Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Blaðsíða 70
Helgarblað 8. desember 2017KYNNINGARBLAÐ10 Gjafabréf
Aðsókn að leiksýningum Þjóðleikhússins hefur verið með
eindæmum góð á leikárinu
og vinsælar sýningar verða
áfram á fjölunum eftir ára
mót, auk þess sem nýjar og
spennandi sýningar verða
frumsýndar á næstunni.
Gjafakort í Þjóðleikhúsið er
því kærkomin jólagjöf fyrir
marga en kortið er hægt að
kaupa á vef Þjóðleikhússins,
leikhusid.is, eða í afgreiðsl
unni á Hverfisgötu.
Hér að neðan er yfirlit yfir
helstu verkefni leikhússins í
vetur:
Faðirinn – fimm stjörnu
leiksýning
Franska verðlaunaverkið
Faðirinn sló sannarlega í
gegn þegar það var frum
sýnt í október, í leikstjórn
Kristínar Jóhannesdóttur.
Gagnrýnendur hafa ausið
sýninguna lofi, ýmist gefið
henni 4 eða 5 stjörnur, og
meðal annars sagt: „Sýning
sem enginn má missa af eða
gengur út af ósnortinn“ og
„undursamleg sýning sem
fær mann til þess að hlæja
og gráta“. Eggert Þorleifsson
fer á kostum í sýningunni
og sagði einn gagnrýnandi
um hann: „Ég hef aldrei séð
hann svona góðan.“ Það er
meira og minna uppselt á
sýninguna næstu mánuði, en
til að mæta eftirspurn er búið
að setja í sölu sýningar allt
fram í febrúar.
„Stjörnuleikur hjá
Eddu og Pálma“
Risaeðlurnar eftir Ragnar
Bragason hafa sömuleiðis
slegið í gegn á Stóra sviðinu,
og áhorfendur hafa hlegið
sig máttlausa sýningu eftir
sýningu á þessu grátbroslega
verki. Edda Björgvinsdóttir
og Pálmi Gestsson fara með
aðalhlutverk í sýningunni,
og hefur þeim verið hrósað
í hástert fyrir frammistöðu
sína. Það er Þjóðleikhúsinu
sérstakur fengur að því að
fá Eddu Björgvins aftur til
liðs við sig, og má með sanni
segja að þessi gamalreynda
og dáða leikkona sé hér í
fantaformi! Risaeðlurnar eru
nístandi gamanleikur, loka
hluti leikhúsþríleiks Ragnars
um afkima íslensks sam
félags.
Kraftmikið fjölskyldudrama
Hafið er eitt vinsælasta leikrit
Ólafs Hauks Símonarsonar
og verður nú jólasýning
Þjóðleikhússins í nýrri og
spennandi uppsetningu.
Siggi Sigurjóns leikstýrir og
Þröstur Leó Gunnarsson fer
með hlutverk valdamikils
útgerðarmanns í sjávarþorpi.
Hafið er átakamikill fjöl
skylduharmleikur, þrunginn
spennu, en líkt og önnur verk
höfundar er það jafnframt
fullt af beittum húmor. Meðal
annarra leikara í aðalhlut
verkum eru Guðrún S. Gísla
dóttir og Elva Ósk Ólafsdóttir.
Margverðlaunað átakaverk
Steinunn Ólína Þorsteins
dóttir snýr aftur í Þjóðleik
húsið eftir áramót í hinu
margverðlaunaða leikriti
Efa, en þar leikur hún m.a. á
móti Hilmi Snæ Guðnasyni í
leikstjórn Stefáns Baldurs
sonar. Efi er spennandi verk
um mörkin í mannlegum
samskiptum, tortryggni,
grunsemdir og nístandi
óvissu. Hvenær lætur fólk
tortryggni stjórna sér?
Hvenær lokar það augunum
fyrir óhugnanlegum sann
leika?
Nýr söngleikur með laga-
perlum Stuðmanna
Glænýr og stórskemmtilegur
íslenskur söngleikur eftir Góa,
sem er byggður á ástsælustu
lögum Stuðmanna, verður
frumsýndur á Stóra sviðinu
í febrúar. Bráðfyndin at
burðarás, þar sem kostuleg
um persónum lendir saman,
gömlum leyndarmálum er
þyrlað upp í loft og ástin
blómstrar óvænt þar sem
síst skyldi. Meðal leikara og
dansara eru Selma Björns,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Örn
Árnason, Siggi Sigurjóns og
Eggert Þorleifsson. Dans,
söngur, gleði og fjör! Gleði
sprengja er um það bil að
springa á Stóra sviðinu!
Heillandi verk um baráttu
ólíkra kvenna
Svartalogn er nýtt íslenskt
verk sem frumsýnt verður
á Stóra sviðinu í apríl, ný
leikgerð eftir Melkorku Teklu
Ólafsdóttur byggð á skáld
sögu Kristínar Marju Baldurs
dóttur, í leikstjórn Hilmis
Snæs Guðnasonar. Svarta
logn er hrífandi verk um höfn
un og hindranir, baráttuna
við niðurrifsöflin í mannssál
inni – og óvæntu möguleik
ana í lífinu. Með aðalhlutverk
fer Elva Ósk Ólafsdóttir, en
stór leikhópur miðlar þessari
mögnuðu sögu.
Þjóðleikhús barnanna
Í Þjóðleikhúsinu er fjölbreytt
úrval leiksýninga fyrir börn á
öllum aldri. Á Stóra sviðinu
gengur hin eldfjöruga sýning
Fjarskaland eftir Góa ennþá
fyrir fullu húsi, og börnin geta
fundið eitthvað skemmtilegt
víða um hús, meðal annars
á Brúðuloftinu og í Kúlunni.
Eftir áramót verður meðal
annars frumsýnd ljóðræn og
skemmtileg leiksýning fyrir
yngstu börnin, Ég get, en hún
fjallar um það sem er mitt og
þitt og okkar.
Fjölbreytt
samstarfsverkefni
Þjóðleikhúsið er í samstarfi
við ólíka leikhópa, MiðÍsland,
Improv Ísland og Elefant sem
setti upp fjölmenningarverk
ið Smán. Einnig verður nýtt
verk, Stríð, eftir Ragnar Kjart
ansson og Kjartan Sveinsson,
sett upp í samstarfi við Sin
fóníuhljómsveit Íslands. Að
faranótt, nýtt verðlaunaverk
eftir Kristján Þórð Hrafnsson,
verður sett upp í samstarfi
við leikarabraut sviðslista
deildar LHÍ.
Settu gleðistund
í jólapakkann
GJAFAKoRT Í ÞJÓðLEIKHúSIð ER TILvALIn JÓLAGJÖF