Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 15
KYNNING
Ný fjármögnunarleið:
Fáðu kröfurnar þínar
greiddar strax!
Faktoría Fjármagnar ógreiddar kröFur
Faktoría er nýtt fjármálatæknifyrirtæki (e. fintech) sem býður fyrir
tækjum að fjármagna kröfur
þeirra. Fjárflæði fyrirtækja
getur verið mjög sveiflukennt
en kostnaðurinn fer aldrei í
frí, það þarf að greiða laun
og launatengd gjöld um hver
mánaðamót auk fjölmargra
annarra fastra kostnaðarliða,
á meðan útistandandi kröfur
falla ekki á gjalddaga fyrr
en eftir mánuð eða mánuði.
Þessar kröfur eru hins vegar
fjármagnaðar strax hjá Fakt
oríu, biðin eftir peningunum
getur farið alveg niður í eina
klukkustund.
„Við erum að bjóða nýja
tegund af fjármögnun fyrir
fyrirtæki sem er nokkuð til
hliðar við allt skrifræðið og
biðina sem fylgir hefðbund
inni lánafyrirgreiðslu,“ segir
Hörður Bender, stofnandi
og eigandi Faktoría, en auk
hans starfa við fyrirtækið
þeir Finnur Freyr gunnarsson
og Haukur Baldvinsson og
saman mynda þeir þriggja
manna samhent teymi. Hin
skilvirka og hraða þjónusta
Faktoríu hvílir á afar velvirk
um hugbúnaði sem þróaður
var í nokkur ár og prófaður
með örfáum viðskiptavinum
áður en starfsemin hófst
formlega fyrir rétt rúmu
ári: „Við erum hluti af hinni
svokölluðu Fintech. bylgju,
þ.e. Financial technology, en
hjá Seðlabanka íslands og
á alþingi hefur verið kallað
eftir meiri flóru í fjármálageir
anum. Við erum klárlega að
svara því kalli,“ segir Hörður.
Það er fleira sem gerir
kröfufjármögnun þægilegri
en hefðbundna fjármögnun:
Það þarf engin veð. Það þarf
bara gilda kröfu, Faktoría
gengur úr skugga um að
reikningurinn sé réttur og þar
með er forsendan fyrir fyrir
greiðslu komin.
að sjálfsögðu innheimt
ast ekki allar kröfur og því
er áhætta í spilunum sem
Faktoría tekur á sig, en föst
innheimtuþóknun er 2,5% af
kröfunni. Það þýðir til dæmis
25.000 krónur af 1 milljón,
sem fyrir marga er lítið í sam
anburði við það óhagræði
sem hlýst af því að bíða eftir
að viðskiptavinir greiði kröfur
eða fá hefðbundna lánafyrir
greiðslu hjá banka.
að sögn Harðar er mark
hópur Faktoríu lítil og meðal
stór fyrirtæki eða nánar
tiltekið fyrirtæki með 5 til 100
starfsmenn: „Stærsti geirinn
hjá okkur er byggingar
iðnaðurinn og síðan eru það
sjávarútvegurinn og ferða
þjónustan. Ferðaþjónustan er
gott dæmi um starfsemi þar
sem fjárflæði er ójafnt. Það
er oft gott yfir sumarið en
síðan er mun erfiðara að reka
fyrirtækin yfir vetrartímann.
Þá er gott að hafa þessa
fyrirgreiðslu sem jafnar út
sveiflurnar. núna eru sér
verslanir töluvert að leita til
okkar, sem vantar fjármagn
til að byggja sig upp fyrir
jólin, þurfa að fylla á lagerinn
og það er þungt að leggja
út fyrir slíku þó að það eigi
eftir að skila sér allt til baka í
jólasölunni,“ segir Hörður.
Sem fyrr segir hefur
Faktoría aðeins verið í rúmt
ár á markaðnum eftir langan
aðdraganda þar sem menn
huguðu vandlega að því að
treysta tæknilegan grunn
starfseminnar. Hörður segir
að viðtökurnar hafi verið
frábærar og þjónustan er
greinilega kærkomin fyrir
mörg lítil og meðalstór fyrir
tæki.
Þeir sem hafa áhuga á að
kynna sér þjónustuna betur
og hafa ef til vill þörf fyrir
fjármögnun af þessu tagi
ættu endilega að skoða vel
vef fyrirtækisins, faktoria.
is. Þar eru greinargóðar og
aðgengilegar upplýsingar auk
þjónustuvefjar þar sem við
skiptavinir taka nokkur skref
að fjármögnuninni í einföldu
og traustu ferli.
Á vefnum er einnig að
finna símanúmer þeirra
Harðar, Finns og Hauks og
er velkomið að hringja í þá
og fá nánari upplýsingar og
útskýringar á þjónustunni í
símtali.
Hörður Bender Finnur Freyr Gunnarsson Haukur Baldvinsson