Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Blaðsíða 36
Allt fyrir heimilið Helgarblað 12. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Purkhús
Fallegra heimili með gæða-
vörum á hagstæðu verði
Purkhús er vefverslun á vefslóðinni purkhus.is sem sérhæfir í fallegum vörum til að
prýða heimilið. Eigandinn er sara
Björk Purkhús en að hennar sögn
koma vörurnar víða að, til dæmis frá
Bandaríkjunum, Indlandi og kína, en
sumar vörurnar hannar sara sjálf og
lætur framleiða fyrir sig, aðrar kaupir
hún af heildsölum.
„Vörurnar eiga það allar sameig
inlegt að prýða hús og heimili. Vin
sælustu vörurnar eru DÍs blómavasi,
hrINGur kertasjaki, sAXI veggpunt
og svo eru krítarlímmiðarnir líka mjög
vinsælir. Það eru einhverjar vörur
uppseldar núna en allt væntanlegt
aftur á næstu vikum,“ segir sara, en
hún opnaði verslunina í september
síðastliðnum:
„Vefverslunin hefur fengið mjög
góðar viðtökur og ég er mjög þakklát
fyrir það. Ég hef náð að auka vöru
úrvalið á þessum fjórum mánuðum
og stefni á að auka það enn frekar á
næstunni. Ég var búin að vera með
þessa hugmynd í kollinum, að stofna
vefverslun með fallegum vörum fyrir
heimili, í nokkurn tíma og lét loksins
verða af því á síðasta ári, en mér
hefur alltaf þótt gaman að gera fínt
í kringum mig og áhugi minn fyrir því
jókst enn meira þegar ég flutti að
heiman.“
sara leggur jafn mikla áherslu á
gæði og hagstætt verð á vörunum
sem hún tekur inn til sölu og því þarf
að vanda valið: „Þegar ég panta inn
vörur þá byrja ég á því að fá prufu
eintak og tek í framhaldinu ákvörðun
um hvort ég panta vöruna inn. Ef mér
líkar varan og gæðin þá panta ég
vöruna. Ég hef fengið mörg prufu
eintök sem mér hefur ekki líkað nógu
vel við og því ekki pantað þá vöru. Mig
langar til þess að bjóða viðskiptavin
um mínum fallegar vörur fyrir heimilið
á góðu verði. Það er mitt markmið.“
Þess má geta að Purkhús sendir
vörur heim til viðskiptavina um allt
land og sendingarkostnaður er
enginn.
Þessa dagana er gott tækifæri til
að kynna sér purkhus.is því það er
nýársútsala í gangi þar sem valdar
vörur eru á 20–50% afslætti en allar
aðrar vörur á 10% afslætti. Alltaf er
eitthvað spennandi framundan.
„Ég er að taka inn nýja vöru sem
kemur vonandi fyrir helgi en það er
dásamlegur hringspegill á vegg. hann
er í þremur litum, kopar, gylltu og út
í svargrátt. hann er 40 sentimetrar
í þvermál og er með fallegri glerhillu
framan á. Þrátt fyrir að spegillinn sé
ekki kominn í sölu ennþá hefur hann
vakið mikla athygli og margir komnir
á biðlista eftir honum. Ég er einnig að
vinna í fleiri nýjum vörum en get ekki
sagt frá þeim strax,“ segir sara að
lokum.
Sjá nánar á purkhus.is,
á Facebook-síðunni Purkhús
og hjá Purkhús á Instagram.
Sara Björk Purkhús