Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Síða 18
18 Helgarblað 12. janúar 2018fréttir
Lögfræðingar rifja upp erfiðustu málin
n Kio Briggs, Shaken Baby Syndrome og stóra kóktappamálið
Lögmenn starfa á átakaflötum þjóðfélagsins þar
sem deilt er um staðreyndir og réttar túlkanir á oft
óskýrum textum löggjafans. Á borði þeirra lenda því
bæði erfið og furðuleg mál, misalvarleg eins og gefur
að skilja. DV spurði nokkra af þekktustu lögfræðing-
um landsins nokkurra spurninga um ferilinn.
kristinn@dv.is
Hjúkrunarfræðingur sakaður um manndráp af gáleysi
Ásta Kristín Andrésdóttir, hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum, var ákærð fyrir manndráp af gáleysi þegar sjúklingur lést á gjörgæsludeild
3. október árið 2012. Maðurinn var á batavegi eftir hjartaaðgerð og var Ásta Kristín sökuð um að hafa ekki tæmt loft úr kraga barkaraufar-
rennu er hún tók hann úr öndunarvél. Maðurinn lést vegna öndunarerfiðleika skömmu síðar en dómarar komust að þeirri niðurstöðu að það
hefði ekki getað verið yfirsjón því að um 25 mínútur liðu þarna á milli. Ásta Kristín og Landspítalinn voru sýknuð af öllum kröfum í héraði 9.
desember árið 2015 og var málinu ekki áfrýjað. Ekkja mannsins sagði Ástu Kristínu ekki hafa átt sök og fagnaði niðurstöðunni.
Nígeríusvindl Sunday Osemwengie og Nosa Ehiorobo, Nígeríumenn búsettir á Spáni, voru stöðvaðir á Keflavíkur-
flugvelli með 100 þúsund evrur í reiðufé 17. mars árið 2006. Í þeirra fórum fundust einnig svartir miðar í peningaseðlastærð, joð, vaselín,
einnota hanskar, álpappír og flúorlampi. Þeir voru ákærðir fyrir fjársvik og dæmdir til 15 mánaða fangelsisvistar þann 28. apríl sama ár fyrir
að hafa peningana af íslenskum feðginum sem þeir höfðu verið í sambandi við fyrir komuna. Faðirinn pantaði leiguíbúð fyrir þá og dóttirin
greiddi fyrir kvöldverð. Þann dag lögðu þau níu milljónir króna inn á reikning sem voru teknar út í evrum samdægurs. Sögðust mennirnir
geta þrefaldað fjárhæðina með efnahvarfi en innan löggæslunnar er talað um „Black money fraud“. Dómurinn fór ekki fyrir Hæstarétt.
Sveinn Andri Sveinsson
Hví ákvaðst þú að gerast lögmaður? Karl faðir
minn, Sveinn Haukur Valdimarsson, var hæstarétt-
arlögmaður og hvatti mig lengi til að gera eitthvað
allt annað en fara í lögfræði. Það var annaðhvort
að fara í arkitektúr eða skella sér í lögfræðina. Að-
dáun mín á gamla manninum varð síðan til þess
að ég ákvað að velja lögfræðina og feta svo í hans
fótspor. Það var samt þegjandi samkomulag okkar
á milli að ég myndi ekki sækja um vinnu hjá honum.
Fyrsta málið þitt?
Eftir útskrift starfaði ég í nokkur ár sem löglærður
fulltrúi hjá mætum Ásgeiri Thoroddsen hrl. og Ingólfi Hjart-
arsyni heitnum. Ég fékk síðan eitt mál upp í hendurnar til að reka fyrir
bæjarþingi í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu sem ég sótti um sem mitt fyrsta prófmál til að
verða héraðsdómslögmaður. Málið hafði allt til að bera til að vera prófmál, en eftir mikinn
og vandaðan undirbúning var því hafnað að málið væri tækt sem prófmál. Ég flutti það
engu að síður, enda mátti löglærður fulltrúi án lögmannsréttinda flytja mál þá fyrir þeim
dómi. Málið varðaði gallaða glerísetningu í sólhýsi heima hjá foreldrum núverandi utan-
ríkisráðherra í Borgarnesi. Málið flutti ég gegn Óla sterka heitnum. Hann sá aldrei til sólar í
þessu máli enda hefði ég getað tekið próf í byggingafræði eftir þennan málflutning.
Erfiðasta málið?
Það mál sem tekið hefur mest á mig er svokallað SBS-mál (Shaking Baby Syndrome).
Það er í endurupptökuferli en ég hef verið að glíma við þetta mál, þar sem dagfaðir var
ákærður og dæmdur fyrir að hrista ungabarn til ólífis.
Furðulegasta málið?
Þau hafa mörg furðuleg málin verið í gegnum tíðina. Eitt það einkennilegasta var þegar
ég og Vilhjálmur Hans vorum verjendur tveggja Nígeríumanna sem ákærðir voru og
dæmdir fyrir fjársvik með því að hafa sannfært íslenska fjölskyldu um að mörg búnt
af hvítum bleðlum væru í raun evrur sem aðeins þyrfti að hafa í bréfpoka og sprauta í
pokann tilteknum vökva sem þeir voru með, þá myndi hvíta duftið fara af evrunum. Um
væri að ræða eina milljón evra sem þeir sannfærðu Íslendingana um að kaupa á 100.000
evrur. Það tæki efnið átta klukkustundir að hvarfast í burtu. Það var akkúrat sá tími sem
félagarnir töldu sig þurfa til að komast úr landi. Dómarinn í málinu hafði það á orði að
væri heimska refsiverð, þyrftu fórnarlömbin í málinu að dúsa lengi í fangelsi.
Sætasti sigurinn á ferlinum?
Sætasti sigurinn á enn eftir að koma. Það gerist þegar ég vinn sigur í málaferlunum gegn
Valitor vegna WikiLeaks. Krafan stendur í sex milljörðum í dag rúmlega.
Mest svekkjandi ósigurinn?
Það var dómur Hæstaréttar í áðurnefndu SBS-máli. Ferlega súrt að sjá saklausan mann
dæmdan í fangelsi, á „af því bara“ forsendum. En það er enn von.
Helgi Jóhannesson
Hví ákvaðst þú að gerast lögmaður? Þegar ég útskrifaðist
sem stúdent úr Verzló fóru langflestir skólafélaganna þar
beint í viðskiptafræðina. Mér fannst að ég þyrfti að gera eitt-
hvað öðruvísi og valdi lögfræði. Reyndar kom þá alveg eins
til greina að fara í leiklistarskólann og hugsaði ég mikið um
það, en ég var líklega of jarðbundinn til að elta þann draum
lengra. Eftir laganámið heillaði lögmennskan mig svo meira en
til dæmis dómstörf, störf í ráðuneytum eða önnur störf sem lög-
fræðingar leita í og nú á ég 30 ára starfsafmæli sem lögmaður í vor
og mér hefur fundist þetta gaman allan tímann. Ég valdi því sennilega rétt.
Fyrsta málið þitt? Það man ég nú ekki, en eins og flestir nýbyrjaðir þá voru það innheimtu-
málin sem voru langfyrirferðarmest.
Erfiðasta málið? Það er erfitt að segja. Auðvitað koma lögmenn oft að málum sem eru full
af sorg og mannlegum harmleikjum. Það er oft erfitt að vinna að málum fyrir fólk sem hefur
misst fótanna í lífinu og horfir á eftir dýrmætum árum bak við lás og slá eða hefur misst allt
sitt í fjármálavafstri. Það eru þess konar mál sem eru erfið og mikilvægt fyrir lögmenn að
brynja sig fyrir til að lifa af í þessu starfi.
Furðulegasta málið? Það eru svo sannanlega mörg mál sem eru óvenjuleg og furðuleg
sem rekur á fjöru lögmanna. Oft og tíðum hafa þau spaugilegar hliðar. Í einu máli voru
atvik þau að tveir svilar héldu sameiginlega upp á fertugsafmæli sín. Þeir keyptu aðföng
sameiginlega þar á meðal gos til að nota í veisluna. Þá var í gangi tappaleikur og kom bifreið
í vinning úr einni flöskunni. Sá aðili sem átti barnið sem opnaði þá flösku vildi meina að hann
ætti vinninginn einn en minn umbjóðandi taldi augljóst að þeir ættu hann saman enda keypt
til veislunnar í sameiningu. Úr þessu varð dómsmál milli þessara ágætu manna og vann minn
umbjóðandi málið og vinningurinn sem sagt talinn sameign. Ég held að þessar deilur hafi því
miður sett fleyg í samskipti fólks í þessari fjölskyldu sem er sorglegt, en málið var óvenjulegt.
Ég minnist líka deilna tveggja aðila á Húsavík. Ég var þar að vinna fyrir vin minn en börnin
hans voru með kanínur í búrum í hesthúsum þar við bæinn. Kanínurnar sluppu út og nágranni
vildi gera minn mann ábyrgan fyrir tjóni sem hann taldi kanínurnar hafa valdið á heyrúllum
í hans eigu en ljóst var að kanínurnar höfðu þá fjölgað sér gríðarlega. Upp úr þessu spruttu
skemmtileg bréfaskipti og pælingar um hvort minn umbjóðandi gæti borið ábyrgð á óhóflegri
fjölgun kanínanna og hvort hann bæri þá ábyrgð á öllum ættboga kanínanna sem sluppu.
Sætasti sigurinn á ferlinum? Ætli ég verði ekki að nefna sýknudóm yfir Kio Briggs á árinu
1999. Þetta var og er enn mjög í minnum haft og hef ég oft sagt að þetta sé næstfrægasta
sakamál Íslandssögunnar á eftir Njálsbrennu. Enn þann dag í dag, 19 árum síðar, eru menn
að minnast á þetta mál enda vakti málið og ákærði mikla athygli hér á landi á þessum tíma.
Mest svekkjandi ósigurinn? Ég hef alltaf nálgast lögmennskuna á þann veg að gera allt
sem í mínu valdi til að forða málum frá því að fara fyrir dómstóla. Legg ég mig mjög fram um
að ná sáttum milli aðila. Það er því svekkjandi ef maður hefur lagt mikla vinnu í slíkt ef málin
enda svo þrátt fyrir allt fyrir dómstólum sem felur í sér mikinn kostnað og andlega áþján
fyrir þá sem hlut eiga að máli. Það er nefnilega satt sem sagt hefur verið að „mögur sátt er
betri en feitur dómur.“