Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2018, Síða 68
68 lífsstíll - ferðalög Helgarblað 5. janúar 2018
M
óðir jörð, þú sem ert á
himnum: Takk elskuleg.
Þessi orð voruð
skrifuð í dagbókina
mína á siglingu um Halong
Bay í Víetnam. Upplifunin var
djúpstæð. Svæðið, sem hefur
stundum verið nefnt eitt af sjö
undrum veraldar, er eyjaklasi
sem inniheldur hátt í 2.000 litl
ar, háreistar og gróðursælar eyj
ar. Við fjölskyldan vorum stödd í
mikilvægu ferðalagi með þrem
ur vinafjölskyldum okkar um
Dúbaí, Kína, Víetnam og Balí
síðastliðið sumar. Tilgangur
ferðarinnar var að heimsækja
upprunaborg ættleiddra dætra
okkar frá Kína og anda að okkur
undrum og ævintýrum Asíu.
Halong Bay er ekki bara stór
brotin náttúrusmíð sem verður
ekki lýst með orðum, í Halong
Bay er líka stórbrotið, agnar
smátt samfélag sem snerti okk
ur djúpt. „The Floating Village“.
Réttu hjálparhendur
Þegar við vorum á siglingu á Ha
long Bay sendi mamma mér mynd
úr bátnum þar sem hún var að
sigla út í Árneseyju í Trékyllisvík.
Fjölskyldan mín, sem þar býr, var á
leið í dúntekju. Með í för voru þrjár
konur sem höfðu tekið skyndiá
kvörðun um að fara í „roadtrip“
eitthvert út á land sumarið áður.
Ferð þeirra endaði norður í Árnes
hreppi á Ströndum, þar sem bíllinn
þeirra bilaði. Þær skrifuðu greinar
í Fréttatímann í kjölfarið af upp
lifun sinni af því hvernig heima
menn í þessu minnsta sveitarfélagi
á landinu opnuðu verkfæratösk
urnar, heimili sín og faðminn á
áreynslulausan hátt og réttu þeim
hjálparhendur. Fleiri en eina og
fleiri en tvær.
Fréttatímastelpurnar, eins og
þær eru kallaðar í daglegu tali í
Árneshreppi, hafa í kjölfarið kom
ið nokkrar ferðir norður og með
al annars hjálpað til við smala
mennsku og búskapinn svo
eitthvað sé nefnt. Þær sjá menn
ingarleg verðmæti í þessu litla,
einstaka samfélagi. Upplifun þeirra
af svæðinu og fólkinu sem þar býr
snertir þær og síðastliðinn vet
ur fóru þær með börnin sín norð
ur í nokkurs konar „skólabúðir“
þar sem þau kynntust bæði öðrum
börnum í sveitinni og því hvernig
það er að búa á svona stað.
Sorgarsaga
Á sama tíma og við ferðuðu
mst um Asíu voru tvö mál
þing haldin í Árneshreppi um
framtíðina og næstu skref.
Stærsta baráttumál þessa ein
angraða samfélags áratugum
saman hefur verið samgöngu
mál svo unnt sé að sækja
grunnþjónustu á borð við
heilbrigðisþjónustu og skapa
búsetuvænt umhverfi. Það er
ekki ætlunin að rekja þá sorgar
sögu hér en hávær þögn stjórn
valda og einbeitt aðgerðarleysi
hefur verið áþreifanlegt. Skila
boðin eru skýr: Íslensk stjórnvöld,
sama hvar í flokki, hafa ekki áhuga
á að viðhalda svona samfélagi.
Fólkið flutt burt
Mér gat ekki annað en verið hugs
að sterkt heim þar sem við sigld
um hljóðlát um „The Floating
Village“ í Halong Bay. Myndin af
Fréttatímastelpunum í bátnum
með mömmu var ákveðin endur
speglun af okkur vinkonunum
hér í Víetnam, þar sem við sát
um í bambusbát og sigldum fram
hjá fljótandi heimilum og fengum
innsýn í líf heimamanna. Í þorp
inu búa um 500 íbúar. Hér er skóli
fyrir börn 6–12 ára en eftir það fara
börnin öllu jafna til ættingja í Ha
long Bay City. Hér lifir fólk meðal
annars af náttúrunni, viðskiptum
við ferðaþjónustuaðila, sem sigla
um Halong Bay, auk þess sem
íbúar fljótaþorpsins selja sjávar
afurðir upp á meginlandið.
Hér er það ekki aðgerðarleysi
stjórnvalda sem er ógn við menn
ingarlega dýrmætt samfélag, hér
eru það beinar aðgerðir sem hafa
valdið verulegri fólksfækkun að
sögn leiðsögumanns okkar. Hann
segir okkur að frá árinu 2012 hafa
hátt í þrjú þúsund manns verið
fluttir úr fljótandi þorpum á Ha
long Bay til Halong Bay City þar
sem þeim var hjálpað að finna
húsnæði og skóla fyrir börn
in. Stjórnvöld vildu ekki að fólk
ið mengaði flóann, var ein skýr
ingin. Leiðsögumaður okkar, sem
bjó sem barn í fljótaþorpi, segir að
stjórnvöld hafi ekki gert sér grein
fyrir að ruslið í Halong Bay bær
ist með rekanum, bæði frá Halong
Bay City og frá úthafinu. Stranda
menn þekkja það vel að hreinsa
fjörurnar sem fyllast af rusli.
Ruslið er ekki frá heimamönnum
komið þar frekar en hér.
„Hér kann fólk að lifa
í náttúrunni“. Það var
greinilegt hvað þessi um
ræða snerti leiðsögu
mann okkar djúpt. Hann
sagði okkur að fólkið sem
var flutt til Halong Bay
City þrífist ekki þar. Sú
mikla og dýrmæta þekk
ing og reynsla sem það
býr að, eftir að hafa lifað
með náttúruöflunum í
Halong Bay, nýtist ekki á
sama hátt í daglegu stórborgarlífi.
Unga fólkið sækir í að koma aftur
heim til að geta unnið í fljótaþorp
unum meðan gamla fólkið gætir
barna á skólaaldri í borginni. Átt
hagarnir, ræturnar í náttúrunni,
toga fast í: ,,Yes! They live happily
here!“ hann ljómaði og lagði
sterka áherslu á orð sín. „They are
not happy in the city!“
Stöðugt að næra hið stóra
Svarið staðfesti upplifun mína.
Hér eru húsin smá, íburður
inn enginn, undirlendið ekkert.
„Hér vakir guð hins smáa,“ eins
og Elín Agla Briem, íbúi í Árnes
hreppi, orðar það svo fallega. Feg
urð einfaldleikans í djúpstæðum
tengslum við náttúruna smýgur
langt inn í mig. Við segjum fátt í
bátnum. Kyrrðin er eins og feg
ursta tónlist. Í kringum okkur sigla
dætur okkar á kajökum með feðr
um sínum. Að sjá þau róa fram
hjá fljótandi húsunum gerir upp
lifunina raunverulega. Við erum
ein hér með heimamönnum sem
eru ekki úti á sjó að vinna. Við
sjáum börn. Einhverjar konur. Og
marga sofandi karlmenn. Það vek
ur undrun okkar. „Karlarnir vinna
erfiðisvinnu við veiðar,“ sagði leið
sögumaðurinn okkur þegar við
spurðum hann. Á þessum tíma
dags virtust þeir vera að hvíla sig
meðan konurnar sigldu bambus
bátum út um allan flóa með
ferðamenn í skoðunarferðum og
varning til sölu.
Hvað getur maður sagt? Þorp
unum á flóanum og íbúum þeirra
hefur stórfækkað. Við erum stöð
ugt að næra hið stóra, risakeðjurn
ar, fyrirtækjasamsteypurnar, á
kostnað hins smáa. Einstaka.
Fagra. Við erum að markaðsvæða
líf okkar í leit að hamingjunni,
meðan hamingjan er bara hér. Og
nú. Í hinu smáa. Hinu smáa, sem
er svo stórt. Og vonandi, vonandi
vöknum við til vitundar um það
fyrr en síðar. Meðan dýrmæt sam
félög, eins og Árneshreppur og
fljótaþorpin sem eftir lifa í Halong
Bay, eru ennþá til. n
Ingibjörg Valgeirsdóttir
Í Trékyllisvík
og Halong Bay
Ingibjörg Valgeirsdóttir skrifar um djúpstæða
upplifun af ferðalagi til Halong Bay í Víetnam
„Við erum stöðugt
að næra hið
stóra, risakeðjurnar,
fyrirtækjasamsteypurnar,
á kostnað hins smáa.
Á ferðalagi Ingibjörg Valgeirsdóttir, Hrafnhildur
Kría Jónasdóttir og Jónas Gylfason. Mynd ÚR eInkaSaFnI