Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 5. janúar 2018fréttir S teinunn Anna Radha er ís- lensk, á íslenska foreldra og hefur búið á Íslandi nán- asta alla sína ævi. Hún er nítján ára og hefur búið alla sína ævi í Reykjavík. Steinunn sker sig úr fjöldanum á Íslandi því hún er dökk á hörund. Steinunn var átta mánaða gömul þegar hún var ætt- leidd frá Indlandi. Hún var lögð í mikið og gróft einelti í grunnskóla af því að hún var öðruvísi. Steinunn þróaði með sér þunglyndi og kvíða vegna eineltis. Hún hætti tímabundið í skóla vegna kyn- ferðisofbeldis sem hún varð fyrir. Steinunn finnur daglega fyrir for- dómum og mismunun vegna húð- litar síns. Hún vill vekja athygli á og opna umræðuna um kynþátta- fordóma. Hún segir það algengt að fólk telji sig hafa leyfi til að segja hvað sem er við hana varðandi húðlit hennar, stærð eða fötlun. Blaðamaður DV settist niður með Steinunni til að ræða um kyn- þáttafordóma á Íslandi. Í viðtalinu segir Steinunn frá atvikum sem eru henni einstaklega minnis- stæð, hvernig væri hægt að sporna gegn fordómum og hvernig sé að vera brúnn Íslendingur. Varð fyrir miklu einelti „Ég finn fyrir fordómum daglega. Þannig að skiptin sem ég upplifi fordóma eru mjög mörg. En það er sérstaklega eitt atvik sem er mér minnisstætt. Það var laugardags- kvöld og ég var stödd í miðbæn- um að skemmta mér með vinum mínum. Skyndilega hnippti ein- hver kona í mig og fór að segja mér hvað ég væri mikil dúlla. Svo fór hún að koma við úlpuna mína og spurði: „Heldurðu að þú værir svona heppin ef þér hefði ekki ver- ið bjargað?“ Ég vissi ekki hverju ég átti að svara,“ segir Steinunn Anna og bætir við að það séu margar ástæður fyrir því að fólk gefi barn til ættleiðingar eða ættleiði barn. „Foreldra mína langaði í barn en gátu ekki eignast það. Þau eru alveg jafn heppin á hinn bóginn. Forréttindi fólks eru mismun- andi.“ Hvað er fyrsta atvikið sem þú manst eftir sem barn? „Ég varð fyrir miklu einelti í skóla. Þegar ég var í fyrsta bekk sat eitt skipti ofan á mér strákur og var að lemja mig og kalla mig pönnu- köku. Ég var lögð í einelti út af kyn- þætti mínum og vegna þess að ég var öðruvísi.“ Varstu eini nemandinn í bekkn- um sem var öðruvísi? „Já. Ég fann afar mikið fyrir því þar sem ég er einnig bæði lítil og fötluð,“ segir Steinun Anna, en hún er um 140 sentimetrar á hæð. Steinunn heldur áfram: „Ég var auðvelt skotmark fyrir þau sem vildu stríða og gera lítið úr öðrum. En fólk gleymir oft að líta í eigin barm.“ Í dag á Steinunn fáa en mjög góða vini. Hún telur mikilvægt að umkringja sig fólki sem kem- ur fram við hana af kærleik og virðingu. Daglegir fordómar Hvernig finnurðu fyrir því daglega að það sé komið fram við þig öðru- vísi út af kynþætti þínum? „Ég lendi oft í því að þjónustu- fólk talar við mig ensku, þótt ég tali við það íslensku. Ég lenti í því um daginn þegar ég var að kaupa hulstur fyrir tölvuna mína. Ég talaði íslensku við afgreiðslu- manninn sem svaraði mér á ensku. Þó að ég héldi áfram að tala íslensku þá talaði hann ensku allan tíman. Ég veit að hann er íslenskur því hann talaði íslensku við næsta kúnna. Ég held að fólk haldi áfram að tala ensku, þótt það átti sig á að ég sé íslensk, því það heldur að það sé of seint að fara til baka. En málið er að það er mikið skárra að biðj- ast afsökunar.“ Steinunn segir að hún hafi einnig fundið fyrir mismunun í skólakerfinu. „Kennarar telja mig þurfa öðruvísi nám, eins og nám á ensku. Ég hef oft fengið að heyra frá kennurum hvað ég tali góða ís- lensku. Ég myndi frekar vilja að fólk myndi spyrja mig hvort ég væri Íslendingur frekar en að ætla að svo sé ekki.“ Heldurðu að fólk þori ekki að spyrja? „Ég veit það ekki. Fyrst fólk get- ur leyft sér að segja ýmsa hluti þá skil ég ekki af hverju það þorir ekki að spyrja. Ég vil frekar að fólk spyrji mig. Aðgreining er það sem heldur fordómum gangandi.“ Tekin í yfirheyrslu á flugvöllum Hvað er versta atvikið sem þú manst eftir? „Það sem truflar mig mest er hvað erfitt er fyrir mig að fara með öðrum Íslendingum til útlanda. Ég er alltaf stoppuð og tekin afsíð- is þótt ég sé með fjölskyldu minni, sem er hvít. Ég er mjög oft valin af „handahófi“ í frekari skoðun. En það hefur gerst svo oft og aðeins hjá mér þannig að það er augljóst að ég er ekki valin „af handahófi“.“ Steinunn hefur verið stöðvuð bæði á Keflavíkurflugvelli og flug- völlum utanlands en segir að það sé algengara að hún sé stöðvuð er- lendis. Finnst þér Ísland vera komið lengra en önnur lönd varðandi for- dóma og mismunun? „Mér finnst við vera komin mjög stutt. Það er líka spurning hvort við séum með fordóma sem við viljum ekki horfast í augu við. Eins og hvernig við hugsum um fólk sem er öðruvísi. Í stað þess að líta á fjölbreytileikann sem eina viðmiðið þá er fólk flokkað í box, sem er hættulegt.“ Vill finna blóðforeldra sína Steinunn segir fordómana alversta á netinu. „Á netinu er algengt að fólk láti sínar fordómafullu skoðanir í ljós og feli sig bak við skjáinn. Ég hef fengið ljót skilaboð frá fólki, „finn fyrir fordómum daglega“ Steinunn Anna Radha ræðir um kynþáttafordóma á Íslandi og hvernig er að vera brúnn Íslendingur„Ég var auðvelt skotmark fyrir þau sem vildu stríða og gera lítið úr öðrum Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is „Aðgreining er það sem heldur fordómum gangandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.