Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Side 29
Helgarblað 5. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ Lífsstíll
Öll flóran á
Símstöðinni
Símstöðin er stórt og líflegt kaffihús og bistró á Akureyri sem opnað var sumarið 2014.
Gífurleg fjölbreytni einkennir veitinga-
framboðið á Símstöðinni en auk
annars eru þar í boði mjög heilsu-
samlegir réttir.
„Þetta hús er í raun símstöðin á
Akureyri og hún er meira að segja
í húsinu hér enn í dag. Hér er allt
lagna- og símakerfi fyrir Akureyri
undir fótum okkar,“ segir Kristján Þórir
Kristjánsson, eigandi Símstöðvar-
innar, en staðnum hefur verið afar
vel tekið bæði af Akureyringum og
ferðamönnum.
„Á sumrin er hér allt smekkfullt af
innlendum sem erlendum túristum og
svo eru heimamenn duglegir að koma
en að öðru leyti kemur hingað fólk á
öllum aldri, allt frá skólakrökkum sem
kaupa sér djús eða samloku, og upp í
harðfullorðið fólk og fullvaxna karl-
menn,“ segir Kristján glettinn.
Veganréttir og eftirsóttur
kjúklingaréttur í hádeginu
Mikil fjölbreytni einkennir veitinga-
úrvalið á Símstöðinni og á það ef til
vill sinn þátt í vinsældum staðarins.
Þar á meðal eru heilsuréttir. „Hér
eru í boði fiskréttir, grænmetisréttir
og hráfæðisréttir ásamt góðu úrvali
af vefjum og samlokum, enn fremur
alls konar heilsusamlegir safar. Við
höfum jafnframt aukið úrvalið af mat
fyrir veganfólk. Eitt mesta aðdrátt-
araflið hefur síðan kjúklingarétturinn
í hádeginu sem er svona „Gló-style“
en honum fylgja þrjár tegundir af
meðlæti. Rétturinn er aldrei eins tvo
daga í röð, það getur verið tikkama-
sala-kjúklingur í gær og mexíkóskur
kjúklingaréttur á morgun, þannig að
þú getur fengið þér kjúklingaréttinn
alla vikuna en það er aldrei sama
bragðið. Þessi réttur er meðal annars
vinsæll hjá fólki sem vinnur hér í ná-
grenninu og íþróttamönnum,“ segir
Kristján.
Fyrir utan heilsuréttina er margt
annað á boðstólum á Símstöðinni.
Sextán tegundir af pítsum eru á
matseðli og mikið úrval af kökum. Þá
eru jafnframt í boði allir þeir kaffi-
drykkir sem fyrirfinnast á kaffihúsum,
jafnt heitir sem kaldir, auk þess sem
boðið er upp á sérstaka árstíða-
bundna drykki.
Símstöðin tekur 70–80 manns í
sæti en hægt er að taka með sér alla
rétti og drykki og notfæra sér margir
það. Enski boltinn er á skjánum í innri
salnum og segist Kristján búast við
að þar verði mikil stemning þegar
HM í knattspyrnu stendur yfir næsta
sumar.
Símstöðin er staðsett að Hafnar-
stræti 102, Akureyri. Opið er alla
daga frá kl. 9 á morgnana til 22.30
á kvöldin. Nánari upplýsingar er að
finna á Facebook-síðunni Símstöðin
veitinga- og kaffihús.