Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 45
menning 45Helgarblað 22. desember 2017 Metsölulisti Eymundsson Vikuna 10.–16. desember Vinsælast í bíó Helgina 15.–17. desember Vinsælast á Spotify Mest spilun 20. desember 1 Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson 2 Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson 3 Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason 4 Gatið - Yrsa Sigurðardóttir 5 Þitt eigið ævintýri - Ævar Þ. Benediktsson 6 Amma best - Gunnar Helgason 7 Mistur - Ragnar Jónasson 8 Fuglar - Hjörleifur Hjartarson/Rán Flygenring 9 Heima - Sólrún Diego 10 Syndafallið - Mikael Torfason 1 Star Wars: The Last Jedi 2 Daddy's Home 2 3 Coco 4 Murder on the Orient Express 5 Wonder 6 Justice League 7 A Bad Moms Christmas 8 Litla Vampíran - The Little Vampire 9 I, Tonya 10 Jigsaw 1 Út í geim - Birnir 2 Ungir strákar - deep mix - Floni 3 Já ég veit - Birnir og Herra Hnetusmjör 4 Snjókorn falla - Laddi 5 Trappa - Floni 6 Ég hlakka svo til - Svala, Björgvin 7 Ef ég nenni - Helgi Björnsson 8 Rockstar - Post Malone og 21 Savage 9 Þú komst með jólin til mín - Ruth 10 Last Christmas - Wham! Úr listheiminum n Myndlistarráð hefur tilkynnt stofnun Íslensku myndlistarverð- launanna, en þau verða veitt í fyrsta skipti í febrúar. Verðlaunin verða veitt í tveimur flokkum, Myndlist- armaður ársins og Hvatningarverð- laun ársins, og er markmið þeirra að vekja athygli á því sem vel er gert á sviði myndlistar. n Ráðning Stef- áns Hilmarssonar tónlistarmanns í starf for- stöðumanns rekstrarsviðs STEF var á dögunum kærð til fulltrúaráðs samtakanna, sem vísaði kærunni frá. Það var Hjálmar H. Ragnarsson, fyrrverandi rektor LHÍ og formaður Tónskáldafélags Íslands, sem kærði ráðninguna og sagði hana þverbrjóta samþykktir samtak- anna. Í frétt mbl.is svarar Jakob Frímann Magnússon stjórnarfor- maður á þann veg að hann varði ekkert um að „einhverjum einum litlum höfundi“ detti í hug að gera athugasemd við ráðninguna og bið- ur hann heldur að finna sér eitthvað betra að gera – „kannski að reyna að semja einhver almennileg lög.“ n Jón Páll Eyjólfs- son hefur sagt upp störfum eftir þrjú ár sem leik- hússtjóri Leikfé- lags Akureyrar, en mun starfa út leik- árið. Í Facebook-færslu greinir Jón Páll frá því að hann telji að með nýjum samning Akureyrar og Menningarfélags bæjarins verði ómögulegt að ná þeim markmiðum sem sett voru í stefnumótunarvinnu leikfélagsins sem hann var ráðinn til að stýra. Hann segir samninginn afhjúpa skort á skilningi á mikilvægi LA sem hreyfiafls í samfélaginu og þau áhrif sem það hefur á lífsgæði og möguleika til auðugs lífs í bæn- um. Einnig segir hann stöðuga óvissu um fjárhagslega stöðu fyrirtækisins hafa gert starf hans nærri ómögu- legt og valdið honum óbærilegri streitu og vanlíðan sem hafi dregið úr starfsþrótti hans og ánægju. Mér fannst þetta eiginlega vera það sama og var að gerast í Hollywood með miklum tilkostnaði og mik- illi tilgerð. Ég hafði verið að vinna með ljósmyndurum sem voru þeir þekktustu sem uppi hafa verið í þessum tískuljósmyndaheimi og var því á mjög góðum stað til að verða fyrir smá hughrifum.“ Túristar stela myndunum Eftir nokkrar smærri tilraunir með börnum kunningja sinna ákvað Hálfdan að kaupa upp lagerinn af einnota myndavélum hjá ís- lenskri ljósmyndavöruverslun og senda á fimm ára leikskólabörn um allt land. „Ég var svo heillaður af þessari saklausu nálgun,“ segir hann. Í heildina voru þetta um 1.200 börn í öllum bæjar- og sveitarfélögum á Íslandi sem fengu vélar og voru beðin um að taka myndir af því sem fyrir augu bar á einni viku, og foreldrar voru vinsamlegast beðnir um að skipta sér sem allra minnst af. Þegar myndavélarnar komu til baka tók svo við ærið verkefni, að framkalla stafrænt og fara í gegn- um einhverjar 35 þúsund mynd- ir og sigta út það besta. „Mynd- irnar eru alls konar, það er allur skalinn i tilfinningum, þær geta verið abstrakt eða ætlað að fanga tiltekið augnablik, margar þeirra eru listrænar og allar lausar við til- gerð. Með því að fletta í gegnum þetta fær maður að upplifa sjón- arhorn barnanna, enda sjaldnast teknar úr meira en 90 sentimetra hæð. Það er mikið verið að horfa upp á heiminn eins og við þekkj- um hann. Gæludýrin, leikföngin, náttúran og fjölskyldan var hvað helst fyrir valinu sem myndefni,“ segir Hálfdan og tekur undir með blaðamanni þegar hann nefnir að fagurfræðin sem þarna birtist sé svolítið svipuð þeirri sem hef- ur verið áberandi að undanförnu, áhersla á hið hversdagslega, hráa og viðvangingslega – yfirlýstar ljósmyndir, fókusinn óákveðinn og innrömmunin óvenjuleg. Hálfdan segst ekki eiga sér neina uppáhaldsmynd en sé tengdur mörgum þeirra sterk- um böndum „Ég á mikið af uppá- haldsmyndum, þær eru allar sér- stakar á sinn hátt. Þetta er þar að auki einhver besti heimildabanki sem um getur um íslensk heim- ili. Ég hef verið inni á þeim ansi mörgum þegar ég hef farið í gegn- um þessar myndir,“ segir hann. Myndirnar hafa verið sýndar við nokkur tilefni frá því að verkefnið fór fram, úrval þeirra hefur birst á ljósmyndasýningum á Menn- ingarnótt og Listahátíð í Reykja- vík, og hafa hangið uppi í gistiher- bergjum á KEX Hostel, en þar segir Hálfdan að þær hafi kannski not- ið örlítið of mikilla vinsælda: „Það hefur verið mjög mikið um það að myndirnar séu skrúfaðar niður af veggjunum, annaðhvort teknar úr römmunum eða ramminn allur tekinn. En þetta var kannski bara staðfesting á því að þessar myndir lögðust vel í erlenda aðila.“ Vonast til að kynnast ljósmyndurunum Nú birtist hluti myndanna í fyrsta skipti á bók sem Hálfdan gefur út sjálfur, 215 blaðsíðna listræna ljós- myndabók með verkum eftir 107 ljósmyndara. En hafa ljósmyndararnir sjálf- ir eitthvað haft um notkun mynd- anna að segja, fá þau eitthvað út úr þessu? „Á hvaða veg? Fjárhagslega? Til dæmis. „Það fær nú enginn neitt út úr þessu fjárhagslega, kostnaður- inn er miklu meiri en það. Hverri myndavél fylgdi bréf þar sem for- eldrar afsöluðu réttinum til mín – ég framkallaði ekki filmur sem ekki fylgdi slíkt bréf – og það var alltaf ljóst að verkefninu var ætl- að að verða að bók að lokum. Fjár- hagslega er þetta mínusmál og bara hugsjónadrifið.“ Veistu til þess að einhver barn- anna hafi fylgst með ferlinu áfram? „Nei, en núna þegar þetta var loksins í höfn var haft samband við öll börnin sem eiga mynd í bókinni og mikil spenna að fá að sjá útkomuna. Ég veit ósköp lítið um ljósmyndarana en vonast til að kynnast einhverjum þeirra í út- gáfuhófinu.“ Fimm er fáanleg á KEX hostel, í verslunum Geysis, í Bókabúð Máls og menningar og í verslunum Ey- mundsson, en 500 krónur af hverri seldri bók rennur til Barnaspítala Hringsins. n „Það hefur verið mjög mikið um það að myndirnar séu skrúfaðar niður af veggjunum, annaðhvort teknar úr römmunum eða ramminn allur tekinn. Mynd Jóhann - Sauðarkrókur Mynd Hrund - Húsavík þema. Þar er sögð saga nunnu, sem hefur lifað í einangrun vegna hræðslu við að þjónn kirkjunnar ljóstri upp um leyndarmál hennar. Í báðum tilvikum er það kirkjunn- ar fólk sem er gerendur, í báðum tilvikum er saklaust fólk þolendur. Ólafur Jóhann stígur hér inn í heim glæpasögunnar, en þó á sín- um forsendum. Sögur hans hafa oft byggst á einstaklingum sem hafa búið erlendis, en finna sig knúna til að snúa heim til að tak- ast á við gömul leyndarmál. Hér er aðalpersónan ekki íslensk, en örlögin verða ekki umflúin og við- komandi kemur til Íslands eftir áratuga fjarveru vegna óumflýjan- legs uppgjörs. Þessi skáldsaga kemur út á athyglisverðum tíma. Fjölmiðlar heimsins eru fullir af frásögnum kvenna sem loksins hafa ákveðið að stíga fram og skýra frá kynferð- islegri áreitni og ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir, oft fyrir mörgum áratugum. Þær sem ekki hafa þor- að, stíga nú fram og tala. Sakra- ment Ólafs Jóhanns fellur vel inn í þessa umræðu. Það er löngu orðið tímabært að stíga fram og segja sannleikann, þótt hann geti verið sár. Skáldsögur Ólafs Jóhanns eru yfirleitt auð- veldar aflestrar en skilja samt eftir sig djúp spor. Þetta er sorgleg saga, með djúpan undirtón sem læt- ur engan ósnortinn. Lítið meistaraverk. n „Það er löngu orðið tímabært að stíga fram og segja sann- leikann, þótt hann geti verið sár. Ólafur Jóhann Þó að skáldsögur Ólafs séu yfirleitt auðveldar aflestrar skilja þær eftir sig djúp spor. Tveir kennarar hætta Tveir kennarar við sviðslistadeild Listaháskóla Ís- lands hættu á föstu- dag í kjölfar ásak- ana um ósæmilega hegðun, en ásakan- irnar koma í kjöl- far umræðu um kynferðislega áreitni og ofbeldi á undanförnum vikum undir myllumerkinu Metoo. Stefán Jónsson, fagstjóri á leikarabraut sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands, mun stíga til hliðar við leikstjórn lokaverk- efnis útskriftarnema við skólann og mun ljúka störfum hjá skólan- um næsta sumar eftir 10 ára starf þar. Pistill Birnu Rúnar Eiríks- dóttur leikkonu, sem vakti mikla athygli, fjallaði meðal annars um Stefán. Þar lýsti hún andlegu of- beldi, meðal annars kröfum um að hún skyldi vera kynþokkafull og sýna hold í leiksýningu. Þá hefur Stefán Hallur Stef- ánsson leikari sagt sig frá allri kennslu og leikstjórn útvarps- leikhússins. „Þetta var samskon- ar ákvörðun [og hjá Stefáni] um að stíga til hliðar til að standa vörð um trúverðugleika námsins og sýna ábyrgð,“ segir Steinunn Knútsdóttir, forseti sviðslista- deildar LHÍ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.