Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Blaðsíða 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 8. desember 2017
D
agskráin er þétt hjá séra
Davíð enda komin aðventa
og sá tími þegar börn í leik-
og grunnskólum landsins
heimsækja kirkjur. Slíkar heim-
sóknir hafa þó verið umdeild-
ar á undanförnum árum. Þegar
blaðamaður hitti Davíð fyrir í
safnaðarheimilinu í Laugarnes-
kirkju var hann nýbúinn að taka
á móti hóp af fimmtu bekking-
um. „Hér pössum við upp á að
þessar heimsóknir séu alltaf að
frumkvæði skólans og á forsend-
um hans. Við eru ekki með trúboð
nema upp að því marki að hægt
sé að kalla fræðslu um kristna trú
trúboð. Börnin eru ekki látin taka
þátt í neinni trúariðkun eins og
bænum eða biblíulestri.“ Hann
segir börnin læra um kirkjuna
sjálfa og starfið sem þar fer fram.
Agnúast fólk út í þessar heim-
sóknir við ykkur?
„Já, já, það kemur alltaf fyrir. Ég
get ekkert fullyrt um hvernig þessar
skólaheimsóknir hafa verið í gegn-
um tíðina og ábyggilega er ástæða
til þess að fetta fingur út í eitt og
annað sem þar hefur verið gert.
Það er alltaf slæmt þegar börn eru
tekin út úr hópnum. Þess vegna
leggjum við áherslu á að komið sé
með allan hópinn, börn trúlausra
foreldra og íslömsk börn. Þeim er
alveg óhætt hér og verða ekki fyrir
neinni innrætingu.“
Davíð telur að trúfrelsi eigi að
vera opið og jákvætt þannig að
fólk fái fræðslu um starf allra trú-
félaga. Ef dyrnar eru lokaðar viti
enginn hvað gerist á bak við þær
og fordómar þrífast. „Við hlökkum
mjög til þegar moskan verður
loksins komin upp og farið verður
í skólaheimsóknir á ramadan til
að fá fræðslu. Ég held til dæmis að
íslamskir krakkar yrðu fyrir mun
minni fordómum og tortryggni
ef bekkurinn færi allur saman í
moskuna og sæi að þetta er ekkert
nema öðruvísi kirkja.“ Hann segir
að foreldrar eigi rétt á því að börn-
um þeirra séu ekki innrætt trúar-
brögð í skólum en ekki rétt á að
neita þeim um fræðslu.
Missti af uppeldinu
Davíð ólst fyrstu tíu ár ævi sinn-
ar upp á Seljaveginum í vesturbæ
Gat ekki
gefið
börnum
sínum
mat
Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarnes-
kirkju, hefur komið víða við í lífi sínu á sviði lista og
fræða. Kristinn Haukur heimsótti hann í kirkjuna og
spurði meðal annars út í grínferilinn, ritstjórnina á
Bleiku og bláu, prestsstörfin og baráttuna við áfengið.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Ég veit að
sóknarbörn
mín á Útvarpi
Sögu líta ekki á
mig sem björtustu
von kristindóms-
ins á Íslandi.
Upprisa Davíðs Þórs: