Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Page 12
12 Helgarblað 12. janúar 2018fréttir
P
íratar fóru með himinskaut
um í skoðanakönnunum frá
vormánuðum 2015 þangað til
greint var frá Panamaskjölun
um vorið 2016. Eftir tvennar þing
kosningar eru Píratar enn og aftur
mættir í stjórnarandstöðu og mið
að við vinsældir ríkisstjórnarinn
ar er erfitt að sjá að flokkurinn verði
áhrifamikill í þjóðmálaumræðunni
á næstunni. Blaðamaður DV settist
niður með Smára McCarthy, þing
manni Pírata, sem er í óðaönn að
skipuleggja þingstörfin í vor og
ræddi við hann um stöðuna í dag og
verkefnin sem þarf að leysa.
Verðmætasköpun og hvernig Ís
land verður í framtíðinni er Smára
ofarlega í huga. „Í dag koma 40
prósent af gjaldeyristekjum okkar
í gegnum ferðaþjónustuna, svo ál,
fiskur og allt hitt. Það þarf ekki mik
ið að klikka til að skapa stórt vanda
mál mjög hratt. Okkur gengur afar
vel sem samfélagi en það eru mjög
mörg egg í fáum körfum.“
Smári leggur mikla áherslu á að
koma á fót fleiri sterkum atvinnu
vegum og kemba regluverkið til að
skapa sem flest tækifæri. „Minn
draumur er að við séum leiðandi
í heiminum þegar kemur að upp
lýsingafrelsi og friðhelgi einkalífs
ins og að við séum með kerfi þar
sem þróun hugmynda og tækni
getur blómstrað hratt. Við erum að
horfa upp á ritskoðunartilburði og
lokun markaða, þá er boltinn hjá
okkur og við erum alveg tilbúin að
hjálpa ef á okkur er hlustað.“
Smári segir að stjórnmála
umræðan sé föst og ekki sé horft
nóg til framtíðar, einungis þurfi
að breyta kerfinu lítillega til að
gera Ísland samkeppnishæfara á
ýmsum sviðum. „Í dag var ég til
dæmis að þvælast með bandarísk
um frumkvöðli sem vill fara burt
frá Bandaríkjunum, hann er að
þróa gámaflutninga með drónum.
Ef okkur tekst að lokka svona fyrir
tæki hingað með góðu regluverki
þá er það stórt. Það á við um líf
tækni, þróun gervigreindar, nanó
tækni og kjötræktun.
Það kemur sá dagur að hægt
verður að rækta fiskikjöt og verð á
fiski fellur, hvernig væri að við vær
um leiðandi í stað þess að fá þetta í
andlitið þegar að því kemur? Það er
margt sem við erum að gera ágæt
lega þegar kemur að nýsköpun en
þegar við berum okkur saman við
önnur lönd þá eru til dæmis endur
greiðslur til rannsóknar og nýsköp
unar hreinlega brandari. Það er
erfitt að fá sérfræðinga til að flytja
hingað, þeir finna ekki grunnskóla
fyrir börnin sín með alþjóðlega
vottun og þótt það sé auðvelt fyrir
sérfræðinga að fá dvalarleyfi þá á
það ekki við um maka.“
Skortir viðleitni til
að gera hlutina rétt
Píratar gagnrýndu Sigríði Á. Ander
sen dómsmálaráðherra harðlega
fyrir kosningar, bæði í tengslum
við uppreist æru sem og skipun
dómara í Landsrétt. Smári segir
það stuðandi að sjá Sigríði áfram í
dómsmálaráðuneytinu. „Hún braut
lög. Við erum ekki að tala um kvart
anir, kærur eða einstaka dóma, en
það er munur á því að klúðra ein
hverju minniháttar og að skipa heilt
dómstig þegar það var margbúið að
benda á að það væri ólöglegt. Við
báðum um að þetta yrði gert rétt
og það eru kannski málefnalegar
ástæður fyrir því að fara gegn niður
stöðu hæfnisnefndarinnar, en við
vitum það ekki því hún sinnti ekki
upplýsingaskyldu sinni sem ráð
herra,“ segir Smári.
„Svo erum við með fjármálaráð
herra sem hefur ekki reynt að gera
hreint fyrir sínum dyrum varðandi
Panamaskjölin og ýmislegt þannig.
Almennt þá skortir viðleitni til
að reyna að gera hlutina rétt og
viðhalda ákveðnum siðferðis
legum viðmiðum sem ég held að
almenningur í landinu vilji að sé
gert. Þetta ætti að vera auðvelt að
laga, í tilfelli Bjarna Benediktssonar
þá gæti hann hæglega birt upplýs
ingar um að hann hefði ekki verið
að stunda viðskipti í skattaskjólum
og hefði ekki verið að misnota vit
neskju sína fyrir hrun. Í tilfelli Sig
ríðar Andersen þá ætti hún að víkja
úr dómsmálaráðuneytinu á meðan
það fer fram rannsókn á gjörðum
hennar í embætti.“
Hvernig sérðu fyrir þér næstu
fjögur ár í stjórnarandstöðu?
„Ég held að stjórnarandstaðan
sé sterk, þrátt fyrir undarlega sam
setningu, og þingflokkur Pírata er
mjög sterkur í augnablikinu. Ég
held að við getum gert mikið gagn
en það fer eftir því hvort þessi ríkis
stjórn muni standa við öll þessi lof
orð um breytt vinnubrögð eða hvort
þetta sé sama kjaftæðistalið og oft
áður. Ef þetta er bara tal þá sé ég
fram á leiðinleg fjögur ár þar sem
maður þarf að hamast og hamast á
ríkisstjórninni. Ef það er hins vegar
eitthvað satt í þessu og ef það verður
aðeins tekið tillit til hugmynda og
tillagna stjórnarandstöðunnar, ef
það verður tekið samtal og fólk
hlustar á hvert annað í stað þess að
fara í fylkingar, þá gæti kjörtímabil
ið orðið skemmtilegt og gagnlegt.
Ég skora hreinlega á ríkisstjórnina;
það hversu góð þessi fjögur ár verða
fer algjörlega eftir því hvernig þau
spila úr þeirra stöðu.“
Margir með fordóma í garð Pírata
Píratar útilokuðu að starfa með
Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn,
fyrir kosningar 2016 útilokaði
flokkurinn einnig samstarf við
Framsóknarflokkinn. Smári segir
að það þýði ekki að Píratar vilji ekki
vinna með þeim í ákveðnum mál
um. „Við treystum okkur ekki til
þess að fara í ríkisstjórn með þeim
því við höfum séð hvernig það
gengur fyrir sig. Munurinn skiptir
máli, í starfinu á þinginu er maður
að vinna með fólki sem maður
er ósammála í sumum efnum,
þannig á þetta að virka. En vegna
þess að flestir flokkar sem hafa far
ið í stjórn með Sjálfstæðisflokkn
um hafa farið laskaðir eða ónýtir út
úr því samstarfi, þetta lítur út eins
og algjört ofbeldissamband, þá er
vont fyrir flokk eins og okkur að
ætla að vinna með honum í ríkis
stjórn. Það er línan sem við dróg
um fyrir síðustu kosningar. Það er
ekkert til frambúðar, það gæti al
veg komið sá tími að við yrðum til í
að fara með þeim í ríkisstjórn.“
Upplifun margra á Pírötum er
að þeir séu stefnulausir stjórnleys
ingjar sem vilja bara sitja fyrir fram
an tölvuna á borgaralaunum. Smári
hafnar því alfarið og segir marga
hreinlega vera með fordóma í garð
Pírata. „Þetta er upplifun sem hef
ur aldrei byggst á neinu öðru en for
dómum. Ef fólk kæmi og sæi hvern
ig við störfum þá gæti það ekki
komist að þessari niðurstöðu. Það
er rétt að við störfum að sumu leyti
allt öðruvísi en aðrir flokkar, annað
er mjög hefðbundið. Við erum ekki
með formann en það hefur komið
til umræðu. Við erum alltaf tilbúin
í samtal, ef einhver er með gagn
rýni á okkur þá erum við alveg til í
að fara yfir það. Varðandi borgara
laun þá orðaði Halldóra Mogensen,
þingmaður okkar, það vel í tengsl
um við starfslaun listamanna að nú
vantaði bara að bæta 300 þúsund
manns í viðbót og þetta væri kom
ið,“ segir Smári og hlær. n
Píratar vilja hjálpa
ríkisstjórninni
n Gætu myndað ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum
í framtíðinni n Margir með fordóma í garð Pírata
Ari Brynjólfsson
ari@pressan.is
Ekki formaður
eða kafteinn Pírata
Smári McCarthy segir að
Píratar séu formanns-
laus flokkur en það hafi
komið til umræðu innan
flokksins að breyta því.
Mynd Sigtryggur Ari„Ég held að
stjórnar andstaðan
sé sterk, þrátt fyrir undar-
lega samsetningu.
pílukast
er fyrir alla!
Síðumúla 35 (gengið inn að aftan) - Sími 568 3920 & 897 1715