Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Blaðsíða 65
Gjafabréf 5Helgarblað 8. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ
Það hefur færst í vöxt hjá ungum stúlkum að gefa kærasta sínum
vélhjólanám í jólagjöf, að
sögn eigenda skólans Öku-
kennsla 17.is. Skólinn býður
upp á gjafabréf af ýmsu tagi
eftir efni og aðstæðum fólks.
Sumir kaupa fullt ökunám
handa til dæmis börnum
sínum, en aðrir gefa til dæmis
Ökuskóla 1, sem er vænn
hluti af ökunáminu. Hafa má í
huga að gjafabréfin úreldast
ekki og því ekkert sem kemur
í veg fyrir að þetta sé gefið
fólki sem ekki hefur enn náð
aldri til ökuréttinda.
Best er að panta gjafabréf
eða fá nánari upplýsingar um
þau með því að senda tölvu-
póst á netfangið 17@17.is.
En hvernig ökuskóli er
Ökukennsla 17.is? „Við höfum
lagt ofuráherslu á gæði
þjónustunnar og höfum
fengið þau viðbrögð frá
viðskiptavinum að þeir séu
afar ánægðir með frábæra
og hraða þjónustu. Þeir sem
leita til okkar geta fengið allt
á einum stað og við útveg-
um ökukennara um allt land
sé eftir því óskað. Við vorum
fyrsti ökuskólinn til að bjóða
upp á að fá allan pakkann á
einum stað. Þú færð Öku-
skóla 1, 2 og 3, 15 ökutíma,
próftökugjöld, kennslubókina
og æfingaakstursmerkið – allt
hjá okkur – og getur fengið
að skipta kostnaðinum niður
í allt að 12 greiðslur. Það er
þægilegur kostur því þetta er
nokkuð stór pakki fyrir fólk og
mörgum finnst afar þægilegt
að geta keypt allan pakkann
á einum stað og greitt hann
með raðgreiðslum.“
Þetta segir Sigurður Jón-
asson, eigandi Ökukennsla
17.is. Sigurður er ökukennari
og lögreglumaður. Hann
hefur margra ára reynslu
af kennslu í ökuskólum og
gerð kennsluefnis. Sigurður
hefur einnig annast kennslu
í umferðarfræði, til dæmis
við Lögregluskóla ríkisins, og
í ökukennaranámi á vegum
Háskóla Íslands. Hann hefur
um árabil verið einn af vin-
sælustu ökukennurum á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem
hann hefur kennt á bifreið,
bifhjól og létt bifhjól.
Bjarnþóra M. Pálsdóttir
starfar við skólann sem
kennslufræðilegur ráðgjafi og
styrkir faglega umgjörð hans
enda hefur hún mikla reynslu
af ráðgjöf og kennslu.
Ökukennsla 17.is veitir nám
í fólksbílaakstri og bifhjóla-
akstri. Bóklega námið er allt
á netinu en síðan eru öll próf
tekin hjá Frumherja sem
er framkvæmdaaðili öku-
prófa á Íslandi. Ökunámið
hjá Ökukennslu 17.is er öllum
opið óháð búsetu og skólinn
útvegar síðan ökukennara
í héraði hvers nemanda sé
óskað eftir því.
Fyrir utan gæði náms-
ins veitir Ökukennsla 17.is
ökunám á mjög hagstæðu
verði: „Skólinn okkar býður
langbesta verðið hér á landi
vegna þess að við greiðum
ökukennurum ekki fyrir að
senda okkur nemendur eins
og flestir aðrir skólar gera.
Við bjóðum hins vegar alla
nemendur velkomna, sama
hvar þeir eru og sama hjá
hvaða kennara þeir eru. Allir
eru velkomnir og fá betra
verð.“
Ítarlegar upplýsingar um
skólann og námið er að finna
á heimasíðunni 17.is sem og á
Facebook-síðu skólans.
Ökukennsla 17.is:
Ökunám er frábær jólagjöf
GJAFABréF Frá ÖkukEnnSLu 17.iS VErðA SÍFELLt VinSæLLi