Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2017, Blaðsíða 65
fólk 65Helgarblað 22. desember 2017
Allt þAð sem
Jólin eru á næsta leiti og öll eigum við
minningar um okkar uppáhaldsjólagjöf,
gjöf sem sló í gegn jólin sem hún var gefin.
Einnig langar okkur öllum í eitthvað í
jólagjöf, sumum eitthvað lítið og öðrum
stærra og íburðarmeira. DV fékk nokkra
þekkta einstaklinga til að segja frá þeirra
uppáhaldsjólagjöf hingað til og hvað þá
langar í í jólagjöf núna í ár.
ragna@dv.is
þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir
ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra
„Ég kaus að líta á það sem jólagjöf
í fyrra þegar dóttir okkar hresstist
ótrúlega aðfaranótt aðfangadags,
þá orðin þriggja mánaða, eftir margar
vikur á spítala með kíghósta. Svo man
ég eftir því að hafa fengið sléttujárn
frá foreldrum mínum í jólagjöf í 9.
bekk og mér fannst það meiriháttar
bylting fyrir krullurnar og skvísulætin.
Í jólagjöf í ár langar mig mest í góðar
bækur.“
Yrsa sigurðardóttir
rithöfundur og byggingaverkfræðingur
„Ég man einna best eftir dúkku sem ég fékk frá
foreldrum mínum þegar ég var um níu ára. Sú gat
hjólað og þó hún hefði seint unnið Tour de France
þá fannst mér hún ótrúlegt undur. Þar sem ég
er þegar búin að kaupa flestar bækur sem mig
langar að lesa þá myndu skór gleðja mig mjög í
jólagjöf í ár. Því hærri hælar, því betra.“
stefán Jakobsson
söngvari Dimmu og Föstudagslaganna
„Foreldrar mínir gáfu mér míkrófónn,
míkrófónstand og nótnastand fyrir
tæpum 20 árum. Það var nothæfasta
gjöf sem ég hef fengið. Í ár langar mig í
utanlandsferð á heitan stað.“
eyþór Árnason
skáld og sviðsstjóri Hörpu
„Ég man þegar ég fékk fótboltaspil ungur drengur í sveitinni. Ég
ærðist af fögnuði. Kallarnir, bláir og rauðir, dönsuðu á gormum
og það söng í þegar maður þrusaði stálkúlunni í markið. Þá átti
maður stóra fótboltadrauma og lét þá rætast þar sem maður
lá á hnjánum á stofugólfinu og skoraði frá miðju. 1-0 fyrir bláu
kallana. Ef ég fæ bók og sokka í jólagjöf í ár, þá er ég glaður.“
Hanna Rún Bazev Óladóttir
dansari
„Ég hef fengið svo margt fallegt sem ég eiginlega bara get ekki gert upp á
milli, fallegt handsmíðað skart eftir pabba, handgerða bók með myndum
og textum, demantshring frá manninum og svo margt fleira persónulegt
og fallegt, en ég veit að gjöfin sem sonur okkar gefur okkur í ár verður uppá-
halds. Ég veit ekkert hvað er inni í pakkanum, en ég veit að þetta er eitthvað
sem hann hefur föndrað alveg sjálfur og mér þykir strax svo vænt um fallega
pakkann sem er skreyttur með glimmeri sem hann setti sjálfur á og bíður eftir
að verða opnaður. Það er ekkert sem ég óska mér sérstaklega í jólagjöf, nema
auðvitað að öllum líði vel og hafi það gott og notalegt um jólin, svo sagði ég
reyndar mömmu að mig langaði í einhvern fínan púða inn í herbergi.“
sigrún lilja Guðjónsdóttir
athafnakona og eigandi Gyðju Collection
„Nýr kósígalli, loðinniskór, súkkulaði og góð bók
gera aðfangadagskvöldið mitt, þannig að það
er alltaf ein af mínum uppáhaldsgjöfum. Jóla-
sveinninn sér oftast til þess að ég fái þetta að
gjöf á hverju ári. Ég elska að fá ný rúmföt og eru
þau ofarlega á jólagjafalistanum í ár. Svo langar
mig reyndar líka í fallegt snyrtiborð með ljósum
en hver veit hvað kemur undan jólatrénu í ár.“
éG ÓsKA méR