Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Side 2
2 Helgarblað 12. janúar 2018fréttir
Þessar fréttir bar hæst í vikunni
Helgi barði Ósk
Fyrrverandi kærasti Óskar Matthíasdóttur, Helgi Sigurðsson
einkaþjálfari, var dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir ofbeldisbrot gegn henni.
dv.is
Ævintýralegar nágrannadeilur
„Hann reyndi að drepa mig,“ segir Hreggviður Hermannsson,
bóndi að Langholti 1b í Árnessýslu. Hreggviður sakar nágranna
sinn, sem býr í Langholti 2, um að hafa reynt að keyra yfir hann.
dv.is
Fékk ekki gin og tónik
Þorvaldur Gissurarson missti stjórn á sér í flugi WOW air á
dögunum eftir að áhöfn vélarinnar neitaði honum um áfengi.
dv.is
Sérsveitin braust inn í
Skáksamband Íslands
Forseti Skáksambandsins handtekinn þegar hann tók grunlaus við sendingu sem reyndist innihalda fíkniefni
S
íðastliðinn mánudag rudd-
ust fjórtán sérsveitar-
menn með alvæpni
inn í skrifstofuhús-
næði við Faxafen og hand-
tóku þar tvo menn á vett-
vangi. Aðgerðin tengdist
innflutningi á fíkniefnum
en kassi, þar sem fíkniefni
voru falin í tilteknum mun-
um, hafði skömmu áður borist í
DHL-sendingu í húsnæðið. Það
sem var óvenjulegt við þessa að-
gerð er það að vettvangur henn-
ar var skrifstofa Skáksambands Ís-
lands og annar hinna handteknu
var Gunnar Björnsson, forseti
sambandsins. „Það má segja að ég
sé bara lítið peð sem var fórnað í
valdatafli undirheimanna,“ segir
Gunnar glettinn í samtali við DV.
Hann þurfti að dúsa í varðhaldi
í nokkra klukkutíma og þurfti að
undirgangast yfirheyrslu lögreglu.
Rétt er að geta þess að lögregla tel-
ur að aðild Gunnars að málinu sé
aðeins sú að hann tók grunlaus við
sendingunni.
Forsetinn færður í járn
„Við fengum tilkynningu um
að okkur hefði borist pakki frá
spænskri skákvöruverslun. Fram-
kvæmdastjóri sambandsins sér
yfir leitt um að panta vörur og hún
kannaðist ekkert við pakk-
ann. Ég ákvað engu að síður
að kvitta fyrir móttöku hans
þegar mér var tilkynnt
að flutningsgjöldin
hefðu verið greidd
fyrirfram,“
segir Gunnar.
Brögð reynd-
ust vera í tafli því
þrátt fyrir að í kassanum
væru sannarlega skákvör-
ur þá kom á daginn að þær
voru fullar af fíkniefnum.
DHL-sendillinn var nýfar-
inn þegar riddarar sérsveitar-
innar ruddust inn með látum.
„Þetta var eins og í Hollywood-
mynd. Ég væri að ljúga ef ég
segðist ekki hafa komist í
uppnám,“ segir Gunnar sem
var umsvifalaust handtek-
inn. Þá ákváðu sérsveitar-
menn að tefla ekki á tvær hættur
heldur færðu forsetann einnig í
járn. Yfir Gunnari stóð voldugur
sérsveitarmaður og spurði í skip-
andi tón hver Gunnar væri. „Ég
svaraði því til að ég væri forseti
Skáksambandsins,“ segir
Gunnar og getur ekki ann-
að en hlegið þegar hann
rifjar atburðarásina upp.
Braut allt og bramlaði
Skrifstofa Skáksambandsins að
Faxafeni 12 er samtengd húsnæði
Taflfélags Reykjavíkur. Á milli rý-
manna er voldug millihurð og eftir
að hafa kembt húsnæði sambands-
ins beindist áhugi sérsveitarmanna
að húsnæði Taflfélagsins þar sem
þeir urðu varir við mannaferðir. Þar
leigir einstaklingur skrifstofurými
og honum varð verulega brugðið
þegar sérsveitarmaður með lamb-
húshettu öskraði á hann að opna
dyrnar. Maðurinn komst að þeirri
niðurstöðu eftir skamma um-
hugsun að besti leikurinn í stöð-
unni væri sá að láta sig hverfa af
vettvangi. Leikfléttan gekk þó ekki
upp því maðurinn var handtekinn
þegar hann freistaði þess að kom-
ast út um annan útgang á húsnæð-
inu. Við handtökuna gaf maðurinn
þær skýringar að hann hafi ekki vit-
að að um sérsveitarmann lögreglu
væri að ræða heldur talið að þarna
væri einhver óprúttinn misindis-
maður á ferðinni. Því hafi hann
yfir gefið húsnæðið. Manninum var
strax sleppt úr haldi enda augljóst
að hann tengdist málinu ekki neitt.
Að sögn Gunnars bætti ekki
úr skák að sérsveit lög-
reglu gekk mjög hart
fram í aðgerðinni.
Hurðir voru brotn-
ar niður í Skáksam-
bandinu sem og Taflfélagi
Reykjavíkur. „Brot úr hurðun-
um voru úti um allt og óneit-
anlega talsvert tjón. Lög-
reglan hefur tilkynnt mér
að allt tjón verði bætt,“
segir Gunnar. Þegar
sérsveitarmenn
voru búnir að
tryggja húsnæðið
var Gunnar færður til yfir-
heyrslu.
Yfirheyrður bróður-
part úr degi
„Mér var tjáð að
lögreglan yrði að
yfirheyra mig
enda tók ég við
pakkanum,“
segir Gunnar.
Hann þurfti
því að dúsa í
haldi lögreglu
bróðurpart úr
degi, aðgerðin
átti sér stað um
klukkan 13.00
mánudaginn
8. janúar en
Gunnar losnaði
úr haldi lögreglu
um kvöldmat-
ar leytið. „Þetta
var ákveðin lífs-
reynsla, það er
ekki hægt að segja
annað. Ég hefði
samt alveg viljað
sleppa við hana,“
segir Gunnar en bætir við að lög-
reglumennirnir sem handtóku
hann hafi sýnt fyllstu kurteisi og
háttvísi miðað við aðstæður. Að-
spurður um framhaldið segist
Gunnar ekki hafa hugmynd um
hvað taki við: „Ætli svartur eigi
ekki leik.“
Á sama tíma og aðgerðin
í Skáksambandinu fór
fram var svipuð að-
gerð í húsnæði Hvíta
Riddarans í Mosfellsbæ.
Þar var einn einstaklingur
handtekinn og annar síðar
um daginn. Mennirnir eru á
þrítugsaldri og hafa þeir ver-
ið úrskurðaðir í tveggja vikna
gæsluvarðhald, grunaðir um
að hafa skipulagt innflutning
á efnunum. Samkvæmt heimild-
um DV lagði lögreglan hald á um
átta kílógrömm af eiturlyfjum í
aðgerðinni. Heimildum blaðsins
ber ekki saman um hvort um am-
fetamín eða kókaín hafi verið að
ræða. Ljóst er þó að söluandvirði
efnanna á götunni hleypur á tug-
um, ef ekki hundruð milljónum
króna. n
Gunnar Björnsson Forseti Skáksambandsins
tók grunlaus við DHL-sendingu á skrifstofu sam-
bandsins í vikunni. Andartaki síðar var Gunnar
handtekinn.
Eitruð peð Skák-
vörurnar reyndust
innihalda fíkniefni.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Þetta var
eins og í
Hollywood-mynd
Ökuferðin
endaði með
ósköpum
Héraðsdómur Suðurlands
hefur dæmt 27 ára karlmann
í tveggja mánaða óskilorðs-
bundið fangelsi. Maðurinn var
ákærður fyrir að hafa, þann
15. febrúar í fyrra, ekið bifreið
sinni vestur Suðurlandsveg
undir áhrifum MDMA, am-
fetamíns og kannabisefna.
Ökuferðin endaði ofan í
skurði eftir að maðurinn missti
stjórn á bifreiðinni. Farþegi sem
var með í för slasaðist; hlaut brot
á lendarlið og mar á brjóstkassa.
Við leit á manninum fundust
tæp tólf grömm af amfetamíni.
Maðurinn hefur ítrekað komist
í kast við lögin vegna umferð-
arlagabrota en þegar slysið varð
var þegar búið að svipta hann
ökuréttindum ævilangt.
Dómurinn ítrekaði
ökuleyfissviptinguna og dæmdi
manninn sem fyrr segir í
tveggja mánaða fangelsi. Þá var
honum gert að greiða sakar-
kostnað sem nam rúmum 400
þúsund krónum.
Stefán Black-
burn laus af
Litla-Hrauni
Stefán Blackburn er laus af
Litla-Hrauni. Greint var frá því
í Fréttablaðinu fyrir áramót að
Stefán hefði verið fluttur á Litla-
Hraun tveimur dögum fyrir jól.
Áður var hann laus með ökkla-
band en Fangelsismálastofn-
un ákvað að vista hann, ásamt
Berki Birgissyni, á Litla-Hrauni
eftir að hafa fengið upplýsingar
frá lögreglu um að Stefán væri
grunaður um líkamsárás. Stefán
hefur nú verið látinn laus, en til
hans sást á skyndibitastaðnum
Serrano í Kringlunni á fimmtu-
daginn ásamt nafna sínum Sí-
varssyni.