Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Blaðsíða 67
Gjafabréf 7Helgarblað 8. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ
Gjafaáskrift að sokkum
Fyrirtækið smartsocks.is býður upp á áskrift að sokkum. Nýir sokk-
ar detta inn um lúguna
hjá áskrifendum í hverjum
mánuði. Þessi skemmtilega
nýjung hefur mælst vel fyrir
og nú eru sokkaáskrifendur
hjá smartsocks.is orðnir fjöl-
margir þó að fyrirtækið hafi
starfað í stuttan tíma.
sokkarnir frá smartsocks.
is lífga upp á tilveruna og
margir sem áður gengu bara
í svörtum og gráum sokkum
njóta þess nú að fá litríka
sokka í hverjum mánuði. allir
sokkar frá smartsocks.is eru
í skærum litum og fjölbreytt-
um mynstrum. Þeir eru svo
fjölbreyttir að yfir heilt ár fær
áskrifandi aldrei tvö eins pör
af sokkum. sokkarnir eru úr
100% ull og eru í stærðunum
34–39 og 38–45. Þeir eru
bæði fyrir konur og karla.
sokkarnir eru allir mjög sterkir
og endingargóðir, þetta er
vönduð vara.
áskrifandi getur valið um
hvort hann fær eitt eða tvö
sokkapör á mánuði og hann
getur valið um áskrift í þrjá,
sex eða tólf mánuði.
sokkaáskrift lífgar ótrúlega
mikið upp á tilveruna, hvers-
dagsleikinn verður skemmti-
legri þegar maður fer að
ganga í litríkum sokkum og
það er skemmtilegt að vita
aldrei hvernig sokkarnir sem
detta inn um lúguna næst
líta út – en vita það eitt að
þeir verða fallegir og litríkir.
sokkagerðirnar eru alls 150.
Gefðu sokkaáskrift í jólagjöf
sokkaáskrift er frumleg
og skemmtileg jólagjöf sem
gleður í langan tíma. Þú getur
gefið þeim sem þér þykir
vænt um eitt eða tvö pör af
litríkum og fallegum sokkum
í þrjá, sex eða tólf mánuði.
Hægt er að ganga frá
kaupum á gjafaáskrift eða
eigin sokkaáskrift á vefnum
smartsocks.is. sendingar-
kostnaður er innifalinn í verði
sokkanna. sokkaáskrift að
einu pari á mánuði kostar
990 krónur en áskrift að
tveimur pörum á mánuði
kostar 1.790 krónur.
Það er skemmtilegra að
ganga í skrautlegum sokkum.
Eftir dálítinn tíma í sokka-
áskrift á fólk gott safn af
fallegum og litríkum sokkum
sem lífga upp á daginn og
gera tilveruna skemmtilegri.
sjá nánar á smartsocks.is.
Litrík og klæðileg jólagjöf
Íslensk listaverk eru
einstakar jólagjafir
Mörg fyrirtæki og að sjálfsögðu einstak-lingar líka koma til
okkar í desember til að kaupa
jólagjafir. mörg pör velja líka
fremur að kaupa sér sameig-
inlega jólagjöf fyrir heimilið
fremur en gefa hvort öðru
gjafir og hér er einstakt úrval
af list fyrir heimilin.“
Þetta segir Gunnar Helga-
son, framkvæmdastjóri
Gallerís Listar, skipholti 50a,
sem er elsta starfandi gallerí
á landinu. Gallerí List hefur
til sölu verk yfir 50 íslenskra
listamanna og starfar undir
kjörorðinu „eitthvað alveg
einstakt“ eða eins og segir á
heimasíðu gallerísins:
„Í fjöldaframleiddum heimi
bregður einhverju einstöku
við öðru hvoru. Gallerí List
sérhæfir sig í einstökum verk-
um eftir íslenska listamenn.
Hjá okkur finnur þú eitthvað
alveg einstakt.“
Gallerí List býður upp á
listmuni á ótrúlega breiðu
verðbili, eða allt frá 3.000 og
upp í milljónir króna. Því geta
allir fundið eitthvað við sitt
hæfi þegar kemur að falleg-
um og einstökum jólagjöfum.
meðal annars býður galleríið
upp á mikið úrval af keram-
ikverkum.
„sérhver hlutur sem er
keyptur hér til gjafa verður
um leið eins konar gjafabréf,
því sá sem fær gjöfina getur
skipt henni út fyrir hvað sem
er í galleríinu og þá höfum við
úr svo mörgum listamönnum
að velja. Þannig að enginn
situr uppi með verk sem hon-
um ekki líkar,“ segir Gunnar.
Úrvalið aldrei betra en í
desember
„Desember er orðinn
langstærsti mánuðurinn í
sölu á listmunum, og þótt
úrval verka hjá okkur sé gott
allan ársins hring þá er það
þannig að úrvalið er aldrei
betra en í desember, af þeirri
ástæðu hvet ég fólk sem
hefur áhuga á listmunum
að kynna sér úrvalið í jóla-
mánuðinum,“ segir Gunnar.
Gallerí List býður upp á
vaxtalaus lán til listmuna-
kaupa.
Hægt er að kynna sér
listamenn og verk þeirra á
heimasíðu gallerísins www.
gallerilist.is og á Facebook-
síðunni www.facebook.com/
Gallerí-List.