætið að lokum síldarbitunum út í. Gott er að geyma piparrótarsíldina í kæli yfir nótt áður en hún er borin fram. framsetning 4–6 rúgbrauðssneiðar með íslensku smjöri, 5 stk. soðin egg, skorin í báta, 5 stk. kirsuberjatómatar, skornir til helminga, 1 stk. rauðlaukur, sneiddur niður í fallega þunna hringi. Kapers- ber, sólselja og toppað með fínt rifinni piparrót. god fornøjelse! UPPSKrifT He lgar ma tur inn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.