Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2017, Blaðsíða 64
4 Gjafabréf Helgarblað 8. desember 2017KYNNINGARBLAÐ
Það verður sífellt vin-sælla að gefa upplifun og vellíðan í jólagjöf og
þar koma gjafabréfin sterk
inn. Gjafabréf í Abaco Heilsu-
lind á Akureyri er jólagjöf sem
gleður marga. Vinsælust eru
gjafabréf í nudd, fótsnyrtingu,
andlitsmeðferðir og bað-
stofudekur. Dekurdagar eru
líka vinsælir en þar er búið
að setja saman vinsælustu
meðferðirnar á staðnum og
er þá gefinn afsláttur eftir
því hvað keypt er fyrir háa
upphæð, 5–15% afsláttur.
Einnig er vinsælt að kaupa
fyrir ákveðna upphæð og
viðkomandi getur ráðið hvað
hann gerir. Þess má geta að
hægt er að nota gjafabréfin
í annað en það sem á þeim
stendur ef eigandi bréfsins
óskar þess.
Gjafabréfin eru til sölu á
staðnum, að Hrísalundi 1,
en einnig er hægt að hr-
ingja í síma 462-3200 eða
senda fyrirspurn á netfangið
abaco@abaco.is.
Húðslípun er afar öflug
og örugg húðmeðferð sem
Abaco Heilsulind á Akureyri
býður upp á. Meðferðin er
framkvæmd með Silk Peel
húðslípunartæki. Þetta er
heildræn húðmeðferð þar
sem ysta lag húðarinnar er
fjarlægt með notkun ör-
smárra kristalla og demanta.
Árangurinn er sléttari, mýkri
og þéttari húð, auk þess sem
áferð húðarinnar verður
fallegri. Húðslípun er með-
ferð sem hentar fólki á öllum
aldri og er örugg fyrir allar
húðgerðir. Strax eftir fyrstu
meðferð fær húðin ferskan
blæ, verður þéttari, mýkri,
hreinni og unglegri.
Þessi einstaka húðmeð-
ferð lætur húðina líta betur
út og endurheimta ljóma
sinn. Dauðar húðfrumur eru
fjarlægðar, blóðflæði örvað
og vöxtur nýrra fruma og
bandvefur örvast. Meðferðin
bætir áferð og vinnur gegn
öldrun húðarinnar. Eldri húð
sem farin er að þynnast
styrkist og þéttist. Meðferðin
veitir örugga hreinsun á yfir-
borði húðarinnar, dregur úr
húðstíflum og opnar húðholur
dragast saman. Sjáanlegur
munur á húðinni er eftir hvert
skipti og verða stöðugar
framfarir á ástandi hennar.
Húðslípun vinnur með-
al annars á eftirtöldum
vandamálum:
Ótímabær öldrun Fínar línur
og hrukkur Ör eftir skurði og
bólur Hörundslýti og húð-
þykkildi Unglingabólur og
óhrein húð Exemhúð Húðslit
Mælt er með að farið sé
í þrjár meðferðir með u.þ.b.
tveggja vikna millibili til að
ná sem bestum árangri.
Fjöldi meðferða fer þó alltaf
eftir því hvaða vandamáli er
verið að vinna á. Eitt skipti
frískar verulega upp á húðina
og gefur ljóma og gott útlit.
Fyrir óhreina og bólótta húð
er mælt með að lágmarki 6
meðferðum með tveggja til
þriggja vikna millibili til að ná
sem bestum árangri. Sama á
við um meðferð við húðsliti.
Eftirmeðferð
Bera skal rakakrem á
meðferðarsvæði og nota
rakamaska fyrstu dagana
eftir meðferð. Forðast ber
sól og ljósabekki í a.m.k. þrjá
sólarhringa eftir meðferð.
Forðast jafnframt sund og
heita potta í a.m.k. þrjá sólar-
hringa. Sleppa skal líkams-
rækt sama dag og meðferð
á sér stað. Nota á SPF 30
sólarvörn eða sterkari í viku
eftir meðferð.
Um Abaco Heilsulind
Abaco Heilsulind er til húsa
að Hrísalundi 1 á Akureyri.
Þetta er ein best búna heilsu-
lind landsins, einstakur staður
til að slaka á, endurnærast
og njóta lífsins. Abaco býður
viðskiptavinum sínum upp
á herðanudd og kaldsteina-
nudd ofan í heitum potti.
Steinanuddið er einstakt og
mjög sérstök upplifun: Herð-
ar, háls, bringa og andlit eru
nudduð með köldum stein-
um, sem vekur mikla vellíðan.
Þetta hentar fyrir pör og
hópa. Einnig er boðið upp á
andlitsmaska í pottinum.
Viðskiptavinir Abaco eru
hvattir til að nýta sér aðgang
að baðstofunni þegar komið
er í nudd eða snyrtimeðferð,
en aðgangur er innifalinn í
öllum meðferðum.
Vínveitingaleyfi
er á staðnum
og gestir geta
hresst sig á
víni, bjór eða
gosdrykkjum.
Í Abaco
Heilsulind er
boðið upp á allar
helstu snyrti-
meðferðir, eins
og litun og plokkun,
hand- og fótsnyrtingu,
vaxmeðferðir, Guinot and-
litsmeðferðir og demants-
húðslípun. Abaco Heilsulind
er eina stofan á Akureyri
sem býður upp á St.Tropez
brúnkumeðferðir. Auk þess
eru í boði lasermeðferðir til
háreyðingar og til að vinna á
háræðasliti. Enn fremur er til
staðar frystipenni sem virkar
á húðflipa og vörtur.
Boðið er upp á flestar
tegundir af nuddi, eins og
slökunarnudd, heilsunudd,
íþróttanudd, ilmolíunudd
og heit- og kaldsteina-
nudd. Einnig er í boði með-
göngunudd en á stofunni er
sérstakur meðgöngubekkur.
Í Abaco starfa hjúkrunar-
fræðingur, snyrtifræðingar
og nuddarar.
Í Abaco er auk þess glæsi-
leg ljósastofa og eru fjórir
Ergoline-ljósabekkir.
Þá má geta þess að á
staðnum er til sölu úrval húð-
snyrtivara, meðal annars frá
Guinot, Sothys, Alessandro,
St. Tropez og margt fleira.
Símanúmer hjá Abaco
Heilsulind er 462-3200 og
netfangið er abaco@abaco.
is. Nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðunni
abaco.is.
Gjafabréf í vellíðan og
dekur er jólagjöf sem gleður
ABAco HEilSUliND, HrÍSAlUNDi 1, AkUrEyri