Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2018, Qupperneq 44
32 Helgarblað 12. janúar 2018 Menning Vísindaskáldskapur eða raunVeruleiki Þættirnir Black Mirror eru martraðakenndur vísindaskáldskapur sem fer ansi nærri raunveruleikanum – en hversu nálægt? Í hinum geysivinsælu sjónvarps- þáttum Black Mirror birtist okk- ur oftar en ekki ógnvænleg en óþægilega raunsæ framtíðar- sýn, hver þáttur er sjálfstæð saga sem veitir okkur leiftursýn inn í til- tölulega nálæga en tæknivæddari framtíð. Hver þáttur skartar mis- munandi leikurum og leikstjóra, mismunandi umhverfi og gerist jafnvel í mismunandi sagnaheimi, en þættirnir eiga þó sitthvað sam- eiginleg. „Þeir fjalla allir um það hvernig við lifum í dag – og það hvernig líf okkar gæti orðið eftir tíu mínútur ef við pössum okkur ekki,“ hefur mað- urinn á bak við þættina sagt, breski sjónvarpsmaðurinn og ískald- hæðni samfélagsrýnirinn Charlie Brooker. Þættirnir vekja þannig upp spurningar og vara okkur við gagnrýnislausri nálgun á tækni- þróun samtímans. Þeir byggja oft á raunverulegum tækjum og tækninýjungum sem gætu orðið ráðandi í heiminum á næstu árum og áratugum, en vara okkur við hvernig þau geta haft áhrif á okkur. DV ákvað að taka saman þau tæknifyrirbæri sem nýjasta ser- ía Black Mirror fjallar um og athuga hversu nálægt þættirn- ir fara veruleikanum. Í þeim til- gangi var rætt við þá Ólaf Andra Ragnarsson, aðjunkt í tölvunar- fræði við Háskólann í Reykjavík, og Gunnlaug Reyni Sveinsson, ritstjóra Tæknivarpsins á Kjarn- anum. Taka skal fram að saman- tektin er hvorki hávísindaleg né tæmandi. Við vörum við að grein- in inniheldur mikilvægar upp- lýsingar um söguþráð þáttanna, „Spoiler alert!“ n Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Algjör sýndarveruleiki Sería 04. Þáttur 01 Nafn: CSS Callister Leikstjóri: Toby Haynes Hér fylgjumst við með óframbærilegum tölvuleikjasmið sem er aðalforritari vinsæls fjölnotenda-net- tölvuleiks (MMO), leikurinn er spilaður í háþróuðum sýndarveruleika í viðvarandi stafrænum heimi. Sýndarveruleikagræjan tengist inn í heila fólks og lætur því líða eins og það sé að upplifa heiminn í raun og veru. Forritarinn hefur svo notað heim leiksins sem grunn til að hanna sinn eigin einkaheim byggðan á gömlum sjónvarpsþáttum, sem minna meira en lítið á Star Trek. Þessi heimur er hýstur í einkatölvu hans, er ónettengdur svo enginn hefur aðgang nema hann sjálfur. Með því að ná í erfða- efni úr einstaklingum getur hann klónað þá stafrænt eða endurskapað inni í tölvuheiminum. Orðið að veruleika: Gunnlaugur Reynir Sveinsson, ritstjóri Tæknivarpsins á Kjarnanum, segir að þó að tenging tölvuleikja við heilann sé eflaust langt undan sé sýndarveruleikatæknin í þættinum alls ekki fjarri lagi: „Það eru til dæmis komnar græjur sem virka þannig að í stað þess að horfa á skjá er myndinni varpað á sjónhimnu sem gerir þetta mun raunverulegra. Það er líka verið að þróa hanska, peysur og alls konar hluti sem þú klæðir þig í og þú skynjar það sem gerist í sýndar- veruleikanum. Meiri sýndarveruleiki er augljóslega á næsta leiti. Þetta er þannig tækni að þegar þetta er gert vel getur þú orðið algjörlega háður. Það sem þarf hins vegar að gerast næst er að tækin verði betri og ódýrari. Þá er ekkert ólíklegt að margir fari að lifa að stórum hluta í sýndarveruleika. Áhrif þess að lifa í sýndarheimi geta verið mjög mikil, við þekkjum þetta bara frá Eve Online sem er sýndarheimur þó það sé ekki sýndarveruleiki. Þú býrð til persónu sem nær árangri og það eru dæmi um að menn komi hingað á Fanfest og sé fagnað eins og rokk- stjörnum, en fara svo bara aftur heim til Bandaríkjanna að vinna í einhverju þjónustufyrirtæki.“ Fjarlæg framtíð: En þó að tækni sem tengir sýndarveruleika inn í heilann sé kannski fjarlæg í augnablikinu bendir Ólafur Andri á að þetta geti vel orðið mögulegt í framtíðinni: „Skynfæri okkar nota rafefnaboð til að skynja og menn hafa verið að finna út hvernig þessar bylgjur hafa áhrif á þau. Heilinn er bara einhver efnasamsetning, flókið net margra tegunda fruma, og til að virkja hann eru rafboð að flæða um heilann. Þá geta menn ályktað að ef hægt er að herma eftir þessum rafefnaboðum, mætti þá búa til hugsanir eða myndir í heilanum. Eða jafnvel eins og í þessu dæmi fá menn til að vera í einhverjum sýndarveruleika. Ofskynjunarlyf fara langt með þetta en hugsanlega mætti líka nota tæki sem gefa rafboð frá sér, eins og lítið tæki sem sett er á gagnaugað. Sem dæmi þá hafa menn þróað gerviauga (e. bionic eye) sem notar myndavél til að taka myndir af raunveruleikanum og varpa þeim yfir í rafboð sem tengd eru við heilann.“ Fjarstæðukennt: Það sem er fjarstæðukenndast í þættinum er hvernig hægt er að klóna manneskjur inn í stafrænan heim með því einu að skanna erfðaefni þeirra, eða eins og Gunnlaugur orðar það: „Þarna eru heilar manneskjur klónaðar í tölvu bara út frá DNA í slefi þess. Ég er ekki viss um að þú getir fengið allar hugsanir manneskju, minningar og tilfinningar bara úr slefinu.“ Njósnatæki í heila barns Sería 04. Þáttur 02 Nafn: Arkangel Leikstjóri: Jodie Foster Hér er sögð saga af móður sem óttast að einkadóttir sín fari sér að voða í hinum hættulega heimi. Hún skráir dóttur sína í tilraunaverkefni þar sem tæki er komið fyrir í heila hennar með sprautu í gagnaugað. Í spjaldtölvu sem er tengd tækinu getur móðirin fylgst með staðsetningu dóttur sinnar og heilsu. Tækið getur líka miðlað því sem stúlkan sér og getur móðirin fylgst með því í tölvunni. Þá getur hún lokað fyrir skynrænt áreiti sem hún telur geta haft slæmt áhrif á hana – ógnir, klám, ofbeldi, blótsyrði og svo framvegis – þannig að þegar hún upplifir eitthvað slíkt gerir tækið það óskýrt og ógreinilegt í huga hennar. Orðið að veruleika: Þátturinn byggir nokkuð augljóslega á eft- irlitstækni sem margir foreldrar í dag eru farnir að nýta sér til að fylgjast með og vernda börn sín. Þetta eru bæði GPS-armbandsúr (til dæmis frá Wonlex) sem gefa foreldrum upp nákvæma stað- setningu barns og eru með innbyggðum hljóðnemum sem gerir þeim kleift að hlusta og snjallsímaforrit á borð við Teensafe eða Mamabear. „Það er mjög einfalt í dag að láta barnið þitt fá snjallsíma og setja forrit í hann þannig að þú getur fylgst nákvæmlega með öllu því sem það gerir. Með því að hafa bak- dyraleið inn í símann getur þú vitað mjög mikið um líf barnsins án þess að það viti. Ég held að þetta sé hættuleg slóð, þú opnir ýmsar ormagryfjur. Það getur orðið mikill trúnaðarbrestur því þú færð svo mikinn aðgang. Nú á ég 13 ára dóttur sjálfur og hún eyðir örugglega meiri tíma í að spjalla við vini sína á Instagram frekar en í eigin persónu. Svo er jafnvel til hugbúnaður þar sem þú getur kveikt á myndavélinni og hljóðnemanum í tækinu. Þetta er líklega sá þáttur sem er næstur okkur í tækni,“ segir Gunnlaugur Reynir. Í náinni framtíð: Næsta skref í þessa átt gæti verið að notast við snjalllinsur á borð við þær sem Google hefur verið að þróa undanfarin ár. Það er hins vegar umtals- vert flóknara að tengjast heilanum á þann hátt að tækið geti séð það sama og augu barnsins og svo miðlað því í spjaldtölvu. Möguleikinn gæti þó opnast fyrir slíkt með stórstígum framförum í því hvernig tölvur eiga í samskipt- um við heila (e. brain-computer interfaces) en mikil þróun á sér stað á því sviði um þessar mundir. Ólafur Andri bendir á að ef þetta takist ætti ekki að vera mikið mál að ritskoða það sem barnið sér, enda geti gervigreind nú þegar greint inntak mynda í rauntíma: „Gervigreind getur í dag greint myndir og séð nákvæmlega hvað er á þeim. Það er til dæmis hægt að þekkja klám og blokka það út. Þetta meðal annars gert í vöfrum sem hægt er að stilla þannig að allt klám verði óaðgengilegt.“ Fylgst með börnunum Vinsæl armbandsúr gera foreldrum kleift að fylgjast ná- kvæmlega með staðsetningu barna sinna og hlusta á þau að þeim forspurðum. „Maðurinn er fáránlega duglegur, dælir út bókum, að sönnu misjöfnum að gæðum en það er augljóst að honum liggur eitthvað á hjarta – sem er nú bara töluvert atriði. “ - Hermann Stefánsson rithöfundur stofnaði Facebook-hóp þar sem hvatt var til þess að Bjarni Bernharður ljóðskáld skyldi hljóta listamannalaun í þrjá mánuði – að minnsta kosti stundum. Bjarni, sem hefur ekki fengið slíkan styrk í áratugi, var ekki hrifinn af uppátæki Hermanns.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.