Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 26
26 fólk - viðtal Helgarblað 5. janúar 2018 Skildi ekki Reyni sterka Heimildamyndin Reynir sterki eftir Baldvin Z var frumsýnd á þessu ári og sáu margir Ís­ lendingar hana í Ríkissjónvarp­ inu um jólin. Myndin fjallar um Reyni Örn Leós son sem hafði óútskýrðan fítonskraft, komst í heimsmetabækur og lést langt fyrir aldur fram árið 1982. Skúli segist ekki hafa þekkt Reyni en setið með honum í bíl einu sinni. Veistu hvernig hann gat lyft vörubifreiðum, slitið handjárn og keðjur? „Ég held að það hafi verið ein­ hver andlegur kraftur þarna að baki eins og hann sagði sjálfur. Því ég veit að hann sjálfur var ekki sterkur en hann gerði þessa hluti, það er ekki hægt að neita því. Ég horfi öðruvísi á þetta í dag en ég gerði þegar ég var yngri. Þá fannst mér þetta vera eintómt blöff. En hann keppti aldrei. Hann sagðist hafa hitt Jesú sem hafi sagt hon­ um að hann mætti ekki keppa við dauðlega menn.“ Ert þú trúaður? „Það er að byrja. Ég er búinn að sjá svo margt og heyra að ég ætla að hafa það sem varnagla. Ég var trúaður þegar ég var yngri en ekki síðustu ár.“ Hefði hann sigrað ykkur lyft- ingamennina í keppni? „Miðað við þetta. En hann gat greinilega ekki notað kraftinn í það. Hann var kallaður sterkasti maður í heimi en var ekki nema 75 kílóa tittur, svipaður og ég. Ég skildi ekki hvað lá þarna að baki. Eins og til dæmis þegar sitt hvor höndin var toguð með krók, þetta virtist svo heimskulegt. Hann var hlekkur og hinir að tosa á móti hvor öðrum. Sjónvarpsmaður sagði mér að þegar slökkt var á myndavélunum hafi hann farið í venjulegan krók við einn og verið dreginn út um allt herbergið því þá hafði hann ekki mótstöðu. En þetta var stórmerkilegur maður, hann lét bara plata sig og var ekki nógu skynsamur með þetta.“ Fékk á baukinn eftir ræðu Skúli var tvívegis kjörinn íþrótta­ maður ársins, árin 1978 og eftir heimsmetið 1980. Er hann eini lyftingamaðurinn sem hefur unnið þann titil fyrir utan Jón Pál sem vann árið 1981. Var titillinn jafn mikið þrætu- epli í samfélaginu þá og hann er nú? „Það hefur alltaf verið rifist um þennan titil og allt í lagi að fólk hafi sínar skoðanir á þessu.“ Sjálfur segist hann mjög ánægð­ ur með að hafa unnið sína titla, ekki aðeins fyrir sig sjálfan heldur greinina alla. Sjálfur hefur Skúli skoðan­ ir á framkvæmd kjörsins og viðr­ aði þær í þakkarræðu hjá ÍSÍ á dögunum þegar hann var tek­ inn inn í heiðurshöllina. Þá sagði hann sína skoðun á því að fatlað­ ir íþróttamenn ættu ekki að vera í því kjöri og uppskar reiði sumra. „Ég gerði skissu að koma ekki með neinar röksemdir fyrir þessu í ræðunni. Fatlaðir hafa aldrei unnið titilinn þrátt fyrir frábær­ an árangur og það gerði mig reið­ an. Þeir setja heimsmet og vinna titla í sínum flokkum. En það eru til svo margir fötlunarflokkar að ógerningur er að dæma um hver sé bestur. Því ættu þeir að hafa sín eigin verðlaun.“ Hann segist hafa fengið á baukinn fyrir þetta, meðal annars frá nokkrum fötluðum íþrótta­ mönnum. „Einn þeirra sagðist hafa misst álit á mér. Annar að ég ætti ekki að fara upp í ræðupúlt heldur halda mig við lóðin. Mér var sagt að biðja fatlað fólk af­ sökunar en ég ætla ekkert að gera það. Ég var ekki að gera lítið úr fötluðu fólki og ég meinti þetta vel. Sjálfur er ég orðinn fatlað­ ur. Ég vil ekki eignast neinn óvin en held að ég hafi nú eignast nokkra.“ Finnst þér vera skoðanakúgun hér á landi? „Já, hún er töluverð. Enginn má segja neitt, þá er hann tek­ inn í nefið. Fólk getur látið út úr sér alveg hroðalega hluti á netinu. Til dæmis eftir að Geir Þorsteinsson lýsti skoðun sinni á valinu á íþróttamanni ársins. Það á enginn að hafa leyfi til þess að kalla einhvern drullusokk þótt hann lýsi skoðunum sínum.“ Við lok viðtalsins rekumst við Skúli einmitt á téðan Geir sem óskar Skúla til hamingju með heiður­ inn. Sáttur við lífið Skúli lagði lóðin á hilluna árið 1982 og þá tók fjölskyldulífið við. Hann vann sem næturvörður hjá Hagkaupum og sem húsvörður hjá Landsbankanum. Hann kynntist eiginkonu sinni, Hrönn Ingibergsdóttur, árið 1980 og á hann eina ættleidda dóttur og tvær stjúpdætur. Ættleidd dóttir hans er þekktur kjólahönnuður, Sara María Skúladóttir, og maður hennar er Úlfur Eldjárn tónlistar­ maður. „Ég var heppinn, bæði með sportið og fjölskylduna. Ég á góða konu, góð börn og barna­ börn. Þetta er allt í þessu fína lagi og ekkert vesen. Með góðan fer­ il og orðuveitingar að baki. Getur maður beðið um eitthvað meira? Það held ég ekki.“ n „Þetta virkar eins og grobb en þetta er bara staðreynd. Ég var fyrstur kraftlyftingamanna til að koma okkur á blað. Líflegur og stríðinn „Ég átti það til að koma með yfirlýsingar sem vöktu athygli en ég stóð alltaf við þær.“ Alhliða veisluþjónusta Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 | Reykjanesbæ | Sími: 421 2630 | kokulist@kokulist.is Eingöngu fyrsta flokks hráefni Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir Gerðu daginn eftirminnilegan l li veisl j st Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is Eingöngu fyrsta flokks hráefni Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir i fti i il Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.