Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Blaðsíða 64
4 Gjafabréf Helgarblað 8. desember 2017KYNNINGARBLAÐ Það verður sífellt vin-sælla að gefa upplifun og vellíðan í jólagjöf og þar koma gjafabréfin sterk inn. Gjafabréf í Abaco Heilsu- lind á Akureyri er jólagjöf sem gleður marga. Vinsælust eru gjafabréf í nudd, fótsnyrtingu, andlitsmeðferðir og bað- stofudekur. Dekurdagar eru líka vinsælir en þar er búið að setja saman vinsælustu meðferðirnar á staðnum og er þá gefinn afsláttur eftir því hvað keypt er fyrir háa upphæð, 5–15% afsláttur. Einnig er vinsælt að kaupa fyrir ákveðna upphæð og viðkomandi getur ráðið hvað hann gerir. Þess má geta að hægt er að nota gjafabréfin í annað en það sem á þeim stendur ef eigandi bréfsins óskar þess. Gjafabréfin eru til sölu á staðnum, að Hrísalundi 1, en einnig er hægt að hr- ingja í síma 462-3200 eða senda fyrirspurn á netfangið abaco@abaco.is. Húðslípun er afar öflug og örugg húðmeðferð sem Abaco Heilsulind á Akureyri býður upp á. Meðferðin er framkvæmd með Silk Peel húðslípunartæki. Þetta er heildræn húðmeðferð þar sem ysta lag húðarinnar er fjarlægt með notkun ör- smárra kristalla og demanta. Árangurinn er sléttari, mýkri og þéttari húð, auk þess sem áferð húðarinnar verður fallegri. Húðslípun er með- ferð sem hentar fólki á öllum aldri og er örugg fyrir allar húðgerðir. Strax eftir fyrstu meðferð fær húðin ferskan blæ, verður þéttari, mýkri, hreinni og unglegri. Þessi einstaka húðmeð- ferð lætur húðina líta betur út og endurheimta ljóma sinn. Dauðar húðfrumur eru fjarlægðar, blóðflæði örvað og vöxtur nýrra fruma og bandvefur örvast. Meðferðin bætir áferð og vinnur gegn öldrun húðarinnar. Eldri húð sem farin er að þynnast styrkist og þéttist. Meðferðin veitir örugga hreinsun á yfir- borði húðarinnar, dregur úr húðstíflum og opnar húðholur dragast saman. Sjáanlegur munur á húðinni er eftir hvert skipti og verða stöðugar framfarir á ástandi hennar. Húðslípun vinnur með- al annars á eftirtöldum vandamálum: Ótímabær öldrun Fínar línur og hrukkur Ör eftir skurði og bólur Hörundslýti og húð- þykkildi Unglingabólur og óhrein húð Exemhúð Húðslit Mælt er með að farið sé í þrjár meðferðir með u.þ.b. tveggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Fjöldi meðferða fer þó alltaf eftir því hvaða vandamáli er verið að vinna á. Eitt skipti frískar verulega upp á húðina og gefur ljóma og gott útlit. Fyrir óhreina og bólótta húð er mælt með að lágmarki 6 meðferðum með tveggja til þriggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Sama á við um meðferð við húðsliti. Eftirmeðferð Bera skal rakakrem á meðferðarsvæði og nota rakamaska fyrstu dagana eftir meðferð. Forðast ber sól og ljósabekki í a.m.k. þrjá sólarhringa eftir meðferð. Forðast jafnframt sund og heita potta í a.m.k. þrjá sólar- hringa. Sleppa skal líkams- rækt sama dag og meðferð á sér stað. Nota á SPF 30 sólarvörn eða sterkari í viku eftir meðferð. Um Abaco Heilsulind Abaco Heilsulind er til húsa að Hrísalundi 1 á Akureyri. Þetta er ein best búna heilsu- lind landsins, einstakur staður til að slaka á, endurnærast og njóta lífsins. Abaco býður viðskiptavinum sínum upp á herðanudd og kaldsteina- nudd ofan í heitum potti. Steinanuddið er einstakt og mjög sérstök upplifun: Herð- ar, háls, bringa og andlit eru nudduð með köldum stein- um, sem vekur mikla vellíðan. Þetta hentar fyrir pör og hópa. Einnig er boðið upp á andlitsmaska í pottinum. Viðskiptavinir Abaco eru hvattir til að nýta sér aðgang að baðstofunni þegar komið er í nudd eða snyrtimeðferð, en aðgangur er innifalinn í öllum meðferðum. Vínveitingaleyfi er á staðnum og gestir geta hresst sig á víni, bjór eða gosdrykkjum. Í Abaco Heilsulind er boðið upp á allar helstu snyrti- meðferðir, eins og litun og plokkun, hand- og fótsnyrtingu, vaxmeðferðir, Guinot and- litsmeðferðir og demants- húðslípun. Abaco Heilsulind er eina stofan á Akureyri sem býður upp á St.Tropez brúnkumeðferðir. Auk þess eru í boði lasermeðferðir til háreyðingar og til að vinna á háræðasliti. Enn fremur er til staðar frystipenni sem virkar á húðflipa og vörtur. Boðið er upp á flestar tegundir af nuddi, eins og slökunarnudd, heilsunudd, íþróttanudd, ilmolíunudd og heit- og kaldsteina- nudd. Einnig er í boði með- göngunudd en á stofunni er sérstakur meðgöngubekkur. Í Abaco starfa hjúkrunar- fræðingur, snyrtifræðingar og nuddarar. Í Abaco er auk þess glæsi- leg ljósastofa og eru fjórir Ergoline-ljósabekkir. Þá má geta þess að á staðnum er til sölu úrval húð- snyrtivara, meðal annars frá Guinot, Sothys, Alessandro, St. Tropez og margt fleira. Símanúmer hjá Abaco Heilsulind er 462-3200 og netfangið er abaco@abaco. is. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni abaco.is. Gjafabréf í vellíðan og dekur er jólagjöf sem gleður ABAco HEilSUliND, HrÍSAlUNDi 1, AkUrEyri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.