Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Qupperneq 21
KYNNING
með því að hringja í síma:
898-4939 eða senda tölvu-
póst á gesturhansa@simnet.
is. Ferðafélagið Trölli í ólafs-
firði er með heimasíðu trolli.
fjallabyggd.is/forsida/. Hægt
er að nálgast upplýsingar
um dagskrá og ferðir á trolli.
fjallabyggd.is/fyrirspurnir/
eða í tölvupósti til tommi@
skiltagerd.is.
Um 13 afþreyingarfyr-
irtæki eru í Fjallabyggð og
er hægt að nálgast all-
ar upplýsingar um þau á
visittrollaskagi.is
Menningarlíf
Í Fjallabyggð er einnig
blómlegt menningarlíf. Fjöldi
veitingahúsa, með fjölbreytta
matseðla er að finna í Fjalla-
byggð og gistimöguleikar
miklir. Einnig eru nokkur gall-
erí og listamannavinnustofur
sem áhugavert er að heim-
sækja og svo má ekki gleyma
söfnum og setrum. Þar má
nefna stærsta sjóminja- og
iðnaðarsafn landsins: Síldar-
minjasafnið. Óvíða finnast
jafnfjölbreyttir og skemmti-
legir möguleikar til þess að
láta sér líða vel í jafnfallegu
umhverfi og afslöppuðu and-
rúmslofti og er í Fjallabyggð.
Þar ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Sund
Hvað er betra eftir
góðan dag á fjöllum
en að hvíla lúin og köld
bein í hlýjum lindum
og spjalla aðeins
um stjórnarfarið? Í
Fjallabyggð eru tvær
sundlaugar sem upp-
fylla óskir kröfuhörð-
ustu sundiðkenda. Á
Siglufirði er 25 metra
innisundlaug, heitur
pottur (úti). Sund-
laugin er staðsett
við Hvanneyrarbraut 52. Í
Ólafsfirði er útisundlaug, tveir
heitir pottar, setlaug, vaðlaug
með svepp, fosslaug og tvær
rennibrautir. Sundlaugin er
staðsett að Tjarnarstíg 1.
Afþreyingarfyrirtæki
í Fjallabyggð
Amazing Mountains er eitt af
þeim fjölmörgu afþreyingar-
fyrirtækjum í Fjallabyggð.
Boðið er upp á ferðir fyrir
skíðafólk og ferðamenn sem
langar upp á fjallgarðinn
Tröllaskaga, hvort sem
ætlunin er að renna sér á
skíðum niður hlíðina eða að
sitja á vélsleðanum upp og
niður fjöll og firnindi. Þar má
upplifa akstur með vönum
heimaökumönnum og njóta
útsýnisins, taka ljósmyndir af
mikilfenglegu landslaginu og
heillast af feimnum norður-
ljósum uppi yfir fjallstindum
Tröllaskaga. Einnig er boðið
uppá leigu á drónum, fjalla-
tjald og búnað til gistingar í
því, bæði fyrir einstaklinga
og minni hópa. Amazing
Mountains býðst til þess
að flytja allan farangur og
búnað upp á fjöllin, viðskipta-
vinum sínum til hægðarauka.
Til þess að panta ferðir með
Amazing Mountains má hr-
ingja í síma: 863-2406 eða
senda tölvupóst á: solvilar-
us@gmail.com. Amazing
Mountains er staðsett að
Hrannarbyggð 14, 625 Ólafs-
firði.
Siglufjörður
Í Skarðsdal, rétt fyrir utan
Siglufjörð, er að finna eitt
glæsilegasta skíðasvæði
landsins og einn helsti kostur
svæðisins eru stuttar raðir
í lyftur, enda um nokkrar að
ræða. Gönguskíðabraut er
einnig troðin fyrir göngu-
skíðaiðkendur í Hólsdal þegar
nægur snjór og aðstæður
leyfa. En bent er á að mjög
góð gönguskíðabraut (Báru-
braut) er í Ólafsfirði og þegar
nægur snjór er í Ólafsfirði
er troðinn braut fyrir allan
almenning að auki. Nánari
upplýsingar um Skíðasvæðið
í Skarðsdal má nálgast á vef-
síðunni; skardsdalur.is. Fátt er
svo skemmtilegra en að taka
sér göngutúr um snjóflóða-
varnargarðana fyrir ofan
Siglufjörð, enda er útsýnið
stórbrotið og nálægðin við
náttúruna magnþrungin.
Ekki má gleyma sögu bæj-
arins en Síldarminjasafnið er
eitt glæsilegasta safn lands-
ins, þar sem saga og andi
bæjarins mætast í ógleym-
anlegri stund. Því er svo ekk-
ert til fyrirstöðu að skella sér
á eitt af kaffihúsum bæjarins
eftirá og njóta tíu rjúkandi
kaffidropa eða sötra á heitu
súkkulaði með ekta rjóma.
Það bragðast allt betur í
hreinu sjávarloftinu.
Ólafsfjörður: Útivera fyrir
ævintýragjarna í óbyggðum
Ólafsfjörður er sannkallaður
ævintýrabær. Þar er með-
al annars að finna frábært
skíðasvæði fyrir þá sem vilja
eitthvað öðruvísi. Ásamt
hefðbundnum skíðabrekkum
eru þar leikjabrautir fyrir bæði
skíði og bretti. Einnig eru snjó-
þotubrautir fyrir þá sem vilja
heldur sitja á leiðinni niður
brekkuna. Að auki eru lagðar
vélsleðabrautir fyrir ökuþóra
og þó nokkrar gönguskíða-
brautir fyrir göngugarpa á
skíðum. Á Ólafsfirði er einnig
að finna glæsilegt náttúru-
gripasafn með uppstoppuð-
um ísbirni, þeim sama og var
skotinn á Grímseyjarsundi, vísi
að plöntusafni, eggjasafn og
fjölda uppstoppaðra fugla,
en þess má geta að fuglalíf í
bænum er með eindæmum
fjölskrúðugt, sérstaklega á
sumrin.
Allar nánari upplýsingar
má nálgast á og í gegnum
vefsíðu Fjallabyggðar; fjalla-
byggd.is og visittrollaskagi.is
Skíðasvæði
Fjallabyggðar
Hin fallega byggð, Fjallabyggð