Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Blaðsíða 50
Vikublað 5. janúar 2018 Vel mælt Orðabanki Birtu: Daður Langar að kynnast þér betur Daður getur flækst fyrir mörgum, þá ýmist hvernig á að fara að því eða hvernig á að skilja það. Daður er samt ekki svo flókið og margir vilja meina að það sé góðum samskiptum frekar nauðsynlegt. Daður þarf þannig ekki alltaf að vera af kynferðislegum toga, heldur einungis merki um að þeim sem daðrar, líki vel við viðmælanda sinn. Í þessu samhengi er til dæmis talað um daður milli stjórnmálamanna eða annarra sem mögulega langar að leiða saman hesta sína. Daður þykir einfaldlega gefa til kynna áhuga á nánari kynnum, hvernig sem þau kynni ættu svo að verða. Þetta fyrirbæri getur þó stundum verið ör- lítið varhugavert, þá sér í lagi þegar daðrarinn ætlar sér ekkert lengra með áhugann heldur daðrar bara af gömlum vana. Þetta gæti til dæmis komið sér illa á vinnustöðum eða þar sem fólk hittist reglulega. Þá situr daðrarinn uppi með aðdáanda sem veður um í villu og svíma. Daður er jú að mestu fólgið í því ósagða og fólk er misgott í að skilja þess háttar samskipti. Döðrum því heiðarlega. Úr íslensku orðabókinni daðra dilla, dingla; d. við biðla til, dalla, dandóa, digga við, *dika við, draga sig eftir, dufla, fipla, fitla, gefa hýrt auga, gefa undir fótinn, gera sér títt við, gera sig til, glingra við, gæla við, kela við, kjassa, leita hófanna hjá, manga til við, stíga í vænginn við, tildra sér til, viðra sig upp við. Sögnin að daðra s. (17. öld) er fengin frá því þegar hundar dilla eða dingla rófunni. Að daðra þýðir þannig að sýna ástleitni, dufla eða gefa undir fótinn. Daður dill, dingl; dufl, léttúðarkennd ástleitni. „Okkur mönnunum hættir til að leggja hamingjuna í einelti en undan óhamingjunni flýjum við sem fætur toga og höfum þó margreynt að hún er oss flestum sannari vinur en hin ljóshaddaða, léttfætta og léttúðuga systir hennar. - Gunnar Gunnarsson – Fjallkirkjan 31 árs 43 ára mundi Vondi Starf: Fatahönnuður Fæddur: 6. janúar 1987 Ásgeir kolbeinsson Starf: Fjölmiðlamaður Fæddur: 11. janúar 1975 gunnar smÁri egilsson Starf: Sósíalistasforingi og fyrrverandi útgefandi Fæddur: 11. janúar 1961 57 ára Afmælisbörn vikunnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.