Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 68
68 lífsstíll - ferðalög Helgarblað 5. janúar 2018 M óðir jörð, þú sem ert á himnum: Takk elskuleg. Þessi orð voruð skrifuð í dagbókina mína á siglingu um Halong Bay í Víetnam. Upplifunin var djúpstæð. Svæðið, sem hefur stundum verið nefnt eitt af sjö undrum veraldar, er eyjaklasi sem inniheldur hátt í 2.000 litl­ ar, háreistar og gróðursælar eyj­ ar. Við fjölskyldan vorum stödd í mikilvægu ferðalagi með þrem­ ur vinafjölskyldum okkar um Dúbaí, Kína, Víetnam og Balí síðastliðið sumar. Tilgangur ferðarinnar var að heimsækja upprunaborg ættleiddra dætra okkar frá Kína og anda að okkur undrum og ævintýrum Asíu. Halong Bay er ekki bara stór­ brotin náttúrusmíð sem verður ekki lýst með orðum, í Halong Bay er líka stórbrotið, agnar­ smátt samfélag sem snerti okk­ ur djúpt. „The Floating Village“. Réttu hjálparhendur Þegar við vorum á siglingu á Ha­ long Bay sendi mamma mér mynd úr bátnum þar sem hún var að sigla út í Árneseyju í Trékyllisvík. Fjölskyldan mín, sem þar býr, var á leið í dúntekju. Með í för voru þrjár konur sem höfðu tekið skyndiá­ kvörðun um að fara í „roadtrip“ eitthvert út á land sumarið áður. Ferð þeirra endaði norður í Árnes­ hreppi á Ströndum, þar sem bíllinn þeirra bilaði. Þær skrifuðu greinar í Fréttatímann í kjölfarið af upp­ lifun sinni af því hvernig heima­ menn í þessu minnsta sveitarfélagi á landinu opnuðu verkfæratösk­ urnar, heimili sín og faðminn á áreynslulausan hátt og réttu þeim hjálparhendur. Fleiri en eina og fleiri en tvær. Fréttatímastelpurnar, eins og þær eru kallaðar í daglegu tali í Árneshreppi, hafa í kjölfarið kom­ ið nokkrar ferðir norður og með­ al annars hjálpað til við smala­ mennsku og búskapinn svo eitthvað sé nefnt. Þær sjá menn­ ingarleg verðmæti í þessu litla, einstaka samfélagi. Upplifun þeirra af svæðinu og fólkinu sem þar býr snertir þær og síðastliðinn vet­ ur fóru þær með börnin sín norð­ ur í nokkurs konar „skólabúðir“ þar sem þau kynntust bæði öðrum börnum í sveitinni og því hvernig það er að búa á svona stað. Sorgarsaga Á sama tíma og við ferðuðu­ mst um Asíu voru tvö mál­ þing haldin í Árneshreppi um framtíðina og næstu skref. Stærsta baráttumál þessa ein­ angraða samfélags áratugum saman hefur verið samgöngu­ mál svo unnt sé að sækja grunnþjónustu á borð við heilbrigðisþjónustu og skapa búsetuvænt umhverfi. Það er ekki ætlunin að rekja þá sorgar­ sögu hér en hávær þögn stjórn­ valda og einbeitt aðgerðarleysi hefur verið áþreifanlegt. Skila­ boðin eru skýr: Íslensk stjórnvöld, sama hvar í flokki, hafa ekki áhuga á að viðhalda svona samfélagi. Fólkið flutt burt Mér gat ekki annað en verið hugs­ að sterkt heim þar sem við sigld­ um hljóðlát um „The Floating Village“ í Halong Bay. Myndin af Fréttatímastelpunum í bátnum með mömmu var ákveðin endur­ speglun af okkur vinkonunum hér í Víetnam, þar sem við sát­ um í bambusbát og sigldum fram hjá fljótandi heimilum og fengum innsýn í líf heimamanna. Í þorp­ inu búa um 500 íbúar. Hér er skóli fyrir börn 6–12 ára en eftir það fara börnin öllu jafna til ættingja í Ha­ long Bay City. Hér lifir fólk meðal annars af náttúrunni, viðskiptum við ferðaþjónustuaðila, sem sigla um Halong Bay, auk þess sem íbúar fljótaþorpsins selja sjávar­ afurðir upp á meginlandið. Hér er það ekki aðgerðarleysi stjórnvalda sem er ógn við menn­ ingarlega dýrmætt samfélag, hér eru það beinar aðgerðir sem hafa valdið verulegri fólksfækkun að sögn leiðsögumanns okkar. Hann segir okkur að frá árinu 2012 hafa hátt í þrjú þúsund manns verið fluttir úr fljótandi þorpum á Ha­ long Bay til Halong Bay City þar sem þeim var hjálpað að finna húsnæði og skóla fyrir börn­ in. Stjórnvöld vildu ekki að fólk­ ið mengaði flóann, var ein skýr­ ingin. Leiðsögumaður okkar, sem bjó sem barn í fljótaþorpi, segir að stjórnvöld hafi ekki gert sér grein fyrir að ruslið í Halong Bay bær­ ist með rekanum, bæði frá Halong Bay City og frá úthafinu. Stranda­ menn þekkja það vel að hreinsa fjörurnar sem fyllast af rusli. Ruslið er ekki frá heimamönnum komið þar frekar en hér. „Hér kann fólk að lifa í náttúrunni“. Það var greinilegt hvað þessi um­ ræða snerti leiðsögu­ mann okkar djúpt. Hann sagði okkur að fólkið sem var flutt til Halong Bay City þrífist ekki þar. Sú mikla og dýrmæta þekk­ ing og reynsla sem það býr að, eftir að hafa lifað með náttúruöflunum í Halong Bay, nýtist ekki á sama hátt í daglegu stórborgarlífi. Unga fólkið sækir í að koma aftur heim til að geta unnið í fljótaþorp­ unum meðan gamla fólkið gætir barna á skólaaldri í borginni. Átt­ hagarnir, ræturnar í náttúrunni, toga fast í: ,,Yes! They live happily here!“ hann ljómaði og lagði sterka áherslu á orð sín. „They are not happy in the city!“ Stöðugt að næra hið stóra Svarið staðfesti upplifun mína. Hér eru húsin smá, íburður­ inn enginn, undirlendið ekkert. „Hér vakir guð hins smáa,“ eins og Elín Agla Briem, íbúi í Árnes­ hreppi, orðar það svo fallega. Feg­ urð einfaldleikans í djúpstæðum tengslum við náttúruna smýgur langt inn í mig. Við segjum fátt í bátnum. Kyrrðin er eins og feg­ ursta tónlist. Í kringum okkur sigla dætur okkar á kajökum með feðr­ um sínum. Að sjá þau róa fram­ hjá fljótandi húsunum gerir upp­ lifunina raunverulega. Við erum ein hér með heimamönnum sem eru ekki úti á sjó að vinna. Við sjáum börn. Einhverjar konur. Og marga sofandi karlmenn. Það vek­ ur undrun okkar. „Karlarnir vinna erfiðisvinnu við veiðar,“ sagði leið­ sögumaðurinn okkur þegar við spurðum hann. Á þessum tíma dags virtust þeir vera að hvíla sig meðan konurnar sigldu bambus­ bátum út um allan flóa með ferðamenn í skoðunarferðum og varning til sölu. Hvað getur maður sagt? Þorp­ unum á flóanum og íbúum þeirra hefur stórfækkað. Við erum stöð­ ugt að næra hið stóra, risakeðjurn­ ar, fyrirtækjasamsteypurnar, á kostnað hins smáa. Einstaka. Fagra. Við erum að markaðsvæða líf okkar í leit að hamingjunni, meðan hamingjan er bara hér. Og nú. Í hinu smáa. Hinu smáa, sem er svo stórt. Og vonandi, vonandi vöknum við til vitundar um það fyrr en síðar. Meðan dýrmæt sam­ félög, eins og Árneshreppur og fljótaþorpin sem eftir lifa í Halong Bay, eru ennþá til. n Ingibjörg Valgeirsdóttir Í Trékyllisvík og Halong Bay Ingibjörg Valgeirsdóttir skrifar um djúpstæða upplifun af ferðalagi til Halong Bay í Víetnam „Við erum stöðugt að næra hið stóra, risakeðjurnar, fyrirtækjasamsteypurnar, á kostnað hins smáa. Á ferðalagi Ingibjörg Valgeirsdóttir, Hrafnhildur Kría Jónasdóttir og Jónas Gylfason. Mynd ÚR eInkaSaFnI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.