Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Page 14
14 Helgarblað 5. janúar 2018fréttir - stjórnmál
K
osið verður til sveitarstjórna
laugardaginn 26. maí næst
komandi. Þó að kosið sé til
73 sveitarstjórna á landsvísu
beinast augu flestra að Reykjavíkur
borg þar sem allt stefnir í skraut
legustu kosningarnar til þessa.
Borgarfulltrúum fjölgar úr 15 í 23
og ólíkt alþingiskosningum þá er
enginn fimm prósenta þröskuldur
til að ná inn manni. Af núverandi
oddvitum þá gefa aðeins Dagur B.
Eggertsson, oddviti Samfylkingar
innar, og Líf Magneudóttir, oddviti
Vinstri grænna, áfram kost á sér.
DV fór stuttlega yfir stöðuna fyrir
komandi kosningar.
Björt framtíð, sem datt út af
þingi í síðustu alþingiskosningum,
kemur til með að bjóða fram í
borginni. S. Björn Blöndal hyggst
ekki bjóða sig fram og óvíst er með
Elsu H. Yeoman. Samkvæmt upp
lýsingum innan flokksins er undir
búningur á byrjunarstigi og eftir á
að koma í ljós hverjir gefi kost á sér
til að leiða listann. Margir koma
þó til greina, þar á meðal Óttarr
Proppé sem féll af þingi sem og
Björt Ólafsdóttir formaður.
Guðfinna Jóhanna Guðmunds
dóttir er enn borgarfulltrúi Fram
sóknar og flugvallarvina, þá sem
flugvallarvinur. Hún leiddi lista
Miðflokksins í Reykjavík í alþing
iskosningunum en náði ekki inn á
þing. Eftir kosningarnar í haust gaf
hún það út að hún gæfi ekki kost
á sér aftur í borgina en DV hef
ur heimildir fyrir því að það gæti
breyst ef Miðflokkurinn þrýstir á
hana á að fara fram. Sveinbjörg
Birna Sveinbjörnsdóttir sagði skil
ið við Framsókn og flugvallarvini í
fyrra og situr nú sem óháður borg
arfulltrúi. Talið er ólíklegt að hún
gefi kost á sér aftur en þá yrði það
fyrir Flokk fólksins eða hugsanlega
Frelsisflokkinn. Jóna Björg Sætran
varaborgarfulltrúi segir það alveg
bókað að Framsókn muni bjóða
fram í vor, flokkurinn mun funda
10. janúar um framhaldið.
Sjálfstæðismenn leita
að borgarstjóraefni
Staðan er enn flóknari innan
Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn
kemur til með að sækja hart að nú
verandi meirihluta og leggja mikla
áherslu á meinta óstjórn í fjármál
um og þjónustu á vegum borgar
innar. Halldór Halldórsson, nú
verandi oddviti, gefur ekki kost á
sér og í stað hefðbundins prófkjörs
fer fram sérstakt leiðtogaprófkjör
ásamt uppstillingu á neðri sætum.
Nokkur óánægja er innan flokks
ins með þetta fyrirkomulag þar
sem það verður í höndum nefndar
en ekki allra flokksmanna hverjir
verða á listanum.
Nokkur nöfn hafa verið nefnd
sem hugsanlegt borgarstjóraefni,
þá helst Halla Tómasdóttir, sem
bauð sig fram til forseta árið 2016,
Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrver
andi forseti Alþingis, og Hildur
Sverrisdóttir, sem féll af þingi í
haust, ásamt Kjartani Magnús
syni og Áslaugu Maríu Friðriks
dóttur borgarfulltrúum. Marta
Guðjóns dóttir hefur gefið það út
að hún gefi kost á sér, en ekki í odd
vitasæti. Einnig hafa verið nefnd
nöfn Svanhildar Hólm Valsdóttur,
aðstoðarmanns fjármálaráðherra,
og Borgars Þórs Einarssonar, að
stoðarmanns utanríkisráðherra,
en innan Sjálfstæðisflokksins er
talið ólíklegt að þau yfirgefi slík
ar stöður fyrir borgarmálin. Þrátt
fyrir að Kjartan, Áslaug, Hildur og
Unnur Brá séu almennt vel liðin
meðal Sjálfstæðismanna þá eru
einnig efasemdir innan flokksins
um hvort þau séu nógu öflug til að
höfða til allra borgarbúa. Á hinn
boginn eru efasemdir um hvort
Halla Tómasdóttir, sem gæti skák
að Degi B. Eggertssyni þegar kem
ur að kjörþokka, sé best til þess fall
in að tala máli Sjálfstæðisflokksins.
Miðflokkurinn og
Píratar í startholunum
Skipt verður nánast alfarið um
áhöfn í brúnni hjá Pírötum í vor.
Halldór Auðar Svansson oddviti
gefur ekki kost á sér og Þórgnýr
Thoroddsen hyggst ekki sækjast
eftir sæti ofarlega á lista. Sam
kvæmt heimildum innan raða
Pírata er undirbúningur hafinn
og búast má við framboðum í for
ystusæti frá Alexöndru Briem,
Svafari Helgasyni og Arnaldi Sig
urðarsyni ásamt fleirum.
DV hefur fengið það staðfest
innan úr Miðflokknum að þar sé
unnið að framboði í Reykjavík,
sem og fleiri sveitarfélögum. Enn
sem komið er hefur enginn lýst yfir
áhuga á að leiða flokkinn í borginni
en miðað við hversu fljótur flokk
urinn var að skipa á lista í haust þá
ætti það ekki að valda áhyggjum.
Fordæmalaus fjöldi framboða
Fjölgun á stjórnmálaflokkum sem
og lægri þröskuldur inn í borgar
stjórn gerir það að verkum að
möguleiki er á allt að tíu til tólf
framboðum sem öll eiga raunhæf
an möguleika á að ná inn fulltrúa.
Fyrir utan Sjálfstæðisflokkinn,
Samfylkinguna, Framsóknarflokk
inn, Vinstri græn, Bjarta fram
tíð, Miðflokkinn og Pírata þá
stefna Sósíalistaflokkurinn, Flokk
ur fólksins og Frelsisflokkurinn á
framboð í borginni í vor, fyrir utan
Viðreisn sem leitar logandi ljósi
að mögulegum oddvita. Heimildir
DV herma að Viðreisn hafi sóst eft
ir kröftum Gísla Marteins Baldurs
sonar sem hafi hafnað boðinu.
Koma þá til greina þeir sem féllu
af þingi síðasta haust en eins og
einn viðmælandi DV orðaði það
þá eru alltaf meiri líkur á að þeir
sem prófað hafa pólitík gefi kost á
sér en að ný andlit láti sjá sig. n
Allt stefnir í
kosningasirkus
n Fordæmalaus fjöldi flokka í framboði n Dagur og Líf áfram oddvitar
Biggi lögga
Birgir Örn Guðjónsson er landsþekktur og vin-
sæll. Hann var í þriðja sæti á lista Framsóknar-
flokksins í alþingiskosningunum og það væri
sterkur leikur hjá Framsókn að fá hann í borgina.
Halla Tómasdóttir
Halla náði ótrúlega góðum árangri í forseta-
kosningunum árið 2016 með heil 27%. Til
samanburðar hlaut Guðni Th. Jóhannesson
39,1% atkvæða. Halla gæti orðið sterkur
leiðtogi hvort sem það væri fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn eða Viðreisn.
Pawel Bartoszek
Pawel féll af þingi fyrir Viðreisn í haust og
hefur undanfarið fjallað um borgarmál á
Snapchat. Pawel er vinsæll meðal þeirra
sem til hans þekkja og gæti orðið sterkur
fulltrúi Viðreisnar í borginni.
Gísli Marteinn
Þrátt fyrir að Gísli Marteinn Baldursson
brenni fyrir borgarmálum þá verður að
teljast ólíklegt að hann yfirgefi RÚV aftur til
að þess að fara í framboð fyrir Viðreisn.
Eyþór Arnalds
Eyþór hefur mikla reynslu úr sveitarstjórn-
armálum og mun vera efstur á lista Davíðs
Oddssonar til að taka við borginni. Eyþór
hefur hins vegar í nógu að snúast sem
fjárfestir og eigandi Morgunblaðsins og er
því ólíklegt að hann gefi kost á sér.
Björt Ólafsdóttir
Björt tók við sem formaður Bjartrar framtíðar
af Óttari Proppé eftir að flokkurinn datt af
þingi. Þar sem Bjarta framtíð vantar oddvita í
Reykjavík og að öllum líkindum er langt í næstu
alþingiskosningar þá verður að teljast líklegt að
formaðurinn gefi kost á sér í oddvitasætið.
líklegur
ólíklegur
líkleg
líklegur
líkleg ólíklegur
Ari Brynjólfsson
ari@pressan.is