Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 40
Da gur í l ífi Vikublað 5. janúar 2018 instagram.com/Birta_vikuBlad vikublað - Ritstjóri: Margrét H. Gústavsdóttir Ábyrgðarmenn: karl Garðarsson Markaðssamstarf: Svava kristín Gretarsdóttir s: 690 6900 Fávita skilgreini ég sem manneskju sem hefur gerólíkar skoðanir mínum. Svo ólíkar að ég verð bara pínu brjál- uð inni í mér og hugsa: „Þetta er nú meiri helv… fávitinn“. Stundum segi ég þetta meira að segja upphátt – þótt það sé afar sjaldan. Um daginn las ég pistil eftir mann sem mér þótti algjör fáviti. Skoðanir hans og hugmyndir þóttu mér svo fráleitar að ég fann mig knúna til að skrifa status um það á Facebook, með hlekk á pistilinn hans. Í þessum status kallaði ég manninn fávita og það alveg með ofsalega góðri sam- visku. Orðið fáviti sveif af vörum mér eins og fersk morgungola. Eins og Ajax-leiftur. Eins og kirsuberjablóm. Ég er handviss um að umræddur maður móðgaði bæði og særði fjölda fólks með því sem hann skrifaði, og vonandi móðgaði ég hann á móti með því að kalla hann fávita, en um leið fannst mér hressandi að upp- nefna hann þetta. Alveg umbúðalaust. Í samfélagi þar sem öllu – meira að segja tómötum og kartöfl- um, er vandlega pakkað í umbúðir. Eftir að ég náði mér niður úr adrenalín- rúsinu sem upphrópun- inni fylgdi hugsaði ég hvað málfrjálsir fávitar eru samt nauðsynlegir okkar félagslega vistkerfi. Þeir móðga okkur kannski stundum, og ögra, en það er sannarlega blessun að þjóðfélagsþegnar vorir megi segja hvaða rugl sem þeim dettur í hug með pistlum, bloggi, bókum, statusum, blaðagreinum og jafnvel graffití á kló- settveggjum skemmtistaða án þess að eiga á hættu að lenda í fangelsi, vera pyntaðir eða jafnvel myrtir. Sá er nefnilega raunveruleiki allt of margra jarðarbúa. Vissulega geta fávitarnir móðgað okkur en athugaðu að fávitar skerpa líka á skoðunum þeirra sem eru ósammála þeim og hvetja jafnvel fólk til um- hugsunar um hluti sem það hefði annars aldrei pælt í. Ögrun er góð. Áfram fávitar! „Þetta er nú meiri helv… fávitinn“ Margrét H. gústaVsdóttir margret@dv.is „ Í þessum status kallaði ég manninn fávita og það alveg með ofsalega góðri samvisku. Besta ráð sem þér hefur verið gefið? Þetta er nú ekki ráð en það sem hefur nýst mér best í lífinu var Dale Carnegie-námskeiðið sem umbylti lífi mínu í kringum 2002. Þá small eitthvað gott saman í hausnum á mér. Besta ráð sem þú getur gefið öðrum? Æðruleysi og að láta ekkert, hvorki hugsanir, fólk né aðstæður, halda aftur af sér ef maður hefur einlægan áhuga og vilja til að gera eitthvað við líf sitt. hvað vildirðu að þú hefð- ir vitað fyrr? Þegar maður eldist þá verður manni meira sama um álit annarra enda áttar maður sig á því að það getur oft verið hugarburður. Hvernig á maður að vita hvað aðrir eru að hugsa? Og til hvers að láta álit annarra stjórna því sem maður sjálfur gerir, ef það er svo bara ímyndun? Ég vildi að ég hefði vitað þetta fyrr. linda Jónsdóttir einkaþJálfari - um óraunhæfar væntingar í ræktinni, ókristilegan fótaferðartíma og hvernig það er að vera samvaxin eiginmanninum í 30 ár. Linda Jónsdóttir, einkaþjálfari hjá World Class, fæddist á Húsavík þann 25. júlí árið 1962 og verður því 56 ára á þessu ári. Hún hefur verið gift Baldri Borgþórssyni síðustu 30 árin en hann starfar sem einkaþjálfari á sama stað. Linda byrjaði að æfa lyftingar í lítilli líkamsræktarstöð hjá Finni Karlssyni í Brautarholti árið 1979 en síðar færði hún sig yfir Orkubót og þaðan í æfingastöðina í Engihjalla þar sem hún starfaði í kringum 1985. Síðar hefur hún unnið á nokkrum líkamsræktar- stöðvum, meðal annars Ræktinni sem var í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi en árið 1996 tók hún við gráðu sem einkaþjálfari og hefur starfað sem slíkur allar götur síðan, lengst af hjá World Class í Laugum, eða frá árinu 2006. Sem sagt í 22 ár. Hún býr ásamt eigin- manni sínum og tveimur sonum, þeim Alexander Jóni, 27 ára, og Baldri Páli, 23 ára, í Úlfarsfellinu og vaknar fyrir allar aldir. 04.45 „Ég vakna klukkan korter í fimm sem er bæði ógeðslegt og fárán- legt þegar maður fer að spá í það. Þetta á ekkert vel við mig því ég er b-manneskja í eðli mínu en maður neyðist til að stríða gegn eðlinu. Það fyrsta sem ég geri er að fá mér kaffibolla og fara svo í bað. Ég fer aldrei í sturtu. Svona korter í sex eru allir klárir hérna og við Baldur, maðurinn minn, keyrum niður í World Class þar sem við vinnum bæði.“ 06.00 „Fyrstu kúnnarnir mæta klukkan sex. Ég er eiginlega bara með hópa núna enda þekki ég ekki marga sem hafa efni á því að borga sextíu eða sjötíu þúsund á mánuði fyrir að horfast í augu við einkaþjálfann sinn í klukkutíma. Svo finnst mér hópaþjálfun bara miklu skemmti- legri. Æfingarnar ganga út á styrk, þol, jafnvægi, hittni og fleira sem heldur manni í formi. Þær eru mjög alhliða og fjölbreyttar en taka mið af ástandi einstakling- anna. Væntingar fólks í sambandi við líkamsrækt hafa sem betur fer breyst mjög mikið á síðustu árum. Það ætla sér ekki allir að verða eins og keppnisfólk á nokkrum vikum. Áherslan er meira á alhliða heilsu en áður virkaði það eins og fólk ætlaði bara að koma til að grenna sig. Nú skilja fleiri að það er vel hægt að vera þétt/ur en í gríðarlega góðu formi. Þetta snýst meira um heilsuna en útlitið hjá flestum sem til mín koma. Þó að hitt sé alltaf líka til. Svo er ég kannski bara hætt að hlusta á rugl í fólki sem er með óraunhæfar væntingar? Það spilar örugglega inn í.“ 08.00 „Ég borða morgunmatinn oftast svona milli átta og níu. Alltaf búst eða hafragraut. Það er allt til alls hér í vinnunni. Síðan erum við hjónin áfram að þjálfa til klukkan eitt en alls ekki lengur. Við erum hætt að vinna yfir okkur.“ 13.00 „Sko. Við hjónin erum bara alltaf saman. Það er alveg með ólíkind- um! Þegar við erum búin að þjálfa keyrum við heim og fáum okkur léttan hádegismat, skyr og flatkökur eða þess háttar, og eftir það förum við gjarna að gera upp sumarbú- staðinn okkar í Grímsnesinu. Við keyptum gamlan bústað sem við höfum verið að gera upp síðan síðasta sumar og hann fer alveg að verða tilbúinn. Við erum yfirleitt að þessu fram á kvöld og þá er brunað í bæinn en ferðin tekur rétt um 40 mínútur.“ 19.00 „Við erum komin heim um kvöld- matar leytið og þá borðum við yfirleitt öll saman, án þess að það sé eitthvað formlegt. Eldri sonurinn er að ljúka námi og ætlar að búa hjá okkur þangað til hann kaupir sér íbúð í sumar en hinn er enn að finna sig í lífinu.“ 23.00 „Ég er týpan sem er með svefn- truflanir. Fer ekki að sofa í takt við fótaferð og er svo að vakna stundum um miðjar nætur, eða fyrr en 4.45. Maður er bara orðinn svo vanur þessu. Það venst allt einhvern veginn sama hversu vitlaust það er. Ég glápi oftast á sjónvarpið þar til ég fer að sofa en það er á stefnu- skránni að byrja aftur að lesa meira, enda mun betra fyrir mann.“ Mynd dV ehf / Sigtryggur Ari Í ræktinni sÍðan 1979 linda Jóns hjá World Class hefur hjálpað ótal mörgum að koma sér í betra form en hún hefur starfað sem einka- þjálfari í rúmlega tuttugu ár og æft miklu lengur. „Ég vakna klukkan korter í fimm sem er bæði ógeðslegt og fárán- legt þegar maður fer að spá í það. Þetta á ekkert vel við mig því ég er b-mann- eskja í eðli mínu en maður neyðist til að stríða gegn eðlinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.