Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 36
Allt fyrir heimilið Helgarblað 12. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ Purkhús Fallegra heimili með gæða- vörum á hagstæðu verði Purkhús er vefverslun á vef­slóðinni purkhus.is sem sér­hæfir í fallegum vörum til að prýða heimilið. Eigandinn er sara Björk Purkhús en að hennar sögn koma vörurnar víða að, til dæmis frá Bandaríkjunum, Indlandi og kína, en sumar vörurnar hannar sara sjálf og lætur framleiða fyrir sig, aðrar kaupir hún af heildsölum. „Vörurnar eiga það allar sameig­ inlegt að prýða hús og heimili. Vin­ sælustu vörurnar eru DÍs blómavasi, hrINGur kertasjaki, sAXI veggpunt og svo eru krítarlímmiðarnir líka mjög vinsælir. Það eru einhverjar vörur uppseldar núna en allt væntanlegt aftur á næstu vikum,“ segir sara, en hún opnaði verslunina í september síðastliðnum: „Vefverslunin hefur fengið mjög góðar viðtökur og ég er mjög þakklát fyrir það. Ég hef náð að auka vöru­ úrvalið á þessum fjórum mánuðum og stefni á að auka það enn frekar á næstunni. Ég var búin að vera með þessa hugmynd í kollinum, að stofna vefverslun með fallegum vörum fyrir heimili, í nokkurn tíma og lét loksins verða af því á síðasta ári, en mér hefur alltaf þótt gaman að gera fínt í kringum mig og áhugi minn fyrir því jókst enn meira þegar ég flutti að heiman.“ sara leggur jafn mikla áherslu á gæði og hagstætt verð á vörunum sem hún tekur inn til sölu og því þarf að vanda valið: „Þegar ég panta inn vörur þá byrja ég á því að fá prufu­ eintak og tek í framhaldinu ákvörðun um hvort ég panta vöruna inn. Ef mér líkar varan og gæðin þá panta ég vöruna. Ég hef fengið mörg prufu­ eintök sem mér hefur ekki líkað nógu vel við og því ekki pantað þá vöru. Mig langar til þess að bjóða viðskiptavin­ um mínum fallegar vörur fyrir heimilið á góðu verði. Það er mitt markmið.“ Þess má geta að Purkhús sendir vörur heim til viðskiptavina um allt land og sendingarkostnaður er enginn. Þessa dagana er gott tækifæri til að kynna sér purkhus.is því það er nýársútsala í gangi þar sem valdar vörur eru á 20–50% afslætti en allar aðrar vörur á 10% afslætti. Alltaf er eitthvað spennandi framundan. „Ég er að taka inn nýja vöru sem kemur vonandi fyrir helgi en það er dásamlegur hringspegill á vegg. hann er í þremur litum, kopar, gylltu og út í svargrátt. hann er 40 sentimetrar í þvermál og er með fallegri glerhillu framan á. Þrátt fyrir að spegillinn sé ekki kominn í sölu ennþá hefur hann vakið mikla athygli og margir komnir á biðlista eftir honum. Ég er einnig að vinna í fleiri nýjum vörum en get ekki sagt frá þeim strax,“ segir sara að lokum. Sjá nánar á purkhus.is, á Facebook-síðunni Purkhús og hjá Purkhús á Instagram. Sara Björk Purkhús
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.