Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 29
Helgarblað 5. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ Lífsstíll Öll flóran á Símstöðinni Símstöðin er stórt og líflegt kaffihús og bistró á Akureyri sem opnað var sumarið 2014. Gífurleg fjölbreytni einkennir veitinga- framboðið á Símstöðinni en auk annars eru þar í boði mjög heilsu- samlegir réttir. „Þetta hús er í raun símstöðin á Akureyri og hún er meira að segja í húsinu hér enn í dag. Hér er allt lagna- og símakerfi fyrir Akureyri undir fótum okkar,“ segir Kristján Þórir Kristjánsson, eigandi Símstöðvar- innar, en staðnum hefur verið afar vel tekið bæði af Akureyringum og ferðamönnum. „Á sumrin er hér allt smekkfullt af innlendum sem erlendum túristum og svo eru heimamenn duglegir að koma en að öðru leyti kemur hingað fólk á öllum aldri, allt frá skólakrökkum sem kaupa sér djús eða samloku, og upp í harðfullorðið fólk og fullvaxna karl- menn,“ segir Kristján glettinn. Veganréttir og eftirsóttur kjúklingaréttur í hádeginu Mikil fjölbreytni einkennir veitinga- úrvalið á Símstöðinni og á það ef til vill sinn þátt í vinsældum staðarins. Þar á meðal eru heilsuréttir. „Hér eru í boði fiskréttir, grænmetisréttir og hráfæðisréttir ásamt góðu úrvali af vefjum og samlokum, enn fremur alls konar heilsusamlegir safar. Við höfum jafnframt aukið úrvalið af mat fyrir veganfólk. Eitt mesta aðdrátt- araflið hefur síðan kjúklingarétturinn í hádeginu sem er svona „Gló-style“ en honum fylgja þrjár tegundir af meðlæti. Rétturinn er aldrei eins tvo daga í röð, það getur verið tikkama- sala-kjúklingur í gær og mexíkóskur kjúklingaréttur á morgun, þannig að þú getur fengið þér kjúklingaréttinn alla vikuna en það er aldrei sama bragðið. Þessi réttur er meðal annars vinsæll hjá fólki sem vinnur hér í ná- grenninu og íþróttamönnum,“ segir Kristján. Fyrir utan heilsuréttina er margt annað á boðstólum á Símstöðinni. Sextán tegundir af pítsum eru á matseðli og mikið úrval af kökum. Þá eru jafnframt í boði allir þeir kaffi- drykkir sem fyrirfinnast á kaffihúsum, jafnt heitir sem kaldir, auk þess sem boðið er upp á sérstaka árstíða- bundna drykki. Símstöðin tekur 70–80 manns í sæti en hægt er að taka með sér alla rétti og drykki og notfæra sér margir það. Enski boltinn er á skjánum í innri salnum og segist Kristján búast við að þar verði mikil stemning þegar HM í knattspyrnu stendur yfir næsta sumar. Símstöðin er staðsett að Hafnar- stræti 102, Akureyri. Opið er alla daga frá kl. 9 á morgnana til 22.30 á kvöldin. Nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðunni Símstöðin veitinga- og kaffihús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.