Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Side 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 8. desember 2017 D agskráin er þétt hjá séra Davíð enda komin aðventa og sá tími þegar börn í leik- og grunnskólum landsins heimsækja kirkjur. Slíkar heim- sóknir hafa þó verið umdeild- ar á undanförnum árum. Þegar blaðamaður hitti Davíð fyrir í safnaðarheimilinu í Laugarnes- kirkju var hann nýbúinn að taka á móti hóp af fimmtu bekking- um. „Hér pössum við upp á að þessar heimsóknir séu alltaf að frumkvæði skólans og á forsend- um hans. Við eru ekki með trúboð nema upp að því marki að hægt sé að kalla fræðslu um kristna trú trúboð. Börnin eru ekki látin taka þátt í neinni trúariðkun eins og bænum eða biblíulestri.“ Hann segir börnin læra um kirkjuna sjálfa og starfið sem þar fer fram. Agnúast fólk út í þessar heim- sóknir við ykkur? „Já, já, það kemur alltaf fyrir. Ég get ekkert fullyrt um hvernig þessar skólaheimsóknir hafa verið í gegn- um tíðina og ábyggilega er ástæða til þess að fetta fingur út í eitt og annað sem þar hefur verið gert. Það er alltaf slæmt þegar börn eru tekin út úr hópnum. Þess vegna leggjum við áherslu á að komið sé með allan hópinn, börn trúlausra foreldra og íslömsk börn. Þeim er alveg óhætt hér og verða ekki fyrir neinni innrætingu.“ Davíð telur að trúfrelsi eigi að vera opið og jákvætt þannig að fólk fái fræðslu um starf allra trú- félaga. Ef dyrnar eru lokaðar viti enginn hvað gerist á bak við þær og fordómar þrífast. „Við hlökkum mjög til þegar moskan verður loksins komin upp og farið verður í skólaheimsóknir á ramadan til að fá fræðslu. Ég held til dæmis að íslamskir krakkar yrðu fyrir mun minni fordómum og tortryggni ef bekkurinn færi allur saman í moskuna og sæi að þetta er ekkert nema öðruvísi kirkja.“ Hann segir að foreldrar eigi rétt á því að börn- um þeirra séu ekki innrætt trúar- brögð í skólum en ekki rétt á að neita þeim um fræðslu. Missti af uppeldinu Davíð ólst fyrstu tíu ár ævi sinn- ar upp á Seljaveginum í vesturbæ Gat ekki gefið börnum sínum mat Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarnes- kirkju, hefur komið víða við í lífi sínu á sviði lista og fræða. Kristinn Haukur heimsótti hann í kirkjuna og spurði meðal annars út í grínferilinn, ritstjórnina á Bleiku og bláu, prestsstörfin og baráttuna við áfengið. Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Ég veit að sóknarbörn mín á Útvarpi Sögu líta ekki á mig sem björtustu von kristindóms- ins á Íslandi. Upprisa Davíðs Þórs:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.