Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 18
18 sport Helgarblað 5. janúar 2018 Um helgina Ítalía og Ísrael Emil Hallfreðsson verður í eldlínunni í dag, föstudag, klukkan 17.00 þegar Udinese heimsækir ChievoVerona í ítölsku úrvalsdeildinni. Emil og félagar unnu góðan 2-1 sig- ur á Bologna um síðustu helgi en þar var Emil á meðal vara- manna. Í Ísrael á laugardag verður Viðar Örn Kjartans son í eldlínunni þegar Maccabi Tel Aviv tekur á móti Bnei Ha- Golan VeHaGalil í bikarnum. Viðar hefur raðað inn mörk- um í ár og er algör lykilmaður í liði Maccabi. Gylfi og Jóhann í stórleikjum Það er sannkallaður stórleik- ur nú í kvöld, föstudag, þegar Liverpool og Everton munu eigast við í enska bikarnum en leikið verður á Anfield Road í Bítlaborginni. Þar ætti að vera í byrjunarliði Everton, Gylfi Þór Sigurðsson. Gylfi var hvíldur gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í liðinni viku, þar var hann á meðal varamanna en kom ekkert í sögu við leiknum sem Everton tapaði 0-2. Á laugar- dag fær Jóhann Berg Guð- mundsson erfitt verkefni þegar hann og félagar hans í Burnley heimsækja Manchester City. City á enn eftir að tapa leik á tímabilinu en gengi Burnley hefur þó verið með ágætum. Jóhann skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu í vikunni í mjög naumu tapi gegn Liverpool. Birkir kominn á blað Eftir mjög erfiða tíma kom Birkir Bjarnason sér á blað þegar Aston Villa vann ör- uggan sigur á Bristol City í vikunni. Birkir skoraði þar fínt mark eftir að hafa aðeins ver- ið inni á vellinum í þrjár mín- útur. Birkir gæti því fengið tækifæri í byrjunarliði Aston Villa í enska bikarnum á laugardaginn, þar tekur liðið á móti Peterbrough. Í öðrum leikjum verður Hörður Björg- vin Magnússon líklega í byrj- unarliði Bristol sem heim- sækir Watford á laugardag. Þá gæti Jón Daði Böðvars son fengið tækifæri með Reading gegn Stevenage. Þ að styttist í að handbolta- veislan í janúar hefjist en íslenska landsliðið verður á meðal þátttökuþjóða þegar flautað verður til leiks á Evrópumótinu í Króatíu. Fyrsti leikur Íslands er gegn Svíþjóð þann 12. janúar. Svartsýnustu menn spá því að liðið falli úr leik beint í riðlinum en blikur eru þó á lofti um að liðið geti gert betur og komið sér upp úr riðlinum. „Liðið hefur tekið framförum á milli ára, það er hins vegar ljóst að yngri menn eru að taka við og eldri menn eru að hverfa á braut. Það er ljóst að þetta bil sem við erum að brúa akkúrat núna hef- ur reynst okkur strembið og það mun halda áfram að vera stremb- ið í 2–3 ár í viðbót. Upp úr 2021 mun þetta lið aftur fara að ná há- marks árangri, hugsanlega eft- ir þann tíma getur þetta lið aftur farið að vinna til verðlauna,“ sagði Guðjón Guðmundsson sem er manna fróðastur þegar kemur að íslenskum handbolta. Guðjón hef- ur fylgst lengi með, í gegnum góða og slæma tíma. Staðan á liðinu góð Eftir að hafa misst af síðasta stór- móti er Aron Pálmarsson klár í slaginn en leikæfing hans gæti verið betri. „Staðan á liðinu er mjög góð, auðvitað er Aron Pálmarsson ekki í mikilli leikæfingu. Hann hefur verið seinn í að finna taktinn með Barcelona eftir að hafa ekki spilað handbolta í fimm mánuði. Hann er algjör lykilmaður, vörn og mark- varsla verða að vera í hæsta gæða- flokki ef vel á að ganga í Króatíu. Breiddin í hópnum er þokkaleg en hún gæti verið betri, við gætum verið í vandræðum í vissum stöð- um á vellinum. Þetta er verkefni sem þjálfarateymið þarf að leysa, vandamálið í handboltanum er að það gefst ekki neinn tími til æfinga fyrir stórmót. Þú hefur mjög stutt- an tíma til undirbúnings og menn verða að vera á tánum með það.“ Verða að vinna Serbíu Ísland lék í vikunni æfingarleik gegn Japan og vann sannfærandi sigur, ekki er þó unnt að meta ástand liðsins fyrr en eftir helgina en liðið leikur þá tvo leiki gegn Þýskalandi fyrir stóru stundina í Króatíu. „Þetta var fyrst og síðast æfingaleikur, ég var ánægður með varnarleikinn í fyrri hálfleik, þeir keyrðu hraðaupphlaupin vel. And- stæðingarnir í Króatíu verða miklu sterkari, við sjáum stöðuna á liðinu eftir leikina gegn Þýskalandi. Þá vitum við hvar liðið er. Leikurinn gegn Serbíu er sá sem þarf að vinn- ast í Króatíu ef liðið ætlar áfram, þeir mæta með laskað lið til leiks. Það vantar stór nöfn en þeir eru með sterkan leikmannahóp, það má ekki gleyma því að liðin frá Balkanskaga spila oftar en ekki vel þegar leikið er í þeirra löndum, þeir eru nánast á heimavelli.“ Staða Geirs í óvissu Fram kom í vikunni að HSÍ vildi ekki ræða nýjan samning við Geir Sveinsson þjálfara fyrr en að móti loknu, margir setja spurn- ingarmerki við slíkt. „Staðan hef- ur verið þannig í handboltanum að oftar en ekki hefur verið gengið frá samningi við þjálfara eftir stór- mót. Mér finnst það afar undarlegt að akkúrat á þessum tímapunkti komi þetta út. Geir var spurður að þessu í útvarpsviðtali og hann svar- aði, hann sagði satt og mér fannst það gott hjá honum. Mér hefur fundist síðustu ár HSÍ verið klaufa- legt í nálgun þess þegar kemur að ráðningu þjálfara. Þetta er kannski vísbending um að þeir ætli að gera breytingar í þjálfaramálum en það má þó ekki lesa of mikið í þetta. Liðið er í uppbyggingu, frá 2006 til 2014 vorum við með lið í heimsklassa, það var vegna þess að við vorum með 7–8 leikmenn í heimsklassa. Þetta voru flestir leikmenn sem voru í fremstu röð í sinni stöðu. Í dag erum við með tvo í heimsklassa, það er munur- inn. Við erum með unga leikmenn sem á næstu 3–4 árum geta komist í þennan alþjóðlega klassa sem þarf til að ná árangri.“ n n Gaupi skoðar stöðuna fyrir EM í Króatíu n Kynslóðaskipti eiga sér stað Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Guðjón Guðmundsson Lykilmaðurinn Aron Pálmarsson þarf að eiga gott mót í Króatíu svo íslenska landsliðið geti gert einhverja hluti. mynd Getty „HSÍ klaufa- legt í sinni nálgun þegar kemur að ráðningu þjálfara“ G uðbjörg Gunn ars dótt ir og Sara Björk Gunn ars dótt ir, landsliðskon ur í knatt- spyrnu, eru báðar á lista yfir 100 bestu leik menn heims árið 2017. Það var Vavel sem opinber- aði þennan lista á dögunum. Þar er Guðbjörg, sem er markvörður Ís- lands og Djurgår d en í Svíþjóð, í 35. sæti á listanum. Sara Björk, miðju- maður Íslands og hjá þýska meist- araliðinu Wolfs burg, er í 49. sæti. „Það er mjög ánægjulegt að við náum að halda leikmönnum í fremstu röð,“ sagði Freyr Alexand- ersson, landsliðsþjálfari Íslands, um málið. Hann er á þeirri skoðun að Sara eigi að vera miklu ofar á listanum. „Að mínu viti á Sara að vera á meðal efstu 15 á þessum lista, ég segi það og stend við það, Sara Björk er besti miðjumaður- inn í þýsku úrvalsdeildinni. Ég hef ekki séð betri miðjumann, hún á að vera hærra á þessum lista,“ sagði Freyr um Söru. Hann telur að Guðbjörg hafi átt frábært ár með félagsliði sínu en að hún hefði getað gert betur með landsliðinu. „Hún átti frábært tímabil með félagsliði sínu í Sví- þjóð og nokkra góða landsleiki, ég held samt, þekkjandi hana rétt, að hún hefði viljað eiga betra ár með íslenska landsliðinu. Það er frábært að eiga leikmenn sem eru á með- al þeirra bestu í heimi og við eigum að setja stefnuna á að hafa alltaf leik- menn í heimsklassa, það má hins vegar aldrei slaka á og við þurfum að hafa fyrir því að eiga slíka leik- menn sem eru alltaf að berjast við þá bestu,“ sagði Freyr í samtali við DV. Íslenska landsliðið fær spennandi verkefni í lok mánaðarins þegar liðið heldur til La Manga og hef- ur þar með undirbúning sinn fyrir árið, liðið leik- ur einn leik við Noreg en það kemur í ljós í haust hvort íslenska landsliðið nái að tryggja sig inn á heimsmeistaramótið sem verður haldið í Frakklandi á næsta ári. n hoddi@433.is „Eigum að setja stefnuna á að hafa alltaf leikmenn í heimsklassa“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.