Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Page 32
Allt fyrir heimilið Helgarblað 12. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ Matthías Pétursson húsgagna-smiður er með þrjátíu ára reynslu af smíði og vinnur með Matthíasi syni sínum, sem er að ljúka námi í húsasmíði, og mun taka við rekstri föður síns þegar fram líða stundir. Þeir feðgar taka að sér flest það sem lýtur að smíði, nýsmíði og lagfæringum. Matthías segist lengi vel hafa unnið við sérsmíði á innréttingum: „Undanfarin ár hefur sérsvið mitt hins vegar verið garðar og hellulögn. Ég tek að mér fjölbreytt verkefni eins og sumarhús, einka- lóðir, lóðir undir nýbyggingar og eins eldra húsnæði. Að auki sé ég um nýja garða og endurgerð eldri garða.“ Sólpallar, skjólveggir og hellulögn „Þegar líða fer að vori fara margir að huga að sólpöllum enda eru þeir ekki bara til þess að njóta sólarinn- ar heldur nýtast einnig sem frábær framlenging á sjálfri stofunni,“ segir Matti. „Það er einnig annatími í hellu- lögn og girðingum. Skjólveggir, bekkir, kofar og geymslur spretta upp eins og gorkúlur í görðum landsmanna með hækkandi sól,“ bætir hann við og nefnir að fátt sé skemmtilegra en vorverkin. Heitir pottar – framlenging á stofunni „Fjölmargir hafa fengið sér heitan pott í garðinn á undanförnum árum. Það skiptir meginmáli að pallurinn við pottinn sé vel úthugsaður og huga þarf vel að staðsetningu og umhverfi pottsins. Best er að pallurinn sé á tveimur hæðum og smíða tröppur á snyrtilegan hátt upp á efri pallinn til þess að auka rýmið umhverfis pott- inn. Tröppurnar geta svo einnig nýst fyrir blómapotta og luktir sem gera umhverfið mun hlýlegra við pottinn. Á efri pallinum myndast þá líka rými fyrir borð og stóla. Þegar sólpallar eru ekki stórir eins og í þessu tilfelli er mikið atriði að fella pottinn inn í um- hverfið til þess að skapa rými. Rýmið umhverfis pottinn er t.d. hægt að nota fyrir glös og diska þegar hann er í notkun.“ Finna einnig fallegar lausnir fyrir landsbyggðina „Við Mattarnir smíðum líka utan um sorptunnur á faglegan hátt og búum til falleg blómabeð til skrauts og ofan á hleðslur. Við notum ýmsar viðar- tegundir við smíðina eins og t.d. lerki, eik, furu og jafnvel tekk. Við tökum glaðir við verkum á landsbyggðinni og höfum sinnt verkefnum um land allt, eins og t.d. á Flúðum, Þingvöll- um, Snæfellsnesi og í Skorradal. Við Mattarnir smíðum í raun allt sem hugsast getur – innandyra sem utan. Við getum séð um parketlögn, park- etslípun, milliveggjasmíði, uppsetn- ingu innréttinga, uppsetningu hurða, þakviðgerðir og fleira,“ segir Matti. Matti smiður, netfang: mattismidur@ mattismidur.is, sími: 893-3300 og 691-0621 www.mattismidur.is Flest sem lýtur að smíði og garðvinnu Þúsundþjalasmiður Matti er með yfir 30 ára reynslu í faginu og hefur í gegnum árin smíðað nokkur hundruð sólpalla með öllu tilheyrandi. MATTi SMiðUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.