Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 25
25Helgarblað 12. janúar 2018
Sum fyrirtæki senda bara
starfsmann út í búð.
Það kostar ekkert því hann er
hvort sem er í vinnunni
Ávextir alla daga vinnuvikunnar
kosta um 550 kr. á mann.
Hamborgaratilboð kostar hátt
í 2.000 kallinn, einu sinni.
Ávaxtabiti um miðjan morgun
eða um nónið, getur bjargað
deginum þegar starfsmenn eru
orðnir orkulausir. Vinnuveitendur
geta hagnast nokkuð á því.
Þegar fyrirtæki eru í áskrift hjá
Ávaxtabílnum, þurfa þau aldrei
að muna að panta – ávextirnir
koma bara.
Ef fyrirtæki í áskrift vill breyta
pöntun sinni, er hún kölluð fram
á heimasíðu okkar, breytt og send
inn – gæti ekki verið einfaldara.
Fyrirtæki í áskrift
fá 20% afslátt af
veislubökkum okkar.
Starfsmenn Múlalundar
sjá um alla tiltekt ávaxtanna
fyrir Ávaxtabílinn og fá svo
að sjálfsögðu ávexti upp á borð
hjá sér alla vikuna
ódýr
Nú eru
góð ráð
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Ávaxtaðu betur
Hermann Hreiðarsson
Hóteleigandi
Ár í atvinnumennsku: 15 Landsleikir: 89
Harðhausinn frá Eyjum er að taka að sér þjálfarastarf í
Indlandi en hann á og rekur Stracta Hótel sem staðsett
er á Hellu. Hermann átti frábæran feril í ensku úrvals-
deildinni og varð meðal annars bikarmeistari með
Portsmouth. Þá var Hermann fyrirliði og lykilmaður í ís-
lenska landsliðinu í fjölda ára. Eyjapeyinn hefur þjálfað
hér heima en kom hótelinu af stað sem hefur verið afar
vinsælt á meðal ferðamanna sem eru á ferð um landið.
Gylfi Einarsson
Framkvæmdastjóri
Ár í atvinnumennsku: 10 Landsleikir: 24
Hver man ekki eftir markinu sem Gylfi skoraði gegn Ítalíu árið 2004 þegar áhorf-
endamet var sett á Laugardalsvelli? Gylfi skoraði í 2-0 sigri á stórveldinu en 20.200
áhorfendur voru á vellinum. Gylfi átti frábæran feril úti og lék meðal annars með Leeds
á Englandi en stuðningsmenn félagsins elska Gylfa enn í dag. Hann starfaði áður hjá
Cintamani en er nú eigandi í fyrirtæki sem starfar í Tax Free-bransanum og er þar
framkvæmdastjóri. Fyrirtækið stofnaði Gylfi á síðasta ári.
Pétur Hafliði Marteinsson
Athafnamaður og ráðgjafi
Ár í atvinnumennsku: 10 Landsleikir: 36
Eftir feril sinn í knattspyrnu hefur Pétur verið virkur í viðskiptalífinu á Íslandi. Pétur er einn af
eigendum og stofnendum Kex hostel sem hefur fest sig rækilega í sessi. Þá er hann einn af
eigendum Kaffihúss Vesturbæjar sem hefur vakið mikla lukku í Reykjavík. Þá er Pétur eigandi
Borgarbrags sem vinnur í því að bæta borgarumhverfi með ráðgjafar- og verkefnastjórnun.
Borgarbragur hefur unnið mikið fyrir KSÍ sem vinnur í því að gera nýjan Laugardalsvöll.