Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 14
14 Helgarblað 5. janúar 2018fréttir - stjórnmál K osið verður til sveitarstjórna laugardaginn 26. maí næst­ komandi. Þó að kosið sé til 73 sveitarstjórna á landsvísu beinast augu flestra að Reykjavíkur­ borg þar sem allt stefnir í skraut­ legustu kosningarnar til þessa. Borgarfulltrúum fjölgar úr 15 í 23 og ólíkt alþingiskosningum þá er enginn fimm prósenta þröskuldur til að ná inn manni. Af núverandi oddvitum þá gefa aðeins Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar­ innar, og Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, áfram kost á sér. DV fór stuttlega yfir stöðuna fyrir komandi kosningar. Björt framtíð, sem datt út af þingi í síðustu alþingiskosningum, kemur til með að bjóða fram í borginni. S. Björn Blöndal hyggst ekki bjóða sig fram og óvíst er með Elsu H. Yeoman. Samkvæmt upp­ lýsingum innan flokksins er undir­ búningur á byrjunarstigi og eftir á að koma í ljós hverjir gefi kost á sér til að leiða listann. Margir koma þó til greina, þar á meðal Óttarr Proppé sem féll af þingi sem og Björt Ólafsdóttir formaður. Guðfinna Jóhanna Guðmunds­ dóttir er enn borgarfulltrúi Fram­ sóknar og flugvallarvina, þá sem flugvallarvinur. Hún leiddi lista Miðflokksins í Reykjavík í alþing­ iskosningunum en náði ekki inn á þing. Eftir kosningarnar í haust gaf hún það út að hún gæfi ekki kost á sér aftur í borgina en DV hef­ ur heimildir fyrir því að það gæti breyst ef Miðflokkurinn þrýstir á hana á að fara fram. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir sagði skil­ ið við Framsókn og flugvallarvini í fyrra og situr nú sem óháður borg­ arfulltrúi. Talið er ólíklegt að hún gefi kost á sér aftur en þá yrði það fyrir Flokk fólksins eða hugsanlega Frelsisflokkinn. Jóna Björg Sætran varaborgarfulltrúi segir það alveg bókað að Framsókn muni bjóða fram í vor, flokkurinn mun funda 10. janúar um framhaldið. Sjálfstæðismenn leita að borgarstjóraefni Staðan er enn flóknari innan Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn kemur til með að sækja hart að nú­ verandi meirihluta og leggja mikla áherslu á meinta óstjórn í fjármál­ um og þjónustu á vegum borgar­ innar. Halldór Halldórsson, nú­ verandi oddviti, gefur ekki kost á sér og í stað hefðbundins prófkjörs fer fram sérstakt leiðtogaprófkjör ásamt uppstillingu á neðri sætum. Nokkur óánægja er innan flokks­ ins með þetta fyrirkomulag þar sem það verður í höndum nefndar en ekki allra flokksmanna hverjir verða á listanum. Nokkur nöfn hafa verið nefnd sem hugsanlegt borgarstjóraefni, þá helst Halla Tómasdóttir, sem bauð sig fram til forseta árið 2016, Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrver­ andi forseti Alþingis, og Hildur Sverrisdóttir, sem féll af þingi í haust, ásamt Kjartani Magnús­ syni og Áslaugu Maríu Friðriks­ dóttur borgarfulltrúum. Marta Guðjóns dóttir hefur gefið það út að hún gefi kost á sér, en ekki í odd­ vitasæti. Einnig hafa verið nefnd nöfn Svanhildar Hólm Valsdóttur, aðstoðarmanns fjármálaráðherra, og Borgars Þórs Einarssonar, að­ stoðarmanns utanríkisráðherra, en innan Sjálfstæðisflokksins er talið ólíklegt að þau yfirgefi slík­ ar stöður fyrir borgarmálin. Þrátt fyrir að Kjartan, Áslaug, Hildur og Unnur Brá séu almennt vel liðin meðal Sjálfstæðismanna þá eru einnig efasemdir innan flokksins um hvort þau séu nógu öflug til að höfða til allra borgarbúa. Á hinn boginn eru efasemdir um hvort Halla Tómasdóttir, sem gæti skák­ að Degi B. Eggertssyni þegar kem­ ur að kjörþokka, sé best til þess fall­ in að tala máli Sjálfstæðisflokksins. Miðflokkurinn og Píratar í startholunum Skipt verður nánast alfarið um áhöfn í brúnni hjá Pírötum í vor. Halldór Auðar Svansson oddviti gefur ekki kost á sér og Þórgnýr Thoroddsen hyggst ekki sækjast eftir sæti ofarlega á lista. Sam­ kvæmt heimildum innan raða Pírata er undirbúningur hafinn og búast má við framboðum í for­ ystusæti frá Alexöndru Briem, Svafari Helgasyni og Arnaldi Sig­ urðarsyni ásamt fleirum. DV hefur fengið það staðfest innan úr Miðflokknum að þar sé unnið að framboði í Reykjavík, sem og fleiri sveitarfélögum. Enn sem komið er hefur enginn lýst yfir áhuga á að leiða flokkinn í borginni en miðað við hversu fljótur flokk­ urinn var að skipa á lista í haust þá ætti það ekki að valda áhyggjum. Fordæmalaus fjöldi framboða Fjölgun á stjórnmálaflokkum sem og lægri þröskuldur inn í borgar­ stjórn gerir það að verkum að möguleiki er á allt að tíu til tólf framboðum sem öll eiga raunhæf­ an möguleika á að ná inn fulltrúa. Fyrir utan Sjálfstæðisflokkinn, Samfylkinguna, Framsóknarflokk­ inn, Vinstri græn, Bjarta fram­ tíð, Miðflokkinn og Pírata þá stefna Sósíalistaflokkurinn, Flokk­ ur fólksins og Frelsisflokkurinn á framboð í borginni í vor, fyrir utan Viðreisn sem leitar logandi ljósi að mögulegum oddvita. Heimildir DV herma að Viðreisn hafi sóst eft­ ir kröftum Gísla Marteins Baldurs­ sonar sem hafi hafnað boðinu. Koma þá til greina þeir sem féllu af þingi síðasta haust en eins og einn viðmælandi DV orðaði það þá eru alltaf meiri líkur á að þeir sem prófað hafa pólitík gefi kost á sér en að ný andlit láti sjá sig. n Allt stefnir í kosningasirkus n Fordæmalaus fjöldi flokka í framboði n Dagur og Líf áfram oddvitar Biggi lögga Birgir Örn Guðjónsson er landsþekktur og vin- sæll. Hann var í þriðja sæti á lista Framsóknar- flokksins í alþingiskosningunum og það væri sterkur leikur hjá Framsókn að fá hann í borgina. Halla Tómasdóttir Halla náði ótrúlega góðum árangri í forseta- kosningunum árið 2016 með heil 27%. Til samanburðar hlaut Guðni Th. Jóhannesson 39,1% atkvæða. Halla gæti orðið sterkur leiðtogi hvort sem það væri fyrir Sjálfstæð- isflokkinn eða Viðreisn. Pawel Bartoszek Pawel féll af þingi fyrir Viðreisn í haust og hefur undanfarið fjallað um borgarmál á Snapchat. Pawel er vinsæll meðal þeirra sem til hans þekkja og gæti orðið sterkur fulltrúi Viðreisnar í borginni. Gísli Marteinn Þrátt fyrir að Gísli Marteinn Baldursson brenni fyrir borgarmálum þá verður að teljast ólíklegt að hann yfirgefi RÚV aftur til að þess að fara í framboð fyrir Viðreisn. Eyþór Arnalds Eyþór hefur mikla reynslu úr sveitarstjórn- armálum og mun vera efstur á lista Davíðs Oddssonar til að taka við borginni. Eyþór hefur hins vegar í nógu að snúast sem fjárfestir og eigandi Morgunblaðsins og er því ólíklegt að hann gefi kost á sér. Björt Ólafsdóttir Björt tók við sem formaður Bjartrar framtíðar af Óttari Proppé eftir að flokkurinn datt af þingi. Þar sem Bjarta framtíð vantar oddvita í Reykjavík og að öllum líkindum er langt í næstu alþingiskosningar þá verður að teljast líklegt að formaðurinn gefi kost á sér í oddvitasætið. líklegur ólíklegur líkleg líklegur líkleg ólíklegur Ari Brynjólfsson ari@pressan.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.