Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 32
Allt fyrir heimilið Helgarblað 12. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Matthías Pétursson húsgagna-smiður er með þrjátíu ára reynslu af smíði og vinnur
með Matthíasi syni sínum, sem er
að ljúka námi í húsasmíði, og mun
taka við rekstri föður síns þegar fram
líða stundir. Þeir feðgar taka að sér
flest það sem lýtur að smíði, nýsmíði
og lagfæringum. Matthías segist
lengi vel hafa unnið við sérsmíði á
innréttingum: „Undanfarin ár hefur
sérsvið mitt hins vegar verið garðar
og hellulögn. Ég tek að mér fjölbreytt
verkefni eins og sumarhús, einka-
lóðir, lóðir undir nýbyggingar og eins
eldra húsnæði. Að auki sé ég um nýja
garða og endurgerð eldri garða.“
Sólpallar, skjólveggir og hellulögn
„Þegar líða fer að vori fara margir
að huga að sólpöllum enda eru þeir
ekki bara til þess að njóta sólarinn-
ar heldur nýtast einnig sem frábær
framlenging á sjálfri stofunni,“ segir
Matti. „Það er einnig annatími í hellu-
lögn og girðingum. Skjólveggir, bekkir,
kofar og geymslur spretta upp eins
og gorkúlur í görðum landsmanna
með hækkandi sól,“ bætir hann við
og nefnir að fátt sé skemmtilegra en
vorverkin.
Heitir pottar – framlenging á
stofunni
„Fjölmargir hafa fengið sér heitan
pott í garðinn á undanförnum árum.
Það skiptir meginmáli að pallurinn við
pottinn sé vel úthugsaður og huga
þarf vel að staðsetningu og umhverfi
pottsins. Best er að pallurinn sé á
tveimur hæðum og smíða tröppur á
snyrtilegan hátt upp á efri pallinn til
þess að auka rýmið umhverfis pott-
inn. Tröppurnar geta svo einnig nýst
fyrir blómapotta og luktir sem gera
umhverfið mun hlýlegra við pottinn.
Á efri pallinum myndast þá líka rými
fyrir borð og stóla. Þegar sólpallar
eru ekki stórir eins og í þessu tilfelli er
mikið atriði að fella pottinn inn í um-
hverfið til þess að skapa rými. Rýmið
umhverfis pottinn er t.d. hægt að
nota fyrir glös og diska þegar hann er
í notkun.“
Finna einnig fallegar lausnir fyrir
landsbyggðina
„Við Mattarnir smíðum líka utan um
sorptunnur á faglegan hátt og búum
til falleg blómabeð til skrauts og ofan
á hleðslur. Við notum ýmsar viðar-
tegundir við smíðina eins og t.d. lerki,
eik, furu og jafnvel tekk. Við tökum
glaðir við verkum á landsbyggðinni
og höfum sinnt verkefnum um land
allt, eins og t.d. á Flúðum, Þingvöll-
um, Snæfellsnesi og í Skorradal. Við
Mattarnir smíðum í raun allt sem
hugsast getur – innandyra sem utan.
Við getum séð um parketlögn, park-
etslípun, milliveggjasmíði, uppsetn-
ingu innréttinga, uppsetningu hurða,
þakviðgerðir og fleira,“ segir Matti.
Matti smiður, netfang: mattismidur@
mattismidur.is, sími: 893-3300 og
691-0621 www.mattismidur.is
Flest sem lýtur að
smíði og garðvinnu
Þúsundþjalasmiður Matti er með yfir 30
ára reynslu í faginu og hefur í gegnum árin
smíðað nokkur hundruð sólpalla með öllu
tilheyrandi.
MATTi SMiðUR