Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 8
8 Helgarblað 5. janúar 2018fréttir Á nýju ári hyggst velferðarsvið Reykjavíkurborgar hrinda af stað tilraunaverkefni sem snýst um að bjóða há- skólanemum að leigja tvær þjón- ustuíbúðir í þjónustukjörnum fyrir aldraða, annars vegar í Lönguhlíð og hinsvegar í Norður brún. Verk- efnið var samþykkt á fundi velferð- arráðs Reykjavíkur þann 7. desem- ber og síðan lagt fyrir borgarráð þann 19. desember þar sem ver- kefnið flaug í gegn. „Hugmyndin kemur erlendis frá og reynslan þaðan, til dæmis frá Hollandi, er góð. Við fórum því að kanna hvort grundvöllur væri fyrir slíku verk- efni hér heima enda tekur þetta á ýmsum vandamálum sem erfitt er að leysa með öðrum hætti. Við vonumst líka til þess að verk- efnið stuðli að jákvæðari viðhorf- um ungs fólks varðandi það að vera í samneyti við eldri borgara og starfa með þeim,“ segir Berg- lind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri öldrunar- og húsnæðismála hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Rjúfa einangrun aldraðra Óumdeilt er að einmanaleiki og félagsleg einangrun aldraðra hefur áhrif á lífsgæði þeirra og jafnvel lífslíkur. Því gæti búseta ungs fólks gætt þjónustukjarna aldraðra lífi og orðið kærkomin tenging íbúa við samfélagið. „Að auka fjölbreytni í þjónustu við eldri borgara og þar með lífsgæði þeirra er ein af þeim áskorunum sem sveitarfélög standa frammi fyrir. Félagslegt samneyti við annað fólk er eitt af þeim mikil- vægu atriðum og með hækkandi aldri og verri heilsu eykst hætt- an á því að einangrast. Nýjar rannsóknir sýna að einmana- leiki og félagsleg einangrun aldr- aðra hafa áhrif á bæði lífsgæði og lífslíkur þeirra. Því er mikil- vægt að auka félagslega virkni og gera öldruðum kleift að taka þátt í samfélaginu þrátt fyrir heilsu- brest og aukna þörf á umönnun,“ segir Berglind. 40 klukkustunda vinnuskylda Í forsendum verkefnisins kemur fram að háskólanemarnir muni greiða sömu húsaleigu og hinir öldruðu en sleppi við að greiða þjónustugjöld og í hússjóð. Þá er gert ráð fyrir að háskólanemarn- ir gangi til liðs við starfslið þjón- ustukjarnanna og verði vinnu- skylda þeirra 40 klukkustundir á mánuði sem greitt verður fyrir. Störfin munu felast í samneyti við íbúa þjónustukjarnanna og að skipuleggja kennslustundir, tónleika eða aðra viðburði. Með verk efninu ættu háskólanemarnir að öðlast innsýn í aðstæður aldr- aðra og fá reynslu af því að starfa með öldruðum á velferðarsviði. „Við erum að undirbúa að aug- lýsa eftir leigjendum fyrir íbúðirn- ar og reynum að vinna það hratt og vel. Í umsóknunum verður óskað eftir hugmyndum frá leigjendun- um um hvernig kraftar þeirra geti nýst til þess að glæða staðina lífi. Til dæmis gæti það falist í tölvu- kennslu eða kennslu á helstu sam- félagsmiðla, til dæmis Snapchat og Facebook. Það er í raun allt mjög opið og við bíðum bara eft- ir skemmtilegum hugmyndum frá umsækjendum. Það þarf ekki endilega að vera hópstarf því það er ekki síður mikilvægt að bjóða upp á einstaklingsmiðaðan félags- legan stuðning. Við erum bjartsýn á að þetta unga fólk verði góð við- bót við starfslið þjónustukjarnanna og komi til með að brúa bil milli kynslóðanna, öllum til heilla,“ seg- ir Berglind. Að hennar sögn hefur fjölgun aldraðra gert það að verkum að sveitarfélög standa frammi fyrir nýjum og spennandi áskorunum. „Að auka fjölbreytni í þjónustu við eldri borgara er ein ef þeim áskorunum, en einnig er horft til þess hvað það er sem eykur lífs- gæði þeirra.“ Heildarkostnaður tæplega fimm milljónir Í aðdraganda verkefnisins hefur það verið kynnt fyrir íbúum í Norðurbrún og Lönguhlíð. Íbúar voru jákvæðir fyrir verkefninu og vildi meðal annars íbúaráð Norð- urbrúnar taka virkan þátt í að velja hæfasta leigutakann. Tilraunaver- kefnið mun standa frá 1. janúar 2018 til 1. júní 2019 og er heildar- kostnaður þess samkvæmt áætl- unum um 4,8 milljónir. Árslaun leigutakanna fyrir sitt starf verða um 1,1 milljón. Húsaleigan verður á svipuðum kjörum og hjá Félags- stofnun stúdenta, það er innan við 50 þúsund á mánuði að teknu til- liti til húsnæðisbóta. Hjá Félags- stofnun stúdenta eru í dag um 500 manns á biðlista eftir sambæri- legu húsnæði. Eins og áður segir hafa íbúar í Norðurbrún tekið hugmyndinni fagnandi. „Þetta er góð hugmynd og sjálfsagt að setja þetta verkefni af stað. Ef vel tekst til þá er ég viss um að þetta muni koma öllum vel og ekki síst unga fólkinu sem fær þarna að glíma við raunveruleg verkefni í stað þess að lesa bara um hlutina í skólabókum,“ segir Þorbjörn Benediktsson, íbúi í Norðurbrún 1 og meðlimur í íbúaráði. n n Tilraunaverkefni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar n Fá greidd laun fyrir ýmsa þjónustu Kenna öldruðum á Snapchat og fá íbúðina á 50 þúsund Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Norðurbrún 1 Fljótlega verður íbúð fyrir háskólanema auglýst til leigu í þjónustukjarnanum en íbúð- irnar hafa hingað til verið ætlaðar öldruðum einstaklingum. Berglind Magnúsdóttir Segir að sam- bærileg verkefni hafi gengið vel erlendis, til dæmis í Hollandi. → Inni- og útimerkingar → Sandblástursfilmur → Striga- og ljósmyndaprentun → Bílamerkingar → Gluggamerkingar → Prentun á símahulstur → Frágangur ... og margt fleira Skoðaðu þjónustu okkar á Xprent.is SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.